27.01.1956
Efri deild: 49. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í B-deild Alþingistíðinda. (318)
144. mál, tollafgreiðsla
Haraldur Guðmundsson:
Herra forseti. Eins og lýst var yfir í Nd. af hálfu Alþfl.- þm. þar, höfum við þm. Alþfl. ákveðið að greiða götu þessa frv. Við teljum sjálfsagt að gera þessa tilraun til þess að hefta það gróðabrall, sem búast má við að magnist og viðleitni verði til í sambandi við þá vitneskju, sem er um fyrirætlanir hæstv. ríkisstj. um hækkun á ýmsum aðflutningsgjöldum. Ég hefði vænzt, að hæstv. ríkisstj. hefði séð sér fært og talið ástæðu til að gera fleiri ráðstafanir en þessa eina til þess að draga úr slíku gróðabralli, en mun nú samt sem áður fylgja því, að þessi ráðstöfun sé gerð, sem hér greinir.
Ég mun því fyrir mitt leyti og við Alþfl.- menn flýta fyrir því, að þetta mál fái afgreiðslu, og ekki koma með neinar till. um, að því sé vísað til nefndar. Hins vegar þarf ekki að taka það fram, að þar með er að sjálfsögðu ekkert sagt um afstöðu okkar til þeirra tekjuaukafrv., sem til er vísað í þessu frv., sem nú liggur fyrir.