28.01.1956
Efri deild: 52. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í B-deild Alþingistíðinda. (328)
145. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Forseti (GíslJ):
Með því að hér er um mjög mikið fjárhagsmál að ræða og þskj. hefur verið útbýtt nú á þessum fundi, þykir mér rétt sem forseta að gefa hv. þm. tækifæri til þess að kynna sér nokkru nánar innihald frv. og mun því fresta umr. til kl. 4 í dag, en þá verður fundi haldíð áfram. (Gripið fram í.) Nei, það hefur verið ákveðið að hafa þessa meðferð á málinu. Það gefur hv. þm. tækifæri til þess að kynna sér innihald frv., áður en 1. umr. byrjar.
Umr. er frestað þar til kl. 4 í dag, þá verður fundur settur að nýju og málið tekið fyrir. [Fundarhlé. ]