28.01.1956
Efri deild: 53. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í B-deild Alþingistíðinda. (338)
145. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Frsm. minni hl. (Haraldur Guðmundsson):
Herra forseti. Framsöguræða hv. frsm. meiri hl. gefur mér ekki tilefni til langrar ræðu. Hann endurtók þær röksemdir, sem hæstv. fjmrh. bar fram við 1. umr. um frv., um leið og hann lagði það fyrir, og ég hef þegar svarað. Ég vísa að öðru leyti til nál. míns á þskj. 305, en vil aðeins að þessu sinni leyfa mér að vekja athygli fundarmanna á, að ég hef haldið því fram og þótzt sýna fram á, að ekki verði þörf þessara nýju skatta til þess að jafna halla á fjárlögunum.
Það er bersýnilegt hverjum þeim, sem ber saman útkomuna á árinu 1955 og fjárlagafrv. fyrir 1956, að óhætt er að hækka tekjuliðina svo, að jöfnuður náist. Viðleitni hæstv. ríkisstj. til að fá þetta frv. samþykkt er því augljóslega í því skyni gerð að fá umframtekjur fram yfir áætlaðar tekjur fjárlaganna, sem hún svo getur, á sama hátt og hún hefur gert á undanförnum árum, ráðstafað án þess að spyrja Alþ. um fyrr en þá eftir á og láta samþykkja orðinn hlut. Ég hef einnig sýnt fram á það, að álögur samkv. þessu frv. og frv. um framleiðslusjóð, sem liggur nú fyrir og er til umræðu í Nd., nema samkvæmt mati ríkisstj. sjálfrar a. m. k. 200 millj. kr. á þessu ári. Ég hef einnig sýnt fram á, að engar ráðstafanir eru til þess gerðar eða fyrirhugaðar, að því er séð verður af frv. ríkisstjórnarinnar, að koma í veg fyrir, að þessir nýju skattar á landsmenn, eitthvað yfir 200 millj. kr., verði álagningarliður fyrir milliliði og gróðamenn landsins. Sú leið ein, sem væri líkleg til að hefta það og koma í veg fyrir nýja gróðasöfnun vegna þessara sérstöku tekjuliða og þar með auknar álögur á landsmennina, væri að setja öflugt verðlagseftirlit með ákveðnu hámarksverði, hámarksálagningu.
Ég hef einnig spurzt fyrir um það hjá hæstv. ráðh., hvort hann hafi látið rannsaka, hver áhrif þessi stórfellda hækkun á sköttum og álögum, yfir 200 millj. kr., muni hafa á vísitöluna og þar með kaupgjald og framleiðslukostnað í landinu, hversu mikið hún muni auka framleiðslukostnað útflutningsatvinnuveganna og hækka framfærslukostnað fólksins í landinu. Það er venja ríkisstj., eins og ég áður hef sagt, þegar um kaupgjaldsbreytingar er að ræða og samningar fara fram um það, að leita til hagstofunnar til að fá reiknað út, hve miklu þetta nemi. Að þessu sinni hefur hæstv. ríkisstj. ekki gert þetta, og ég vildi mjög óska þess, áður en þessum málum lýkur, að hún legði fram greinargerð um þetta atriði. Þá hef ég leyft mér að benda á, að samanlagðar álögur samkv. lögum til ríkissjóðs og útgerðarinnar verða að þessum tveimur frv. samþykktum hvorki meira né minna en a. m. k. 1 milljarður ísl. kr. Hversu mikill hluti þetta er af þjóðartekjunum, er ekki upplýst um, því að hæstv. ríkisstj. hefur ekki upplýst um, hvað líkur bendi til að þær verði núna á þessu ári. Hitt liggur í augum uppi, að hér er um svo gífurlega hækkun að ræða á sköttum og álögum, að það hlýtur að hafa mikil áhrif á verðlag og framleiðslukostnað í landinu og skapa erfiðleika fyrir þá, sem eiga sitt undir þessu tvennu.
Þar sem bersýnilegt er, að það er þegar ákveðið, að þetta frv. nái fram að ganga til þess að sjá ríkisstj. fyrir nokkrum umframtekjum til ráðstöfunar, taldi ég þýðingarlaust að bera fram brtt. við þetta og hafði ekki hugsað mér að gera það. Hins vegar sé ég nú, að hv. meiri hl. hefur lagt fram brtt. á þskj. 307 um að fella niður 1% gjaldið til tollskýla, og þykir mér þá rétt að reyna, hvort hugsanlegt væri, að eitthvað fleira fengist lagfært í frv. en þetta eitt. Ég veit, að það er alveg gersamlega þýðingarlaust að láta sér detta í hug að fá breytt ákvæðinu um álagninguna á verðtollinn, því að það er aðaltekjuliður þessa frv. Hins vegar heyrðist mér á hæstv. fjmrh., að hann legði ekki mikið upp úr þeim tekjuauka, sem yrði af bílaskattinum, hvorki benzínskattinum né þungaskattinum á bíla.
Félagsskapur bifreiðaeigenda hér í bænum, þeirra er hafa atvinnu af að aka leigubifreiðum, hefur nú snúið sér til þingmanna og fjhn. með tilmælum um, að veitt verði undanþága fyrir atvinnubíla frá þessum nýju álögum eða sú leið yrði farin að heimila ráðherra að endurgreiða annaðhvort að fullu eða nokkru þann skatt, sem á verði lagður með þessu frv.
Ég vildi, þó að ég hafi ekki mikla von um árangur, leita eftir áliti og undirtektum hv. deildarmanna um þetta, og leyfi mér samkvæmt því að leggja fram svofellda skriflega brtt., sem ég skal lesa upp, með leyfi hæstv. forseta: „Við 1. gr. Á eftir d-lið í 3. tölul. komi ný málsgr.: „Ráðherra er heimilt að endurgreiða eigendum atvinnubifreiða hækkun á innflutningsgjaldi af benzíni samkv. lögum þessum og fella niður hækkun á bifreiðaskatti.“ Ég vil mega vænta þess, að hæstv. forseti leiti afbrigða fyrir þessari tillögu.