28.01.1956
Neðri deild: 54. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 346 í B-deild Alþingistíðinda. (366)
146. mál, framleiðslusjóður
Forsrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Ég get vel unað við þær umr., sem hér hafa farið fram. Sumir menn þurfa hér að sýna málsnilld sína og aðrir þurfa að sýna innræti sitt. Það þykir mér eðlilegt og hef ekkert við það að athuga. Kjarni málsins er sá, að þeir, sem hér hafa talað af skynsemi, hafa viðurkennt, að útgerðin þurfi á þeirri aðstoð að halda, sem hér er farið fram á. Almennar hugleiðingar um ástandið í þjóðfélaginu eru ævinlega skemmtilegar, sérstaklega þegar jafnágætlega málfær maður og hv. 2. þm. Reykv. (EOl) flytur þær, þó að þær séu nú ekki eins skemmtilegar fyrir okkur, sem höfum heyrt þær stundum áður, það játa ég, enda fór hann ekkert dult með, að þetta væri engin jómfrúrræða um efnið, heldur svo sem hundraðasta útgáfa af þessu merka handriti, sem hann hefur samið á æskuárunum og endurbætt í ellinni.
Hann spurði mig um það, hvernig stæði á því, að við legðum aldrei fram hér greinargóðar skýrslur um skiptingu þjóðarteknanna og arð einstakra stétta í þjóðfélaginu. Ég geri ráð fyrir, að hann hafi lesið miklu meira en ég af slíkum skýrslugerðum, sem fram hafa komið, bæði af hendi opinberra stofnana og opinberra nefnda, og skal ég þá ekki brigzla honum með því, sem hann er stundum að brigzla mér með, að ég nenni ekki að lesa nógu mikið, svo að hann ætti að geta svarað sjálfum sér, þegar hann kemur heim, því, sem hann var að spyrja um hérna niður frá. Ég bendi honum hins vegar á, að ef hann er að ræða um óeðlilegan gróða einstakra stétta í þjóðfélaginu, þá liggur nú fyrir Alþ. till. um nefndarskipun til þess að rannsaka slíkan gróða, og ég hygg, að það sé a. m. k. líklegt, ef ekki öldungis víst, að hann eða hans flokkur getur haft mann í þeirri nefnd og þar komið að þeim fyrirspurnum um upplýsingar, sem þar eiga betur heima en í umræðum um þetta mál.
Annarri fsp. beindi hv. þm. til mín í lok sinnar ræðu, en hún var sú, hvort n. hagfræðinga hefði lagt til, að fellt væri gengi peninga. Nú legg ég spurningu fyrir hann, þetta átti að vera samvizkuspurning til mín: Ætlast þessi þm. til, ef þetta væri staðreynd, að ég segði frá því? Teldi hann það til hagsbóta fyrir almenning í þessu landi? Hins vegar minni ég menn á það, að þegar gengið var síðast fellt, þá réðust menn mjög á þær aðgerðir. Þegar bátagjaldeyrisskipanin var á sett, var einnig ráðizt á þær aðgerðir fyrir það, að þær væru ofrausn í garð útvegsmanna og þá væntanlega sjómanna. Þegar dregið var úr þeim fríðindum, var á það ráðizt. Og nú, þegar skattar eru á þjóðina lagðir til þess að reyna að halda framleiðslunni gangandi, þá er á það ráðizt. En ef framleiðslan stöðvast, þá er einnig á það ráðizt. Hvað á þá að gera?
Hv. þm. sagði: Hér eru aðilar, sem hafa allt of mikinn gróða, og nefni ég þar fyrstan ríkissjóð. — Annar hv. stjórnarandstæðingur sagði: Það er einn sólskinsblettur í heiði í þessu öngþveiti fjármálalífsins, en hann er sá, að það er tekjuafgangur hjá ríkinu. — Nú veit ég ekki, hvor þessara stjórnarandstæðinga hefur á réttu að standa. Þeir geta rifizt um það innbyrðis. En ef þeir vilja spyrja mig, þá tel ég það mjög til farsældar, að ríkisbúskapurinn er rekinn hallalaus og með gróða, og ég segi, að sú ráðstöfun, sem gerð hefur verið fram að þessu á óvæntum tekjuafgangi ríkisins, er þjóðinni í heild til framdráttar og lofsverð ráðstöfun út af fyrir sig. Það má kannske gagnrýna okkur fyrir það, að við höfum leyft okkur að úthluta þessum óvænta arði ríkisins í stað þess að binda hann. Ég viðurkenni, að út af fyrir sig ýtir sú ráðstöfun undir verðbólgu. Samt sem áður eru þau verkefni, sem þar er við að fást, í okkar huga svo þýðingarmikil fyrir afkomu almennings í landinu, að við höfum talið nauðsynlegt að gera þetta.
Hv. þm. segir, og það var aðalkjarninn í hans ræðu, að svo miklu leyti sem þetta frv. áhrærir, sem hér er til umr., að kaupgjaldið hafi í raun og veru engin áhrif haft á þær ráðstafanir, sem hér er verið að gera. Ég sannaði það í minni frumræðu, og það var í raun og veru aðalþráður í minni ræðu, að þær ráðstafanir, sem hér eru gerðar, eru gerðar fyrst og fremst vegna kauphækkunarinnar. Ég sannaði, að kauphækkunin væri orðin yfir 22%, og tölurnar, sem ég byggði á, voru reistar á auknum þunga vinnslu- og veiðikostnaðar út af þessum kauphækkunum, en ekki út af neinu öðru í verulegum mæli, þó að ég að vísu viðurkenni, að inn í það dregst nokkur hækkun á olíuverði og öðrum útgerðarkostnaði. Þetta er efni málsins.
Ég man nú ekki eftir, að hv. þm. beindi sérstaklega til mín öðrum fyrirspurnum en þeim, sem ég hef svarað, enda skrifaði ég ekki hjá mér neitt úr hans löngu ræðu. En höfuðefni málsins er, og það endurtek ég, að þær ráðstafanir, sem hér er farið fram á að gerðar verði, eru afleiðingar af kauphækkunum, sem urðu á s. l. vori.
Ég vil svo hans vegna benda honum á, svo að hann geti leiðrétt það, því að hann er alveg nægjanlega mikill maður til þess, ef hann reynir á sinn skárri mann, að ég hef aldrei haft neinar hótanir í frammi um það, að af almenningi í landinu skuli teknar þær kjarabætur, sem verkalýðurinn hefur krækt sér í með mikilli baráttu og miklum tilkostnaði. Ég lét hins vegar í ljós kvíðboga um það, að kauphækkanirnar mundu leiða til annarra ráðstafana, sem sviptu verkalýðinn þeim fríðindum, sem honum féllu í skaut, eftir að kaupdeilunni var lokið. Því miður reyndist ég í það skiptið sannspár, — því miður, segi ég, vegna þess að ég er eins og aðrir hér í þessu hv. Alþ., að við getum sjálfsagt allir unnt hver öðrum hinna beztu kjara og ekki sízt þeim, sem við verst kjör búa.
Í þessu frv., sem er hér til umr., eru gerðar eðlilegar ráðstafanir til þess að hindra það, að menn geti hagnazt á þessum verðlagshækkunum, sem fram undan eru á vissum vörutegundum, um ákveðið tímabil. Að öðru leyti er byggt á því, sem fyrri reynsla hefur sannað, að verðlagseftirlit komi að litlu gagni, en hin frjálsa samkeppni nægi til að halda niðri vöruverði, ef framboðið er nægjanlegt. Það er aðalatriðið, að framboðið sé nægjanlegt. Og því skal ég óaðspurður svara, eða frá því skal ég óaðspurður segja úr þessu nefndaráliti hagfræðinganna, sem verið er að spyrja um ævinlega, að það er sameiginlegt álit þeirra allra, að verðlagseftirlitið komi að engu liði og muni sízt til bóta.
Ég veit, að eina vonin til þess, að þetta mál geti komizt til n. nú í kvöld, þannig að auðnast megi einnig í kvöld að afgreiða tekjufrv. ríkissjóði til framdráttar, en á því er rík nauðsyn til að fyrirbyggja, að menn geti hagnazt á þeim upplýsingum, sem nú þegar liggja fyrir um það, — ég veit, að eina ráðið til þess er, að ég fari hér ekki í sparðatíning eða að svara einstökum ádeilum á Sjálfstfl. sem slíkan, á einstaka ráðherra eða á ríkisstj. í heild. Mér er það mjög þrautalaust. Ég er svo vanur að sitja undir ádeilum hv. þingbræðra minna, sumum, sem þeir meina, og öðrum, sem þeir meina ekki, að ég tek mér ekkert nærri, þó að ég þurfi ekki að svara þeim, og get einnig svarað þeim við síðari umr. þessa máls, ef ég óska. Ég skal þess vegna í því skyni að flýta afgreiðslu þessa máls, sem nauður einnig rekur til, láta það nægja, sem ég nú hef sagt.