28.01.1956
Neðri deild: 54. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 349 í B-deild Alþingistíðinda. (367)

146. mál, framleiðslusjóður

Einar Olgeirsson:

Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir það litla, sem hann reyndi nú að svara. Það eina, sem hann ætlaði verulega að reyna að leyna í þessu, held ég, að hann hafi nú komið upp um, út af spursmálinu um gengislækkun og kaupbindingu. Hann spurði mig að því sem samvizkuspurningu, hvort ég ætlaðist til þess, ef það væri þarna, að hann segði frá því. Það þarf nú ekki að draga nema einfalda ályktun af því, að það muni vera þar. (Gripið fram í.) Já, ef það væri ekki, þá hefði hann verið óhræddur að segja: Það er eitt, sem vist er, að þar er það ekki.

Þá talaði hæstv. ráðherra um viðvíkjandi till. fjmrh. í sambandi við fjárl., 10 millj. kr. till., sem ég var að tala um áðan m. a., að það eina, sem mætti álasa þeim fyrir, væri, að þeir skyldu ekki festa þetta, það mundi valda verðbólgu, ef því væri úthlutað og það væri látið fara til fólksins. Ég held, að á þessum sviðum sé ríkisstj. oft og tíðum sjúklega hrædd við verðbólgu, og ég held, — ég veit ekki, hvort hagfræðingarnir hafa gert þetta eða hverjir það eru, — að það sé orðið gersamlega ruglað í hugum ríkisstj., hvað sé aukning á þjóðarauði og sparnaði og hvað sé verðbólga. Ef ríkið eignast fé og það er sett út aftur til þess að byggja t. d. eitthvert nýtt hús fyrir, kaupa fyrir það togara eða eitthvað slíkt eða lána fiskveiðasjóði til þess að kaupa fyrir þessar 10 millj. nýjan togara eða nýja báta eða eitthvað slíkt, þá er haldið, að þetta skapi verðbólgu. Þetta er hrein hörmung og vitleysa. Ef þessu er varið til þess að kaupa skip, sem framleiðir fisk, og þennan fisk seljum við og fyrir hann fáum við gjaldeyri, þá eykur þetta þjóðarauð og þjóðartekjur, en ekki verðbólgu. Það er aðeins undir einum kringumstæðum, sem þetta verður til að skapa verðbólgu, og það er ef því er varið eins og af vitleysingjum, eins og hefur verið um meginið af því, sem varið hefur verið af hæstv. ríkisstj. á síðustu 7 árum. Ef ríkisstj. hefði sett mikið af því, sem hún hefur haft til umráða, til þess að auka þau tæki, sem skapa þjóðarauðinn, þá hefði hún ekki þurft að vera með þessar verðbólguáhyggjur. Ég veit, hvaðan þetta er upprunnið. Það voru til menn, sem sögðu, þegar við keyptum hér einn sinni 30 togara, að auðvitað mundi þetta skapa verðbólgu. Það eru þessir menn, sem alltaf ganga með verðbólgu í kollinum. Það er gefið, að þegar við spörum saman fé eða notum fé til slíks, þá erum við þvert á móti að vinna á móti öllu, sem heitir verðbólga. Við erum að skapa stöðugleik í þjóðarbúinu, við erum að auka þess eign. Þarna er orðinn alger ruglingur á öllum þessum hugtökum.

Þá kom hæstv. forsrh. inn á það, að hann hefði sannað í sinni framsöguræðu, að kauphækkunin ylli verðlagshækkun. En það, sem hæstv. forsrh. gleymdi að sanna, var, að gróðamyndunin í þjóðfélaginn bæri ekki þessa kauphækkun. Og það er eins og það sé föst trúarsetning hjá stjórnarflokkunum, að ef kaup hækkar, þá hljóti það að hækka verðlag. Þetta er hrein vitleysa, og mér þætti gaman að sjá hér þann hagfræðing, sem dirfðist að halda þessu fram. Kauphækkun hækkar því aðeins verðlag, að gróðamyndunin í þjóðfélaginu geti ekki staðið undir kauphækkuninni. Og það, sem hæstv. forsrh. gleymdi að sýna fram á, var, að gróðamyndunin í þjóðfélaginu gæti ekki staðið undir þessari kauphækkun. Við skulum taka dæmi. Ef kaupgjald alls verkalýðs hefur hækkað á síðasta ári í krónutölu um t. d. 70–80 millj. kr., mundi þá gróði íslenzku auðmannastéttarinnar og ríkisbákns hennar ekki vera fær um að standa undir þessari hækkun án þess að láta það þýða verðlagshækkun. Ég hef leyft mér að halda því fram, að sá gróði, sem rennur til einokunarauðvaldsins og þess ríkisbákns, sem það notar eins og sitt, væri jafnvel hátt upp í 200 millj. kr., og það hefur ekki verið reynt að hrekja einn staf af því. Það hefur bara verið sagt, eins og þegar ég minnist á þetta viðvíkjandi ríkinu, að það skuli taka milli 50 og 100 millj. kr. aukreitis af almenningi: Ja, þetta er alveg indælt, mér þykir vænt um þetta, segir hæstv. forsrh. M. ö. o.: Ef einhverjir græða þarna, þá er bara sagt: Nú, það er ágætt, að þeir græði. — En þegar verkalýðurinn heimtar til sín einhvern hluta af þessu, sá aðilinn, sem skapar þennan gráða allan, þá er sagt, að það valdi verðlagshækkun. Þetta verður því aðeins verðlagshækkun, að annaðhvort gróðinn væri ekki til — nú er hann til þarna — eða þá hins vegar að sú yfirstétt, sem á þennan gróða, sé í þeirri aðstöðu vegna ríkisvaldsins að geta hækkað verðlagið, og það er það, sem hún hefur verið að gera í sumar. Ríkið er eins og lítið tæki fyrir þetta einokunarvald, ríkisstj. er eins og nefnd auðmannanna í Reykjavík, eins og hún væri kjörin til að framkvæma þeirra hagsmuni á kostnað almennings, og það er bezt sannað með þessu frv., sem hérna liggur fyrir. Þess vegna vildi ég fá hæstv. forsrh. út í rökræðu við mig um þetta mál. Þá vísar hann bara til, að það eigi kannske að setja nefnd, sem eigi að athuga milliliðagróðann, og ég hef áður tekið þátt í umr. um það. Ég er hræddur um, að sú nefndartill. sé ekki einu sinni komin til n. enn þá, og þegar sú nefnd verður sett og á að fara að rannsaka, þá er nú sem ég sjái, hve mikið bækurnar verða opnaðar fyrir henni. Það voru kosnar tvær nefndir hérna á þinginu í fyrra, og það var sagt, þegar þær voru kosnar: Það skulu allar bækur opnaðar fyrir þessum mönnum. — Þær fá ekkert að gera enn þá. Nei, gróðabók íslenzka einokunarauðvaldsins er lokuð bók, hún verður ekki opnuð, fyrr en aðrir menn verða komnir í ríkisstj. en menn einokunarauðvaldsins á Íslandi.

Þá sagðist hæstv. forsrh. ekki hafa hótað því að lækka gengið. Það er vafalaust rétt hjá honum, að það orðalag er mitt. Ég hef lagt út af því, sem hann sagði, og dregið eðlilegar afleiðingar af því. Hann sagðist hafa borið kvíðboga fyrir því, að það, sem verkalýðurinn væri að gera, yrði til þess því miður, að gengið yrði nú lækkað. Já, ég veit um þennan kvíðboga, sem hann ber fyrir því. Það er verst, að hagsmunir einokunarauðvaldsins í Reykjavík skuli allir saman vera á þá leiðina, að það þurfi ekki að bera neinn kvíðboga fyrir því, að gengið sé lækkað, heldur að það skuli þvert á móti græða því meira sem gengið lækkar. Eitt hins vegar fullvissaði hæstv. ráðh. mig um að fyrirfyndist ekki í öllum leyniplöggum ríkisstj. og öllum álitum hagfræðinga hennar og það væri orðið „verðlagseftirlit“. Slíkt er ekki til í biblíu ríkisstj. Það þóttist ég líka vita. Að setja mætti einhver takmörk við, hvernig menn græddu á verðbólgunni, það er ekki til. Það getur ríkisstj. ekki hugsað sér.

Ég spurði að því áðan, hver afstaða Framsfl. hefði verið til þessa frv. Hæstv. fjmrh. er nú viðstaddur, ég veit ekki, hvort hann vill svara því. Það er kannske hægt að ræða um það við hann í sambandi við annað mál, ef honum finnst það betra. Ég skal þá láta staðar numið um þetta mál í svipinn; það á hvort sem er eftir að ganga í gegnum tvær umr. hér.