30.01.1956
Neðri deild: 58. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 383 í B-deild Alþingistíðinda. (376)
146. mál, framleiðslusjóður
Gunnar Jóhannsson:
Herra forseti. Þau tíðindi gerðust á Alþ. s. l. laugardag, sem lengi munu í minnum höfð. Þá um daginn voru lögð fyrir Alþ. tvö stjfrv., sem höfðu inni að halda nýjar álögur á allan almenning, sem munu nema talsvert á þriðja hundrað millj. króna. Samkvæmt þessum frv. kemur því hver fimm manna fjölskylda á landinu til með að greiða 7000 kr. til ríkissjóðs að meðaltali á næsta ári til viðbótar þeim tollum og sköttum, sem fyrir eru.
Nú hefði mátt ætla, að hæstv. ríkisstj. hefði gefið þm. sæmilegan frest til að athuga þessar nýju till.
Annað frv., sem heitir frv. til laga um bráðabirgðabreytingu nokkurra laga og lagt var fram í hv. Ed. af hæstv. fjmrh. og gerir ráð fyrir 47–49 millj. kr. auknum tekjum á þessu ári samkvæmt áliti hans, var knúið í gegn í báðum deildum þingsins á laugardaginn, sama dag og frv. var lagt fram.
Mitt álit er, að með slíkum vinnubrögðum hafi hæstv. fjmrh. með stuðningi stjórnarflokkanna og vitanlega allrar ríkisstj. framið slíkt gerræði, að slíkt muni vera einsdæmi í þingsögunni.
Nú var það vitað, að hæstv. ríkisstj. hafði haft á prjónunum till. um stórfelldar skattahækkanir. Slíkar hækkanir og till. höfðu að sjálfsögðu verið margræddar á flokksfundum þm. stjórnarliðsins. Hafa þar verið fram lagðar þær upplýsingar, sem fáanlegar voru, og því þessum þm. gefizt tækifæri til að kynna sér málið eins og frekast hefur verið hægt. Aftur á móti var þess vandlega gætt að láta stjórnarandstöðuna ekkert vita um, hvað til stóð, og engar ábyggilegar upplýsingar lágu fyrir um það, hvað stjórnin hygðist gera í þessum málum. Slíkar starfsaðferðir eru með öllu óverjandi og hreint og beint gerræði gagnvart minni hlutanum. Á jafnstuttum tíma og þm. fengu til að lesa yfir og athuga frv. gafst að sjálfsögðu enginn tími til að athuga málið til hlítar. Má með sanni segja, að hér hafi meirihlutavaldið verið notað til hins ýtrasta.
Nú er það skoðun stjórnarandstæðinganna, að engin sérstök þörf hafi knúið hæstv. fjmrh. eða ríkisstj. í heild til þess að knýja fram auknar tekjur til handa ríkissjóði, sem að hans dómi nema hvorki meira né minna en tæpum 50 millj. kr., en munu verða, þegar allt kemur til alls, aldrei undir 60–70 millj. kr.
Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt og sannað, svo að ekki verður um deilt, að útreikningar hæstv. fjmrh. og meiri hl. fjvn. á hinum ýmsu tekjuliðum fjárlaganna hafa reynzt rangir, tekjuliðirnir hafa farið langt fram úr áætlunum. Ekkert bendir til þess, að hæstv. fjmrh. og meiri hl. fjvn. hafi reiknað réttar nú en undanfarin ár. Í þessu sambandi má bara aðeins benda á, að t. d. verðtollurinn er nú áætlaður í fjárlagafrv. fyrir 1956 155 millj. kr., en var í árslok 1955 178 millj. kr. Þannig er með marga aðra tekjuliði. Og hver trúir því, að tekjur yfirstandandi árs verði minni en ársins 1955? Enginn, ekki einu sinni hæstv. fjmrh.
Af hverju var þá verið að samþykkja á einni kvöldstund nýjar álögur á þjóðina, sem gefa í ríkiskassann tæpar 50 millj. kr. að dómi hæstv. fjmrh., en munu verða 60–70 millj. kr., þegar öll kurl koma til grafar, þegar líka er hægt að sanna, eins og gert hefur verið af minni hl. fjvn., að hægt var að afgreiða fjárlögin með engum eða mjög litlum tekjuhalla? Manni verður á að spyrja: Hvers konar fjármálalegt siðferði er yfirleitt haft hér í frammi? Eru engin takmörk fyrir því, hvað hinir háu stjórnarherrar leyfa sér, þegar um er að ræða skatta- og tollaálögur á almenning?
Þetta frv., sem ég hef hér gert að umræðuefni, er orðið að lögum, og svo mikið lá á, að forseti Íslands staðfesti lögin svo að segja samstundis og Alþ. hafði lokið við að afgreiða þau. Það má segja, að hér hafi rösklega verið gengið að verki, og getur hæstv. fjmrh. sagt með fullum rétti, að drjúg séu kvöldverkin.
Hitt stjfrv., sem heitir frv. til laga um framleiðslusjóð, var lagt fram s. l. laugardag og þá tekið fyrir til 1. umr. hér í þessari hv. deild. Frv. þetta gerir ráð fyrir tekjum, sem fengnar séu á eftirfarandi hátt:
Af tollverði allrar innfluttrar vöru að viðbættum aðflutningsgjöldum og 10% áætlaðri álagningu skal greiða 9% framleiðslusjóðsgjald. Gjald þetta er áætlað, að muni nema 115 millj. kr. Að sjálfsögðu, byggt á fyrri reynslu, er lítið upp úr þeirri tölu leggjandi fremur en öðrum útreikningum hæstv. ríkisstj. Flestir hennar útreikningar eru að meira eða minna leyti út í bláinn. Bendir ýmislegt til, að gjald þetta verði mörgum millj. kr. hærra. Þetta framleiðslusjóðsgjald er vitanlega ekkert annað en nýr söluskattur, en sá skattur er af öllum almenningi talinn einn óréttlátasti skattur, sem á hefur verið lagður, auk þess sem slík skattálagning gefur alveg beina og opna leið til stóraukinna skattsvika, og þarf ekki frekar orðum að því að fara. Það skilja allir, sem eitthvað hafa kynnt sér slík mál.
Til viðbótar þessu skal svo taka nýtt aukagjald af skattskyldri sölu og veltu, og nemur það 3%.
Framlengd eru svo leyfisgjöld af bifreiðum og bifhjólum. Á það að vera 100%, eins og verið hefur, af fob-verði bifreiðanna. Áætlaðar tekjur af þessum skatti eru ekki nema 8 millj. kr. Það var bent á það hér áðan af hv. 11. landsk. þm. (LJós), að þessi áætlaða upphæð væri allt of lág, enda er ríkisstj. þegar búin að gera samninga við erlend ríki um kaup á bifreiðum í allstórum stíl. Þetta gjald hlýtur því að verða miklu hærra en hér er gert ráð fyrir.
Þá skal enn fremur leggja nýjan toll eða hækka þann, sem fyrir er á innlendum tollvörutegundum, um 40%. Í frv. er talið, að þar sé hægt að aura saman 4 millj. kr.
Leggja skal sérstakt aukagjald á alla ávexti, sem til landsins verða fluttir, svo og flestar tegundir búsáhalda, smíðatól, verkfæri o. s. frv. Gert er ráð fyrir, að þarna náist 10 millj. kr.
Til framleiðslusjóðs skulu svo renna eftirstöðvar í sjóði vegna togaraaðstoðar. Eru þær eftirstöðvar taldar vera 15 millj. kr.
Samtals nema þá áætlaðar tekjur væntanlegs framleiðslusjóðs fyrir árið 1956 hvorki meira né minna en 152 millj. kr., en eins og áður hefur verið bent á, eru fullar líkur fyrir því, að þessar tekjur geti numið mörgum millj. kr., jafnvel tugum millj. kr. hærri upphæð. Flest af þessu eru áætlaðar tölur, eins og áður hefur verið bent á, og engin ástæða er til að ætla, að væntanlegar tekjur hins nýja sjóðs hafi verið rétt reiknaðar, enda máske erfitt, og munu fara langt fram úr áætlun. Það má telja alveg öruggt, að þessar nýju álögur koma til með að verða miklu hærri að krónutölu en gert hefur verið ráð fyrir í frv., enda í fullu samræmi við það, sem átt hefur sér stað með fjárlögin, og þarf ekki fleiri orðum að því að víkja.
Það er mjög athyglisvert að athuga þá aðferð, sem viðhöfð er, þegar verið er að reikna út væntanlegar tekjur af þessum eða hinum skattinum. Þá er það föst regla að áætla tekjurnar sem allra lægstar. Þetta er gert til að þjóna alveg sérstaklega sjúklegri tilhneigingu hjá hæstv. fjmrh. um að hafa yfir að ráða nægilegu fé fram yfir það, sem áætlað er, svo að hægt sé að ráðstafa því utan fjárlaga.
Nú er rétt að athuga, til hvers þessu mikla fé, sem framleiðslusjóður kemur til með að ráða yfir, skal varið.
Í fyrsta lagi skal verja til togaranna 66 millj. kr., eða nánar tiltekið 5 þús. kr. á hvern dag, sem skipinu er haldið út til veiða.
Annað er vinnsluuppbót á togarafisk, 9 millj. kr. Gjald þetta nemur 5 aurum á hvert kg af útfluttum togarafiski, miðað við slægðan fisk með haus, nema óslægðan karfa, enda greiði vinnslustöðvarnar sama fiskverð og í desember 1955.
Þriðja eru vátryggingargjöld fiskibáta, eða til að greiða vátryggingargjöld fiskibáta, 9 millj. kr. Framleiðslusjóður skal sem sé greiða hálft vátryggingargjald fiskibátanna fyrir árið 1956. Skilyrði eru þau ein, að báturinn hafi verið gerður út frá einhverri veiðistöð yfir vertíðina.
Fjórði liður er um bætur á smáfiski af bátum, 7 millj. kr.
Fimmti liður er um vinnsluuppbót á bátafiski, 9 millj. kr.
Sjötta er verðlagsuppbætur á ýsu og steinbít af bátum, 2 millj. kr.
Og sjöunda er uppbætur á síld, veidda við Suðvesturland og í Austurdjúpi, 10 millj. kr.
Árið 1955 voru flestar tóbaksvörur hækkaðar allverulega. Hækkun þessi nam rúmum 6 millj. kr. Þessum auknu tekjum af tóbaki, aðallega sígarettum, var svo varið til þess og átti að verja til að greiða útvegsmönnum hér við Faxaflóann og Suðvesturland 80–100 kr.. á hverja tunnu síldar, sem fiskaðist hér við Vestur- og Suðvesturlandið. En nú skeður það merkilega í þessu máli, að hæstv. fjmrh., sjálfsagt með fullu samþykki allrar ríkisstj. og þingflokka hennar, hefur innbyrt þessar rúmar 6 millj. kr. í ríkissjóð, sem hækkunin af tóbakinu gerði. Svo eru bara lagðir á almenning nýir tollar og skattar til að greiða uppbót á væntanlega síld, veidda fyrir Suðvesturlandi á þessu ári. Ja, það verður ekki um deilt, að hæstv. fjmrh. er mjög sniðugur maður og fylginn sér, þegar um er að ræða nýjar tekjuöflunarleiðir fyrir ríkissjóð.
Áttundi liðurinn í hinni nýju skrá yfir greiðslur úr framleiðslusjóði er uppbætur á landbúnaðarafurðir. Það eru aðeins 15 millj. kr. og þykir lítið.
Níundi liðurinn er svo aðalrúsínan í pylsuendanum, eins og vera ber, en sá liður er til þess að kaupa B-skírteini og taka þau úr umferð. Þar eru 25 millj. kr.
Tekjur og gjöld hins nýja sjóðs eru svo látin mætast, og eru báðum megin 152 millj. kr. Ekki vantar nú nákvæmnina í reikningsfærsluna.
Eins og sjá má af þessu yfirliti, skal miklum hluta af tekjum framleiðslusjóðs varið til að styrkja útgerð togara, fiskibáta og fiskvinnslustöðvar.
Nú skal ekkert um það fullyrt hér, hvort þær upplýsingar um hinn mikla og alvarlega taprekstur þessara fyrirtækja, sem bent er á, séu byggðar á nákvæmri athugun eða ekki.
Í athugasemdum frv. er því haldið fram, að öll útgerð, bæði á togurum, fiskibátum og rekstur hraðfrystihúsanna, sé rekin með tapi. Um rekstur togaranna er það að segja, að þar mun vera um allmikið rekstrartap að ræða. Um það liggja fyrir óyggjandi skýrslur. Liggja til þess margar orsakir, sem ekki verða raktar hér, enda má benda á t. d., að ekki hafa togararnir notið þeirra hlunninda, sem bátaeigendur hafa notið og nú hafa verið framlengd, bátagjaldeyrisfyrirkomulagið. Hins vegar eru allar upplýsingar viðkomandi bátaútveginum og fiskvinnslustöðvum í landi af mjög skornum skammti og í sumum tilfellum engar.
Ríkisstj. skipaði nýja sérfræðinganefnd í sumar eða haust til að rannsaka ástand útgerðarinnar og til að gera till. til úrbóta. Þessir ágætu hagfræðingar eru sjálfsagt búnir að skila áliti fyrir alllöngu. Þrátt fyrir mjög ákveðnar kröfur alþingismanna leyfir hæstv. ríkisstj. sér að halda þessu áliti sérfræðinganna leyndu fyrir þingmönnum. Slík framkoma gagnvart alþm. er hreint gerræði og algerlega óverjandi. Hverju er hæstv. ríkisstj. að leyna? Er t. d. hagur sumra þeirra atvinnufyrirtækja og atvinnugreina, sem nú á að fara að styrkja með milljónum króna, jafnvel milljónatugum af almannafé, ekki eins slæmur og af er látið? Spyr sá, sem ekki veit. Eru þessar ráðstafanir, sem lagt er til með þessu frv., aðeins byrjun þess, sem koma skal? Er það t. d. rétt, sem margir álíta, að hinir vísu hagfræðingar hafi lagt til stórfellda gengislækkun, en hæstv. ríkisstj. hafi ekki þorað að fara út í slíkar aðgerðir fyrr en að loknum alþingiskosningum? Það er ekki að ófyrirsynju, þótt spurt sé um ýmislegt í sambandi við þetta mál.
Allar þessar gífurlega auknu álögur einkennast af því, að þær eru allar teknar með verðhækkunum og neyzlusköttum, en við auðfélögunum er ekki hróflað. Þau eru ekki látin leggja fram einn einasta eyri. Hér er um að ræða einhverja þá stórkostlegustu og um leið svívirðilegustu árás á lífskjör alls almennings í landinu, sem um getur á síðari tímum, og jafnast á við það, sem gerðist, þegar gengisfellingin var látin koma til framkvæmda. Með slíkum ráðstöfunum sem hér um ræðir er hleypt af stað óstöðvandi verðbólguskriðu. Sjáanlegt er, að allt verðlag í landinu hækkar stórlega. Hvað sú verðhækkun verður mikil, getur enginn sagt um með neinni vissu, eins og nú standa sakir. Vel má láta sér þó detta í hug, að verðhækkunin vegna þessara nýju ráðstafana geti numið 15–20% á allar neyzluvörur landsmanna. Vitað er, að vísitalan muni hækka, hvað mikið, liggja ekki neinir útreikningar fyrir, gæti orðið 8–10 stig. Það þýðir, að allt kaupgjald í landinu, eins og áður hefur verið bent á, hlýtur að hækka. Sem sagt, dýrtíðarskrúfan heldur áfram með meiri hraða en nokkurn tíma áður. Ekkert bendir til þess, að hæstv. ríkisstj. ætli sér að auka verðlagseftirlitið. Síður en svo. Braskararnir eiga því að fá að leika lausum hala hér eftir sem hingað til, og alls konar okraralýður á í ró og næði að geta stundað iðju sína og rakað saman of fjár á kostnað alþýðunnar í landinu. Og nú spyrja menn og það í fullri alvöru: Eru allar þessar nýju álögur fram settar með fullu samþykki Framsfl. á Alþingi? Telja framsóknarmenn þessar aðgerðir ríkisstj. í samræmi við öll skrifin í aðalmálgögnum flokksins um t. d. vinstri stjórnina? Það er ekki óeðlilegt, að um þetta sé spurt. Þessum spurningum og ótalmörgum öðrum í sambandi við þetta mál kemst Framsfl. ekki hjá að svara fyrr eða síðar. Þessar nýju tugmilljóna króna álögur á allan almenning eru beint áframhald af þeirri óheillastefnu, sem núverandi ríkisstj. er ábyrg fyrir.
Það hefur verið og er stefna núverandi valdhafa að auka allar álögur á launastéttirnar eða m. ö. o. að gera þá fátæku fátækari, en þá ríku ríkari. Það er öllum ljóst, að fjölmörg auðfélög, þar með taldir bankarnir, hafa rakað saman ofsagróða og mergsogið útgerðina úr hófi fram. Það er hjá slíkum aðilum, sem átti að taka peningana til að greiða með hallann á útgerðinni. Það eru hin voldugu auðfélög, sem hafa skapað sér einokunaraðstöðu og fengið óáreitt og í mörgum tilfellum með stuðningi ríkisvaldsins að mergsjúga sjávarútveginn úr hófi fram. Með fullkomnu blygðunarleysi er því haldið fram af hæstv. ríkisstj. og blöðum hennar, að það öngþveiti, sem nú ríkir í atvinnumálum landsmanna, sé að kenna kauphækkunum þeim, sem fengust s. l. vor. Þessar órökstuddu fullyrðingar hafa margsinnis verið hraktar lið fyrir lið. Ríkisstj. og stuðningsflokkar hennar á Alþingi komu á gengislækkuninni 1950. Með þeim ráðstöfunum voru launastéttirnar rændar stórum hluta launa sinna. Þegar gengisfellingin sýndi sig að vera allt annað en forsvarsmenn hennar vildu vera láta og kom útgerðinni og öðrum atvinnurekstri ekki að nema mjög litlu haldi og það skamman tíma, var gripið til bátagjaldeyrisfyrirkomulagsins, sem vitanlega var ekkert annað en grímuklædd gengislækkun. Allt verðlagseftirlit var á sama tíma gert að engu og hverjum leyft að haga sér eins og honum bezt líkaði og hann gat höndum undir komið að græða á seldri vöru, keyptri vöru, án þess að ríkisvaldið gripi þar nokkurn tíma inn í. Verkalýðsstéttin var því neydd til að rétta hlut sinn að nokkru og lífsnauðsyn að fara út í aðgerðir. Það tókst að rétta hlut hennar að nokkru s. l. vor. En ríkisstj. og flokkar hennar hugðu á hefndir. Það voru ekki liðnir nema nokkrir dagar eða jafnvel nokkrir klukkutímar frá því að samningar við verkalýðsfélögin voru undirskrifaðir s. l. vor, þegar alls konar hækkanir dundu yfir og í langflestum tilfellum algerlega að ástæðulausu. En hæstv. ríkisstj. lét sér vel líka og hreyfði ekki hönd eða fót til að stöðva þessar tilefnislausu hækkanir. Slíkar athafnir voru gerðar að hennar vilja. Svo koma þessir herrar og tönnlast sífellt á þeim ósannindum, að það sé sök verkafólksins í landinu, hvernig nú sé komið hag atvinnuveganna, kaupgjaldið sé of hátt, vinnutíminn of stuttur og þar fram eftir götunum.
Hér er of langt gengið í ósannindum, til þess að menn taki slíkan áróður fyrir góða og gilda vöru. Þetta er sami áróðurinn og hefur verið hafður í frammi í hvert einasta skipti sem verkalýðurinn hefur farið fram á að fá kjör sín bætt. Þetta er sami áróðurinn og hafður var í frammi í fyrsta skipti sem verkalýðurinn á Íslandi fór fram á að fá bætt sín kjör, og enn í dag er þessum áróðri haldið fram og það af þeim krafti, sem andstæðingar verkalýðsins hafa yfir að ráða. Væri einhver sannleiksneisti til í þessum áróðri auðstéttarinnar og fulltrúa hennar, væru allir þeir, sem fengjust við verzlun, útgerð og ýmsan atvinnurekstur, fyrir löngu komnir á hausinn fjárhagslega. Staðreyndin er hins vegar sú, að aldrei hefur meiri auður safnazt á hendur auðfélaga og auðmanna hér í þessu landi en einmitt nú síðustu árin.
Þannig mun þessi áróður yfirstéttarinnar halda áfram, á meðan fulltrúar auðmanna fara með stjórnartaumana hér í þessu landi. Það er sannarlega tími til kominn, að það fólk, sem ekki er samþykkt óheillastefnu núverandi ríkisstj., taki til sinna ráða og bindist samtökum um, að breytt verði til um stjórnarstefnu. Slíkt er ekki framkvæmanlegt nema með stórauknu samstarfi á pólitískum vettvangi, m. a. meira og betra samstarfi á milli hinna svokölluðu vinstri flokka og annarra þeirra, sem af einlægni vilja snúa við á þeirri óheillabraut, sem hefur verið áfram haldið mörg undanfarin ár og ríkisstj. og þeir flokkar, sem hana styðja, eru beinlínis ábyrgir fyrir. Þeir menn, sem vinna á móti slíkri samvinnu og breytingu á slíkri stjórnarsamvinnu, en telja sig samt í orði vera ósammála stefnu núverandi hæstv. ríkisstj., eru ekki að vinna að hagsmunum verkafólksins í landinu og annarra launastétta, heldur hið gagnstæða. Slíkir menn eða flokkar eru sjálfum sér algerlega ósamþykkir.
Um nál. minni hl. fjhn. er ég að öllu leyti sammála. Í því áliti er farið inn á þær einu réttu leiðir, þ. e. að láta þá, sem mergsogið hafa útgerðina á undanförnum árum, skila til baka nokkrum hluta af þeim gróða, sem þessir aðilar hafa haft af viðskiptum sínum við útveginn. Með þessum till. minni hl. er stefnt að réttu marki. Till. hans, ef samþykktar yrðu, mundu ekki auka dýrtíðina í landinu og verka þannig þveröfugt við það, sem stjórnarfrv. kemur til með að gera, ef það verður að lögum. Fyrir því, ef hv. alþm. vilja raunverulega stöðva þá þróun, sem hefur verið undanfarin ár og virðist enn halda áfram hröðum skrefum, ef hv. alþm. vilja stöðva dýrtíðarskrúfuna, þá ber þeim að samþykkja þær till., sem minni hl. fjhn. hefur hér lagt fram. Það eru þær einu raunhæfu till., sem geta orðið til þess að lækna það sjúka ástand að einhverju leyti, sem auðkennir okkar þjóðfélag og kemur einna skýrast fram í því, hvernig komið er fyrir svo að segja öllum atvinnurekstri á Íslandi í dag.