31.01.1956
Efri deild: 58. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 403 í B-deild Alþingistíðinda. (391)
146. mál, framleiðslusjóður
Haraldur Guðmundsson:
Mér er um það kunnugt, enda var það staðfest af hæstv. forsrh., að það eru fullkomnir samningar milli stjórnarflokkanna, öflugs meiri hl. í þinginu, um afgreiðslu þessa máls eins og það nú liggur fyrir. Ég sé því enga ástæðu til þess að tefja framgang málsins með löngum ræðuhöldum og mun ekki heldur gera það. Ég greiddi ekki heldur atkv. gegn afbrigðum frá þingsköpunum, því að úr því að örlög málsins eru ákveðin, þá þýðir ekki að leggja kapp á að draga það nokkrum stundum lengur að afgreiða málið. En ég kemst ekki hjá því vegna ummæla hæstv. forsrh. í þeim fáu orðum, sem hann áðan sagði, að drepa á tvö atriði.
Hæstv. ráðh. fullyrti það nú, að ástæðan til þess, að aðstoðar væri nú þörf fyrir bátaútveginn, væri kauphækkanir þær, sem orðið hefðu á s. l. vori. Ég vil mótmæla þessu. Ég vil ekki neita því, að þær kauphækkanir, sem þá urðu, séu að einhverju leyti þáttur í erfiðleikum útgerðarinnar. En að ástand útgerðarinnar nú, afkomuhorfur og rekstrarhorfur stafi af þeim hækkunum einum saman, er náttúrlega fjarri öllum sanni, eins og hæstv. ráðh. vel veit, ef hann bara minnist þeirra lýsinga, sem hann um síðustu áramót gaf á ástandi útgerðarinnar, enda liggur í augum uppi, að þær upphæðir, sem hér er um að ræða, eru svo stórfelldar, að sú kauphækkun, sem varð á s. l. ári, er aðeins brot af þeim upphæðum, sem þar er um að ræða. Þessari fullyrðingu hæstv. ráðh. gat ég ekki látið ómótmælt.
Annað var það, að hann teldi nú ekki gengisfellingu neitt bjargráð fyrir útveginn, það væru nú breyttir tímar. Sjálfsagt eru breyttir tímar nú frá 1950. En að hverju leyti þeir séu þann veg breyttir, að það, sem var bjargráð 1950, sé það ekki nú, ef sömu augum er litið á, vantar mig skýringu á. Ég sé ekki, að þeir, sem trúðu á gengislækkun þá sem bjargráð útvegsins, muni ekki líta sömu augum á málið nú. Hins vegar er ég sammála honum um það, að það sé síðasta neyðarúrræðið, sem vert sé að grípa til eða gerlegt sé að grípa til. Hinu tel ég ekki rétt að loka augunum fyrir, að gengislækkunin er þegar komin undir stjórn hæstv. ráðh., miklu meiri en sú, sem ákveðin var með lögum á árinu 1950, því að allan tímann síðan hefur hæstv. ríkisstj. með sínum aðferðum verið að lækka gengi peninganna í landinu. Auðvitað er bátagjaldeyririnn gengislækkun, ekki nokkur vafi á því, enda margviðurkennt. Auðvitað eru hækkaðir innflutningstollar á nauðsynjar almennings rýrnun á gildi peninga og þar með felling á verði krónunnar. Um þetta þurfum við ekki að deila.
Hvort gengislækkun leiði til nýrrar gengislækkunar, hlýtur jafnan að vera undir því komið, hverjar ráðstafanir stjórnin í hlutaðeigandi landi gerir til þess að tryggja það nýja gengi og afstýra nýrri gengislækkun. Stundum getur það verið svo erfitt, að hún hafi ekki fullt vald á því, en undir venjulegum kringumstæðum á það ekki að vera ókleift, þótt það væri ekki gert 1950, enda ekki reynt, eins og kunnugt er.
Ég vildi aðeins nefna þessi tvö atriði, af því að hæstv. ráðh. ræddi nokkuð um þau. En að lokum vildi ég benda á það, að hæstv. fjmrh. sagði í ræðu sinni hér í útvarpinu í gær og talaði þá án efa fyrir munn hæstv. forsrh., að í raun og veru væri ekki nema um þrjár leiðir að ræða til þess að aðstoða útveginn, eins og hann orðaði það. Ein væri sú að lækka gengið, hið skráða gengi. Önnur væri sú að fara niðurfærsluleiðina, sem hann kallaði og skýrði ekki nánar. Og hin þriðja væri eins konar milligjöf, og það væri sú leið, sem farin væri í þessu frv., þ. e. a. s. með niðurgreiðslum, með uppbótum og með styrkjum og með bátagjaldeyri að flytja hluta af tekjum annarra borgara þjóðfélagsins yfir til útgerðarinnar, og það er sú leið, sem ætlazt er til þess að sé farin eftir ýmsum krókaleiðum samkvæmt þessu frv., sem hér liggur fyrir. En mér finnst hæstv. ríkisstj. hafa gleymt því, að það er raunverulega til fjórða leiðin í þessu efni, og hún er sú, að gera þær ráðstafanir með löggjöf og framkvæmd ríkisvaldsins, að tekjuskiptingin hjá þjóðinni verði önnur en hún nú er, án þess að jafna metin með sköttum eða tollum og uppbótarstyrkjum. Þá leið hefur hæstv. ríkisstj. ekki viljað nota og látið svo sem hún hafi ekki eygt hana eða telji hana með öllu ófæra. En það er vitað, að mikið fé rennur frá útgerðinni til ýmissa aðila í þjóðfélaginu, sem væri betur komið og mundi stórlega bæta hag útgerðarinnar, ef það rynni til hennar sjálfrar.
Ég skal svo ekki hafa þessi orð mín miklu lengri. Ég vil, þar sem ekki gefst tækifæri til að gefa út nál., leyfa mér að vísa til nál. á þskj. 316 frá 2. minni hl. fjhn. í Nd. Og mér þykir rétt, þó að ég viti, að engin von sé til, að þær brtt. fáist samþ., að leggja fram þær brtt., sem sami hv. 2. minni hl. fjhn. í hv. Nd. lagði fram þar við umr. málsins, en efni þeirra er að benda á þær tvær leiðir, sem líklegar þættu til þess að afla fjárins annan veg en gert er samkvæmt frv. og til þess að tryggja, að almenningur og ríkisvaldið, sem féð leggur fram, hefði nokkra íhlutun um og eftirlit með, hvernig þessu fé væri varið.
Ég leyfi mér því að afhenda hæstv. forseta þessar brtt. og óska eftir, að hann leiti afbrigða fyrir þeim.