14.11.1955
Efri deild: 17. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (43)
96. mál, skemmtanaskattur
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Þetta frv. er um endurnýjun eða áframhaldandi gildi sams konar heimildar sem verið hefur undanfarin ár og er að öllu leyti óbreytt. Ég tel því ástæðulaust að fjölyrða um málið, heldur legg til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.