13.02.1956
Neðri deild: 68. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í B-deild Alþingistíðinda. (505)
151. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1956
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Af því að málið hefur ekki fengið að fara í n., vil ég leyfa mér að bera hér fram eina litla brtt. við það. Ég sé nú ekki, að hæstv. ríkisstj. hefði ekki getað haft þann fyrirvara á með þetta, hvorki er málið það stórt né það mikið ágreiningsmál né heldur svo nýtilkomið, að hún hefði ekki getað haft hugsun á því í tíma að láta taka málið þannig fyrir, að það gæti komizt til nefndar í tæka tíð og nefnd getað athugað það, eða talað að einhverju leyti við menn úr öðrum flokkum viðvíkjandi því.
Ég álít, að skemmtilegast sé að hafa þann hátt á að hafa nokkurn veginn fastan dag sem samkomudag Alþ., þegar þetta er orðið alltaf að haustinu, og vildi gera það að till., að í 1. gr. kæmi í stað 10. dag októbermánaðar: 1. dag októbermánaðar.
Hvað snertir vinnubrögðin, þá álít ég þetta líka heppilegra, ekki sízt með tilliti til fjvn., því að það er vitanlegt, að það er naumasti tími, sem henni er ætlaður með því fyrirkomulagi, sem núna er.
Þessi brtt. mín er skrifleg og of seint fram komin, og verð ég að biðja hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir henni.