13.02.1956
Efri deild: 67. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 730 í B-deild Alþingistíðinda. (515)
151. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1956
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Ég skal ekki gera neina tilraun til að tefja þetta mál, enda er komið í eindaga að samþykkja það, því að mér skilst, að þetta frv. verði að staðfesta sem lög á morgun, til þess að ekki þurfi að setja nýtt Alþingi 15. þ. m. En ég get þó ekki látið þetta frv. fara svo í gegnum hv. d., að ég ekki lýsi yfir því, að ég er ekki ánægður með ákvæði þess. Í fyrsta lagi er það, að það er búíð að samþykkja slík lög sem þessi svo mörg ár í röð, að ég skil ekki vel, hvers vegna ekki eru þá sett lög til frambúðar um það, að samkomudagur Alþingis skuli vera að haustinu. En hvað sem því líður, þykir mér það undarlegt að kalla ekki þingið saman fyrr en 10. okt. Ég held, að það hefði ekkert veitt af því, að það hefði verið 1. okt., til þess að nokkurt öryggi væri fyrir því, að fjárlög gætu orðið afgreidd fyrir áramót, sem auðvitað fer bezt á og er enda nauðsynlegt.
Ég ber ekki fram brtt., en vil þó láta þetta í ljós, ef t. d. hæstv. ráðh. vildi gera grein fyrir því, hvers vegna þessi dagur er valinn, en ekki 1. október.