18.01.1956
Neðri deild: 43. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 759 í B-deild Alþingistíðinda. (585)
134. mál, skatt- og útsvarsgreiðslur útlendinga
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Sérstök löggjöf er til um skattgreiðslur og útsvarsgreiðslur útlendinga og gjaldenda, sem eru á förum úr landi. Þessi löggjöf hefur verið endurskoðuð og er flutt hér frv. til nýrra laga um þetta efni, sem koma eiga í stað hinna eldri laga.
Lögin um skattgreiðslur útlendinga ná til þeirra, sem dvelja hér um stundarsakir, ef svo mætti segja, hluta úr skattári. Gildandi lög hafa galla, sem ætlunin er að bæta úr með þessu frv. Gallarnir á þeim eru aðallega þeir að dómi þeirra, sem standa að þessu frv., að útlendingum, sem dvelja hér um tiltölulega stuttan tíma og stunda hér atvinnu, er ætlað að greiða mun þyngri skatta en landsmönnum sjálfum. Sérstaklega kemur þetta fram í því, að þeim er enginn persónufrádráttur ætlaður. Enn fremur kemur þetta þannig fram, að tekjur þeirra til skatts eru reiknaðar þannig, að það er skoðað, hversu lengi þeir hafa unnið fyrir tekjunum, og síðan reiknað með, að þeir muni hafa jafnháar tekjur aðra tíma ársins og árstekjur settar eftir því í skattdæmi. En eins og gefur að skilja, þegar útlendingar sækja þannig um langa vegu störf í annað land, þá er það venjulega í sambandi við það, að þeir eiga von á hærri tekjum það tímabil, sem þeir starfa heiman að frá sér, en þeir hafa heima að jafnaði. Venjulega er þetta ástæðan til þess, að þeir sækja í annað land um stundarsakir til atvinnu. Þess vegna vill það verða svo, að eftir þessari reglu eru menn skattlagðir af hærri tekjum en þeir raunverulega hafa, þegar litið er á árið í heild.
Hér kemur eitt til enn. Menn, sem sækja þannig í annað land til atvinnu, missa vitanlega talsvert mikinn tíma, hæði áður en atvinnan hefst og eftir að henni er lokið, sem þeim verður ekkert úr, bæði til ferðalaga og eins í aðdraganda og til undirbúnings ferðunum. Þetta er ekki að neinu leyti tekið til greina, eins og lögin eru nú úr garði gerð.
Á síðari árum hefur það komið í ljós, að það er talsvert þýðingarmikið atriði fyrir Íslendinga að geta fengið erlenda sjómenn til þess að vinna hér um vertíðir, og þess vegna fer það nú saman orðið, að lögin eru ekki sanngjörn í garð þeirra, sem sækja hingað atvinnu, og að það er hagsmunaatriði fyrir íslenzkt atvinnulíf, að lögunum sé breytt og ekki gert jafnfráfælandi og það er nú fyrir erlenda menn að hafa hér atvinnu um stundarsakir.
Þetta eru ástæðurnar fyrir því, að frv. er fram komið, og breytingarnar eru aðallega tvenns konar: Annars vegar, að hér eftir skuli útlendingum gerður persónufrádráttur eins og öðrum mönnum, enda sýni þeir að sjálfsögðu fram á og sanni með góðum skilríkjum, að þeir hafi fjölskyldu á framfæri. Hins vegar, að þegar reiknað er skattdæmið, séu lögð 20% ofan á þann starfstíma, sem þeir hafa unnið hér, t. d. ef menn hafa unnið hér í 90 daga, þá verði reiknað þannig, að þeir hafi raunverulega unnið hér í 108 daga, en þó með þeim takmörkunum, að það sé aldrei minna en vika, sem þannig leggst við starfstímann, sem reiknaður er hér á landi, og aldrei meira en mánuður. Þetta er gert með tilliti til þess dauða tíma, sem alltaf hlýtur að verða hjá fólki, sem sækir þannig atvinnu, og eins með tilliti til hins, að gera má ráð fyrir, að hér sé um tekjur að ræða, sem ekki séu hliðstæðar þeim, sem þeir hafa aðra tíma ársins.
Þetta er að því er virðist sanngjörn og einföld regla að taka upp og mundi breyta mikið í sanngirnisátt greiðslum þessara manna, komast nær því raunverulega en hægt er með núgildandi reikningsaðferð. Það er enginn vafi á því, að það lækka allmjög skattgreiðslur margra manna samkv. þessum nýju lögum, ef þau hljóta samþykki þingsins, og á þann hátt, sem sanngjarnt má teljast. Það er ekki eðlilegt að neita útlendingum um persónufrádrátt til dæmis í sambandi við skattgreiðslur. Margt af þessu eru menn, sem hafa stórar fjölskyldur fram að færa, og margt af þessu fátækir menn, og það er engin ástæða til þess að íþyngja þeim umfram landsins eigin menn.
Ég vil leyfa mér að óska þess, að málinu verði vísað til hv. fjhn. deildarinnar, og vildi fara þess á leit, að hún vildi greiða fyrir málinu, þannig að það gæti fengið heldur skjóta afgreiðslu, því að þessi mál eru mjög ofarlega á baugi nú, þar sem nokkuð mikið er ráðið af erlendum starfsmönnum, ekki sízt til fiskveiða, og það þarf að vera sem ljósast, hvernig þeim er ætlað að borga skatta.