23.01.1956
Efri deild: 46. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 780 í B-deild Alþingistíðinda. (659)
109. mál, fólksflutningar með bifreiðum
Jón Kjartansson:
Herra forseti. Ég hef skrifað undir nál. með fyrirvara. Sá fyrirvari þýðir ekki, að ég sé á móti þessu máli í heild. Þvert á móti er ég því fylgjandi í aðalatriðum og tel þær breytingar, sem gerðar hafa verið frá 1., til bóta. Fyrirvari minn er um það, að ég vildi gera nokkrar fleiri breytingar á l., en flyt þó aðeins tvær smávægilegar brtt. á þskj. 257.
Fyrri brtt. er um það, að 2. málsgr. 1. gr. falli burt. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Ráðuneytinu er heimilt að taka í sínar hendur að nokkru eða öllu leyti póst- og farþegaflutning með eigin bifreiðum á þeim leiðum, er því þykir henta, enda fullnægi bifreiðar þess settum reglum fyrir sérleyfishafa.“ Ég tel óþarft og reyndar óviðeigandi að hafa svona ákvæði í lögum. Það ber ekki að skilja það þannig, að ég telji, að núverandi hæstv. ráðh., sem fer með þessi mál, mundi misbeita þessu á neinn hátt. En Alþingi getur ekki sagt um það, hver skipar þetta sæti í framtíðinni, og sá maður getur komið í sætið, sem telur ástæðu til þess að taka þetta upp og nota heimildina og verja til þess máske stórfé úr ríkissjóði. Þetta hefur gerzt, þetta getur gerzt aftur, og ég tel þar af leiðandi óviðeigandi að hafa þetta ákvæði. Miklu nær er, ef ástæða þykir að grípa í taumana, að gefa út brbl. og afla svo heimildar frá Alþ. fyrir þeim lögum. Það er í alla staði heilbrigðari meðferð en að hafa svona ákvæði.
2. brtt. mín er um það að bæta inn nýrri gr. eftir 3. gr., svo hljóðandi:
„Nú hefur félag eða einstaklingur haft sérleyfisleið eitt leyfistímabil eða lengur, enda rækt starfið svo, að ekki verði með réttu að fundið, og skal þá, sé leiðin óbreytt, sá aðili að öðru jöfnu sitja fyrir um sérleyfi áfram, ef hann æskir þess.“
Með þessu hef ég viljað ofur lítið tryggja öryggi sérleyfishafa. Eins og kunnugt er, hafa þeir að sjálfsögðu lagt mikið í kostnað við þetta starf, keypt mjög dýrar bifreiðar og ýmislegt til þeirra rekstrar, sem kostar mikið fé. Og þeir hafa margir hverjir máske byggt atvinnu sína blátt áfram á þessu starfi og lífsafkomu, og það væri vissulega hart, ef þeir hefðu ekkert öryggi fyrir starfið áfram, ef svita mætti þá fyrirvaralaust starfinu og baka þeim máske stórfellt tjón fjárhagslega, algerlega að ástæðulausu og tilefnislausu.
Ég hélt, að hv. samgmn. mundi fallast á þessar brtt., og ég hafði nokkra von um, að það mundi verða svo. En þetta hefur ekki orðið, og þess vegna koma þær hér fram, en ég er reiðubúinn að taka till. aftur til 3. umr., ef n. vildi sérstaklega athuga þær. Það er rétt, sem frsm. sagði, þær hafa aldrei verið athugaðar í n. sérstaklega, heldur hef ég orðað þær þar. Ég vona einnig, að hæstv. ráðh., sem að vísu er hér ekki viðstaddur, geti ekki haft neitt við þessar brtt. mínar að athuga. En ef þær koma núna undir atkv., vænti ég þess, að hv. þd. taki till. vel.