30.01.1956
Efri deild: 55. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (664)

109. mál, fólksflutningar með bifreiðum

Utanrrh. (Kristinn Guðmundsson):

Herra forseti. Út af tilmælum hv. þm. V-Sk. um að taka inn í reglugerð efni svipað og brtt. hans inniheldur verð ég að skýra frá því, að ég hef ekki nægilega rannsakað, hvort þetta er fært. Ég veit ekki, hvort nægileg stoð er í lögum til þess að setja þetta ákvæði inn í reglugerð, en ég skal lofa hv. þm. því, að ég skal taka málið til vinsamlegrar athugunar eins fljótt og ég get.