30.01.1956
Efri deild: 55. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (665)

109. mál, fólksflutningar með bifreiðum

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Það er af því, að ég sit núna og hef setið í tvö ár eða þrjú í þeirri n., sem úthlutar þessum sérleyfum, sem mig langar til að gefa eftirfarandi upplýsingar:

Þeirri reglu hefur verið fylgt, a. m. k. síðan ég kom í n., að láta þá, sem hafa haft leiðirnar áður, sitja fyrir, þegar þeir hafa sótt um aftur og sérleyfistímabilið er útrunnið, og ég held, að það hafi alltaf verið gert, og það hefur fortakslaust alltaf verið gert síðan ég kom í n. Jafnframt höfum við fylgt annarri reglu, sem sé þeirri, að þegar sérleyfisleið lengist eða réttara sagt, þegar hægt er að aka lengra en á fyrri endastöð sérleyfisferðarinnar, hefur sá, sem hefur haft leiðina þangað áður, fengið hina nýju viðbót. T. d. að taka á þessu tímabili, sem ég hef setið í n., þegar var að smáopnast leiðin vestur Barðastrandarsýsluna, hafði Guðbrandur Jörundsson leiðina fyrst bara í Gufudalssveitina, svo komst hann í Múlahreppinn og nú kemst hann á Patreksfjörð. Af því að hann hafði leiðina, á meðan hún var lítil og gaf lítið, í Gufudalssveitina og svo í Múlahreppinn, var talið sjálfsagt, að hann fengi viðbótina, og engum datt annað í hug en að láta hann fá hana, þegar leiðin lengdist.

Nú getur komið fyrir, og ég veit, að það er núna á leiðinni eitt mál, — ég get gjarnan sagt frá því hér, — þar sem verður dálítið erfitt, a. m. k. fyrir mig og ég held fyrir alla sanngjarna menn, að fylgja þessum tveimur reglum. Það hefur verið fært og farið í mörg ár frá Reyðarfirði upp um Fljótsdalshérað, og eru vikulegar ferðir í hreppana. Þessar ferðir hefur kaupfélagið á Reyðarfirði, Kaupfélag Héraðsbúa, yfirleitt haft, þó að núna síðustu árin einstaka menn heima í hreppunum hafi fengið aðstöðu til að sækja og tekið ferðirnar, og ég tel það miklu heppilegra, að bíllinn fari að morgni til ofan úr sveitinni niður í kaupstaðinn og heim að kvöldinu, heldur en að bíllinn fari einu sinni í viku neðan úr kaupstaðnum, sæki fólkið upp í sveitina, flytji það niður í kaupstað og svo sitji það þar allt ráðalaust með að komast heim til sín aftur. Þegar það koma menn í sveitunum, sem vilja taka þessar ferðir og eiga heima þar og fara þaðan að morgni og aftur heim að kvöldi, þá mun ég ekki í n. fylgja þeirri reglu að láta fyrrverandi leyfishafa hafa hana, því að það er svo miklu þægilegra fyrir fólkið, að ferðin sé farin úr sveitinni og í hana, heldur en annaðhvort að verða að bíða viku niður frá eftir að fá aftur far heim með áætlunarferðinni ellegar kaupa sér bíl. Þetta er komið núna í tvo hreppana, og það hefur verið með fullu samkomulagi við Kaupfélag Héraðsbúa, að heimamenn, sem hafa fengið bíla og haft aðstöðu til, hafa tekið ferðirnar að sér. En ef þetta væri komið inn í lögin, þá er ég ekki alveg viss um, hvort við gætum breytt því.

Í öðru lagi liggur það líka þannig fyrir núna, að Reyðarfjörður hefur haft ferðina. Fyrst hafði hann hana út í Eiða, svo hafði hann hana út í Bóndastaði, sem er bær í miðri Hjaltastaðaþinghánni. Nú hefur hann hana út að Unuósi, nú endar vegurinn þar, en á komandi sumri einhvern tíma opnast framhald vegarins og leiðin til Borgarfjarðar, sem er þorp með nokkrum íbúum, ég man ekki hvað mörgum, minnir, að það séu 182 á kjörskrá þar, þá eru það líklega svona 300–400 íbúar. Nú segir það sig alveg sjálft, að þegar leiðin opnast yfir þennan fjallgarð, ætti eftir þeirri venju, sem við höfum fylgt, og líka ef þessi hreyting væri sett inn í lögin, Kaupfélag Héraðsbúa að hafa þá ferð og fara frá Reyðarfirði og niður á Borgarfjörð, fara frá Reyðarfirði að morgninum og niður á Borgarfjörð að kvöldinu og svo til Reyðarfjarðar aftur til baka. Nú segir það sig sjálft, að þegar búið væri að setja allar ferðir á Austurlandi í samband við flugið til Egilsstaða og einu sinni í viku frá þessum staðnum og öðru sinni frá hinum, koma alltaf ferðir að morgninum úr kauptúnunum og beint í Egilsstaði og fara ekki aftur þaðan, fyrr en flugvélin er komin og komnir með henni farþegar. Þá segir það sig sjálft, að það væri mönnunum í Borgarfirði miklu þægilegra, að ferðin væri þaðan að morgninum og þangað aftur að kvöldinu. Ef það á að komast í kring, þá megum við ekki vera einskorðaðir við að láta þann sama hafa hana og áður hefur haft hana, hvorki hvað lenginguna snertir né heldur hitt, sem áður hefur verið farið. Þannig geta komið fyrir tilfelli, og þetta er víðar á landinu, þó að ég hafi nú nefnt dæmi, sem ég held að sýni, að það sé ekki til hóta að samþykkja brtt. Nú má segja, að þótt þetta væri sett inn í lögin, nái þau ekki til þessa, því að þetta sé ekki sama rútan nema að nokkru leyti, þegar búið er að lengja hana svona mikið. Það má segja það, og þó veit ég ekki, hvort það er hægt að standa á því og hafa að engu, ef lögunum verður breytt. Þess vegna held ég, að það sé ekkert til bóta að setja þetta inn í lögin, en hitt getur vel verið, að það megi setja í reglugerð eitthvað, sem sé aðhald, til þess að ekki sé gengið á snið við fyrri leigutaka, ef ekki eru einhverjar sérstakar knýjandi ástæður til þess, sem geta verið hér og þar, eins og á þessum stöðum, sem ég hef nefnt. Ég geri nú ráð fyrir, að flm. hafi aðallega hugsað um langleiðirnar, þegar hann samdi þessa till., og það náttúrlega er allt annað mál með þær en þessar í raun og veru stuttu leiðir, sem ég talaði um, en það eru líka sérleyfisleiðir, þótt stuttar séu.

Ég held þess vegna, að ef ráðherra vill taka upp og athuga, hvort það geti ekki komið inn í reglugerð ákvæði, sem eitthvað tryggja það, að ekki sé beint gengið fram hjá fyrri sérleyfishöfum að öðru jöfnu, ef menn eru hræddir um, að það verði gert, og treysta ekki nefndinni, þá muni það vera nóg, en eins og ég nú hef bent á, geta atvikin legið þannig, að það sé hagkvæmara fyrir fólkið, sem á að nota bílana, að skipt sé um sérleyfishafa. Það hefur verið margtalað um það t. d. þarna fyrir austan, hvort sérleyfishafi vildi ekki láta bílana vera í sveitunum, svo að þeir geti farið heiman að og í kauptúnið og heim aftur um kvöldið, en um það hefur ekki náðst samkomulag enn og næst ekki fyrr en það koma menn í sveitunum, sem eiga bíla og vilja taka ferðirnar.