30.01.1956
Efri deild: 55. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 784 í B-deild Alþingistíðinda. (666)
109. mál, fólksflutningar með bifreiðum
Jón Kjartansson:
Herra forseti. Ég hef ekkert að athuga við þessa skýringu, sem hv. 1. þm. N-M. (PZ) gaf hér. Ég vil aðeins taka það fram, að ég breytti ofur lítið orðalagi í seinni till. einmitt í samráði við hv. þm. til þess að fyrirbyggja, að þetta kæmi til árekstrar við það, sem hann talaði um.
En í sambandi við ummæli hæstv. ráðh. vil ég geta þess, að við 2. umr. lýsti ég því yfir, að ég vantreysti ekki á neinn hátt þessum hæstv. ráðh., að hann misnotaði ákvæði, sem fyrri brtt. mín fjallar um, alls ekki. Mér dettur ekki í hug, að hann fari á neinn hátt að misnota það. Ég aðeins gat þess þá, og því er ekki að leyna, að það geta komið þeir ráðh. í þetta embætti, sem misnota það. Og í trausti þess, að núv. hæstv. ráðh. geri það ekki, og einnig í trausti þess, að hann hafi reglugerð þannig, að það sé vinsamlega á seinni till. minni tekið, leyfi ég mér, herra forseti, að taka tillögurnar aftur.