23.02.1956
Neðri deild: 75. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 785 í B-deild Alþingistíðinda. (679)
158. mál, ríkisreikningar
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv. um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1953 er sniðið eftir ríkisreikningnum fyrir það ár, sem hefur verið lagður fyrir hv. Alþingi samtímis frv. Ég sé ekki ástæðu til þess að fylgja því úr hlaði með annarri framsögu en að benda á þetta og leyfi mér að óska eftir, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni 1. umr.