08.03.1956
Neðri deild: 83. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 786 í B-deild Alþingistíðinda. (682)
158. mál, ríkisreikningar
Frsm. (Jón Pálmason):
Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1953, er með venjulegum hætti. Frv. er byggt á tölum ríkisreikningsins, og hefur fjhn. borið saman tölurnar við reikninginn og ekkert fundið við það að athuga, enda vil ég taka það fram, að frágangur á þessum reikningi frá hálfu okkar ríkisbókhalds er að venju í bezta lagi.
Varðandi athugasemdir okkar yfirskoðunarmanna geri ég ráð fyrir, að hv. þdm. hafi litið yfir þær og kynnt sér, hvað þar er um að ræða. En fyrir hönd fjhn. sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða mikið um þær á þessu stigi, því að n. flytur enga till. í tilefni af þeim. Það er af okkar hálfu yfirskoðunarmanna ekki nema í einni aths., að í úrskurðartillögu er vísað til aðgerða Alþ., og það er varðandi miklar umframgreiðslur hjá Skipaútgerð ríkisins. Það mál er nú hér fyrir þinginu í till. fyrir Sþ., og skal ég á þessu stigi ekkert um það fjölyrða fyrir hönd fjhn. Eins og að undanförnu er það svo, að aths. yfirskoðunarmanna ganga aðallega út á tvennt, í fyrsta lagi að finna að því, að í ýmsum efnum sé of mikið greitt umfram ákvæði fjárlaga, og í öðru lagi, að það sé nokkuð mikið útistandandi af skuldum í árslok hjá ýmsum fyrirtækjum ríkisins. Þegar við leggjum það til, yfirskoðunarmenn, sem úrskurð á þessum ýmsu tillögum eða athugasemdum, sem við gerum, að þær séu ýmist til athugunar framvegis eða til eftirbreytni, þá eigum við við það, að forðazt sé, eftir því sem frekast eru föng á, að þau atriði endurtaki sig, sem yfirskoðunarmenn hafa fundið að. Að öðru leyti skal ég ekki fjölyrða neitt um þennan reikning, nema frekara tilefni gefist til, en mæli með því fyrir hönd fjhn., að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.