19.01.1956
Neðri deild: 44. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 823 í B-deild Alþingistíðinda. (725)

111. mál, tollheimta og tolleftirlit

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Fjhn. hefur lesið þetta frv. og borið það saman við gildandi lög.

Við 1. umr. málsins flutti hæstv. fjmrh. ýtarlega ræðu, þar sem hann gerði grein fyrir helztu nýmælunum, sem felast í frv. Ég sé því ekki ástæðu til að ræða um einstakar greinar frv., þar sem það yrði að mestu endurtekning á því, sem áður hefur komið fram í umr. um málið.

Eins og segir í nál. fjhn. á þskj. 250, er stefnt að því með flestum þeim lagabreytingum, sem felast í frv., að auðvelda tollgæzlunni eftirlit með innflutningi á vörum og gera það öruggara.

Fjhn. mælir einróma með því, að frv. verði samþ. með tveimur smávægilegum breytingum, sem till. eru um á þskj. 250. Eru það aðallega lagfæringar á orðalagi.