23.01.1956
Neðri deild: 48. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 824 í B-deild Alþingistíðinda. (728)

111. mál, tollheimta og tolleftirlit

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Ég vil geta þess í sambandi við brtt. fjhn. á þskj. 267, að þar er eingöngu um að ræða formsbreytingar á frv. til lagfæringar, og eru till. gerðar í samráði við skrifstofu Alþingis, en ekki er um neinar efnisbreytingar að ræða.