20.03.1956
Efri deild: 89. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í B-deild Alþingistíðinda. (749)
111. mál, tollheimta og tolleftirlit
Frsm. (Karl Kristjánsson):
Herra forseti. Hv. 1. þm. Eyf. hefur nú talað í þessu máli svo ýtarlega um mörg atriði, að ég sé ekki ástæðu til að halda hér langa ræðu. Þó vildi ég segja nokkur orð og þá sérstaklega vegna þess, að hv. þm. Vestm. vék nokkrum orðum að málfærslu minni sem frsm. meiri hl. á föstudaginn var, en við umr. þá las ég svör tollstjórans í Rvík. við aðfinnslum þeim, er skipafélögin hafa gert við frv. þetta, og einnig svör hans við fsp., sem ég gerði til hans út af þeim brtt., sem fram hafa komið frá minni hl. n. og eru á þskj. 437.
Hv. þm. Vestm. sagði, að það hefði litið svo út sem ég teldi álit tollstjórans í Rvík lykil vizkunnar í þessu máli. Ég fyrir mitt leyti lít svo á og fullyrði það, að tollstjórinn í Rvík sé manna bærastur að dæma um atriði þessa máls, og ég fullyrði líka, að þegar svör hans eru borin saman við aðfinnslur þær, sem komu frá skipafélögunum, þá verður lítið úr aðfinnslunum.
Hv. þm. Vestm. kallaði tollstjórann eða þá, sem samið hafa þetta frv., að mér virtist, tollstofumenn. Þetta finnst mér nokkuð langt gengið. Ég gat ekki séð, að hv. þm. Vestm. hefði í þessu máli í hendi sér lykil vizkunnar, a.m.k. hafði hann alls ekki fram að leggja lykil, sem gæti skotið loku fyrir, að tollsvik eigi sér stað, en það virðist mér fyrir mitt leyti vera aðalatriðið. Mér virtist ræða hans ganga út á það að víkka skrána, svo að erfitt yrði að skjóta loku fyrir.
Ég veit ekki, hvort það er rétt að fara mikið út í umr. þær, sem fóru fram á föstudaginn var, en mér er minnisstætt, að hv. þm. Barð. var hvað eftir annað að tala um hæstv. fjmrh., Eystein Jónsson, í sambandi við frv. og lét í það skina, að þar kæmi fram tollheimtufrekja. En mér virðist, að hann gæti hlíft sínum of næmu taugum í því sambandi, þegar það er vitað mál, að það er tollstjórinn, flokksbróðir hans, sem hefur samið frv.
Ég hygg, að álit tollstjórans, sem kemur fram bæði í frv. og í grg. hans í sambandi við þær athugasemdir, sem komið hafa fram við frv., sé einmitt hafið yfir alla flokkspólitík og firrur. Í því koma fram rök reyndasta mannsins, sem hægt er að fá til umsagnar í þessu máli, og enginn vafi er á því, að Alþingi á fyrst og fremst að taka tillit til reynslunnar í þessum efnum.
Ég efast ekki um það, að hv. þm. Barð. er mörgum mönnum kunnugri frá siglingaárum sínum starfsemi við afgreiðslur skipa, en hins vegar hygg ég, að hann geti þó ekki borið þekkingu sína saman við þekkingu tollstjórans í Rvík, sem lifir og hrærist í þessum málum eins og þau eru nú. Ég efast ekki heldur um, að þm. Vestm. hafi allmikla þekkingu á þessum málum, en fyrst og fremst sem kaupsýslumaður og innflytjandi, og hefur því alls ekki skilyrði til þess að meta þau frá öllum hliðum eins og tollstjórinn í Rvík.
Ég sé ekki mikla ástæðu til að tala hér um einstakar tillögur. Þó víl ég aðeins minnast á það í sambandi við það, sem hv. þm. Barð. talaði um afgreiðsluhafnir á föstudaginn var, að afgreiðsluhafnirnar eru fleiri en hann nefndi. Afgreiðsluhafnirnar eru 12, og það er fullyrt af fróðum mönnum, að þær séu fleiri hlutfallslega en gerist og gengur erlendis, t.d. í Noregi, sem befur þó langa strönd.
Hv. þm. Vestm. fann það frv. til foráttu, að í því væru teknar upp fyrirmyndir erlendis frá. Ég get ekki séð, að það sé til þess að vita, að höfð er hliðsjón af því, sem aðrar og reyndari þjóðir hafa í sínum lögum. Það er ákaflega eðlilegt, þegar breytt er lögunum frá 1937, en síðan eru stofnlögin, og með tilliti til þess, hvað breytzt hafa aðstæður hér við land, að þá sé leitað fyrirmynda, því að breytingarnar á háttum hér heima, vinnubrögð og flutningatækni hafa vitanlega færzt nær því, sem gerist hjá stærri þjóðum.
Ég minnist þess úr umr. frá því á föstudaginn, að hv. þm. Barð. minntist á í 3. brtt., að það væri fjarstæða að gefa tolleftirlitinu heimild til þess að ákveða, hvar skip skyldi afgreitt í höfn, og ég man, að hann sagði í því sambandi, að þetta yrði ekki framkvæmt, þetta væri ósanngjarnt, fyrst og fremst gagnvart hafnaryfirvöldum, og einnig væri fjarstæða, sagði hann, að lögbjóða það, sem ekki yrði framkvæmt. Hér er ekki um að ræða, að það sé fyrirskipað eða lögboðið, hér er aðeins um heimildarákvæði að ræða, sem tollstjóri leggur áherzlu á að sé nauðsynlegt að hafa í undantekningartilfellum. Hv. þm. Barð. sagði, að þetta tíðkaðist hvergi erlendis. Mig furðaði á, að hann skyldi segja það, af því að tollstjóri getur þess í bréfi sínu frá 13. f. m., að svona ákvæði séu erlendis, og tekur upp til sönnunar málsgreinar úr norskum, sænskum og enskum lögum, sem sanna þetta. Og hv. þm. Barð. hafði lesið þetta bréf í fjhn.
Það er ákaflega eðlilegt, að skipaafgreiðslurnar og kaupsýslumennirnir, sem hér hefur líka verið tekið upp sjónarmið fyrir, vilji ekki láta leggja á sig meiri kvaðir, til þess að hægt sé að framkvæma tolllöggjöfina, heldur en þau telja sér þægilegar og mæli á móti ákvæðum, svo lengi sem þessir aðilar fá aðstöðu til þess. En eins og hv. 1. þm. Eyf. benti á áðan, getur löggjafinn ekki nema að mjög takmörkuðu leyti tekið tillit til þess, þó að sá, sem lögunum á að lúta, kysi þau á annan hátt en nauðsyn krefur, til þess að þau geti notið sín.
Hv. 1. þm. Eyf. benti á, að hv. þm. Vestm. fór í raun og veru ósæmilegum orðum um afgreiðsluna í fjhn., talaði í því sambandi um sauðþráa og að nefndin hefði ekki gefið gaum að athugasemdum eða sinnt þeim. En hann minntist ekki á eitt í þessu sambandi, sem hv. þm. Vestm. lagði þó talsverða áherzlu á um starfsemi fjhn., og það var það, að það hefði verið aðeins eitt, sem n. hefði tekið til greina í framkomnum athugasemdum, og það var til breytinga á till. þeirri, sem flutt er í nál. og hv. þm. Vestm. taldi að komið hefði frá fjmrh. í því formi, sem ekki hefði komið til mála að fallast á. Ég benti á það um daginn og vil endurtaka það nú, að till. var ekki frá fjmrh., heldur var hún frá tollstjóranum, og hún er alveg í samræmi við þær kröfur, sem tollstjórinn hefur áður, oftar en einu sinni, lýst yfir, þegar hann hefur komið á fundi fjvn. Vilji þess vegna hv. þm. kasta að einhverjum fyrir þessa till., þá á hann að beina sínu kasti að tollstjóranum, en það væri vitanlega óverðskuldað, að það væri gert.
Hv. þm. Vestm. sagði, að sér þætti þó mest fyrir því, ef ekki yrði samþykkt till. sú, sem fyrir liggur um skipun nefndar til þess að endurskoða löggjöfina um tollheimtu og tolleftirlit, og hann sagði, að það hefði komið fram mótsögn hjá mér á föstudaginn var, þegar ég lýsti því yfir, að eins og lagt er til að n. sé skipuð, þá sé ekki gætt réttra hlutfalla. Hann sagði, að ég hefði verið óánægður yfir aðstöðu fjmrn. í nefndinni, og satt að segja finnst mér full ástæða til þess að benda á það, að þar er fjmrn. ekki ætlaður neinn sérstakur fulltrúi. Þar er gert ráð fyrir því, að tvö skipafélögin hafi sinn fulltrúann hvort, og það er gert ráð fyrir því, að í nefndinni sé hafnarstjórinn í Rvík. en svo er aðeins gert ráð fyrir tveim öðrum: tollstjóranum og húsameistara ríkisins. Við getum sagt, að skipafélögin eigi að hafa þar fulltrúa til að gæta hagsmuna sinna og þeirra, sem vörurnar flytja, hafnarstjórinn til að gæta hagsmuna hafnarinnar í Reykjavík og enn fremur náttúrlega til að upplýsa um það, sem snertir hafnir almennt. En tollstjórinn hefur svipuðu hlutverki að gegna og húsameistarinn, hann á að vera sá fræðilegi ráðunautur nefndarinnar, en fjmrn. er enginn sérstakur fulltrúi ætlaður, og þó er það vitanlega sá aðili, sem þarf að gæta hagsmunanna gagnvart skipafélögunum f.h. eiganda tollteknanna, ríkissjóðsins.
Það er langt frá því, að ég telji ekki tollstjórann hæfan til þess að vera í þessari nefnd. Ég tel fyrst og fremst alveg nauðsynlegt, að hann sé í nefndinni sem sá fræðilegi ráðunautur, og ég hef sem frsm. vitnað í hann sem sjálfsagðan fræðilegan ráðunaut fyrir Alþingi, þegar setja á þessa löggjöf. Þess vegna er engin mótsögn í því, þó að ég héldi því fram, að nefndin væri ekki rétt upp sett, þegar vantaði í hana þann raunverulega hagsmunafulltrúa ríkisins.
Eins og ég benti á á föstudaginn var, tel ég, að nefndarskipunin sé óþörf. Ég tel, að svo vel hafi verið unnið að samningu þessa frv., að það sé óþarft að skipa nefnd til þess að vinna verkið upp. Ég tel, að réttara sé að biða og sjá, hvernig löggjöfin reynist. Það er ágætt að skipa nefndir, en það á þó að stilla í hóf nefndaskipunum, enda kostnaður við þær alltaf nokkur. Mér finnst ástæðulaust í þessu tilfelli að skipa nefnd, það sé að bera í bakkafullan lækinn eða ætlast til þess, að kembd sé upp kemba, sem fullkembd er fyrir.