20.03.1956
Efri deild: 89. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í B-deild Alþingistíðinda. (750)
111. mál, tollheimta og tolleftirlit
Jóhann Jósefsson:
Herra forseti. Það eru örfá orð til þess að svara þeim hv. þingmönnum, sem talað hafa af hálfu meiri hlutans. Minn ágæti vinur, hv. 1. þm. Eyf., komst dálítið í vandræði, þegar hann ætlaði að fara að finna í hinu borgaralega lífi hliðstæðu við ákvæði frv., hliðstæðu við það, að hér á fjmrn. að ráða því, hver fái að afgreiða skip fyrir eitthvert félag, hverju nafni sem það nefnist, hér við strendur landsins. Og hv. þm. hafnaði á fiskmatsmönnum. Ég þarf ekki að skýra það út fyrir svo mætum manni sem honum, að hér er um gersamlega ólíka hluti að ræða. Fiskmatsmenn eru opinberir starfsmenn, eins og við báðir vitum, og þeir eru skipaðir af opinberu valdi, skipaðir af því opinbera. Afgreiðslumenn skipa eru ráðnir af skipafélögunum og starfa, eins og ég hef tekið áður fram í umræðum um þetta mál, að því er snertir að öllu leyti þær hliðar, er varða almenning og varða yfirvöldin, á ábyrgð þess húsbónda, sem hefur ráðið þá, sem eru skipafélögin, svo að ég held að athuguðu þessu og þótt lengra væri rakið, að við gætum orðið sammála um það, að hliðstæðan er ekki enn þá í lögum. En hún kann að eiga eftir að koma. Það er ekki ómögulegt, að fleiri ráðuneyti vilji hafa hönd í bagga með ráðningum í borgaralegt starf víðs vegar um land, ef svo ber við að horfa, að það þyki þægilegt eða heppilegt að hafa það.
Þá sagði hv. 1. þm. Eyf., að það væri ekkert undarlegt, þó að ríkisvaldið vildi hafa hönd í bagga með höndlun eða meðferð á vörum, sem ríkissjóður, þó að hann ætti þær ekki, ætti stórra hagsmuna að gæta um, þar sem væri tollgreiðslugjald. Það skil ég vel, og það er ekki neitt nýtt. Til þess eru tolllögin, og til þess er tolleftirlitið í landinu. Það eru þeir, sem eru útsendarar ríkisvaldsins til þess að hafa eftirlit fyrir hönd ríkisvaldsins með vörunum, sem skipafélögin og þeirra undirmenn, bæði skipverjar og afgreiðslumenn, hafa með höndum og eiga svo að lenda í höndum þeirra móttakenda, sem hafa keypt þær og ætla sér að eignast eða eiga. Þessar röksemdir hv. 1. þm. Eyf. hnekkja á engan hátt því, sem ég sagði. Það getum við vist verið sammála um.
Ég tel þvert á móti við það, sem hv. þm. S-Þ. sagði, að það sé æskilegt að styrkja tollafgreiðsluna, og það er þá alveg óþarfi fyrir hann að vera að drótta því að mér, að ég vildi veikja hana, því að ég margtók það fram, að ég álíti, alveg eins og hefur komið í ljós hjá hv. minni hl., að það þyrfti að efla aðstöðu tollgæzlunnar, en ekki á skakkan hátt. Það er ekkert í þeim till., sem hv. minni hl. flytur og ég sagðist aðhyllast líka, sem hv. þm. S-Þ. getur bent á sem veikjandi fyrir tollgæzluna, raunverulega tollgæzlu, og þess vegna vísa ég í hans garð aftur þeim ásökunum, að athugasemdir minar við frv. séu gerðar í þeim hug, að ég vilji veikja eða skemma tollgæzluna. Þvert á móti hef ég tekið það skýrt fram, að viturlegasta till., sem fyrir liggur í þessu máli, bráðabirgðaákvæðið á þskj. 437, sé nauðsynlegt, vegna þess að þar er lagður grundvöllurinn að staðgóðri og framkvæmanlegri tollgæzlulöggjöf.
Þá sagði hv. þm., að það væri ekki þess vert að vera að hafa á móti fyrirmyndum, sem sóttar væru til útlandsins, og út af fyrir sig er ég ekkert að hafa á móti því, svo lengi sem þær fyrirmyndir eru okkur þénanlegar til góðrar eftirbreytni hér á landi og framkvæmanlegar. Það, sem ég gerði aths. við, var það, að tollfrumvarpið væri samið af mönnum, sem einblindu á aðstæður í útlöndum, sem væru ekki hér fyrir hendi og yrðu því pappírsgagn, þar sem væri verið að setja lög og miða við útlendar aðstæður, meðan engar slíkar væru hér, aðstæður, sem kannske m.a. fela það í sér, að tollyfirvöldin hafa alveg lokaðar hafnirnar, eins og víða er, og hver maður, sem eftir vissan tíma eða hvenær sem er dagsins þarf að fara þar um hliðin, verður við tollheimtumenn að tala á leiðinni. Slíkt er ekki til hér í Reykjavík, en það þyrfti að verða til, og að því miðar einmitt bráðabirgðaákvæðið hjá hv. minni hl. í þessu máli, sem hv. þm. S-Þ. vill ekki hagnýta, að mér heyrist.
Hv. þm. S-Þ. var að tala um það, að ég hefði viljað kasta einhverju að einhverjum. Ég tel mig ekki kasta neinu, hvorki að fjmrh. né neinum öðrum ráðh., þó að ég geti þess, að frv. er borið fram vitaskuld fyrir fjmrh., og af því ber fjmrh. náttúrlega ábyrgð á því; það veit hv. þm. eins og ég. Það er ekki tollstjórinn, sem lætur bera þetta frv. hér fram. Það er fjmrh., og þess vegna er það borið fram fyrir hans hönd. Af því leiðir, að hin nýja skattálagning, sem fyrir lá í frv. (Gripið fram í: Það lá ekki fyrir í frv. Það er tekið upp úr bréfi frá tollstjóra.) — jæja, eða inn í það komst, er samt sem áður á ábyrgð fjmrn., hún getur ekki verið á annarra ábyrgð. (Gripið fram í: Einnig fjárhagsnefndar.) Ja, líka.
Ég þarf svo ekki fleira um þetta að segja hvað ræður hv. fjárhagsnefndarmanna snertir, að ég held. Ég held ég sé búinn að mótmæla því, sem þurfti að mótmæla, og skal ekki vera að teygja neitt lengri ræðuhöld um þetta efni. En ég held satt að segja, að þó að þeir hafi talið mig fara hér með ósæmilegt orðbragð, þá hafi sú gagnrýni, sem hv. minni hl. hefur haft hér í frammi á frv., sú gagnrýni, sem frá hafnarstjórninni, frá Eimskipafélagi Íslands, frá Sambandi íslenzkra samvinnufélaga og frá verzlunarráðinu hefur komið fram á þetta frv., sé þess eðlis, að það þurfi að vera menn með sérstöku hugarfari og mér liggur við að nefna enn þá sauðþráa, sem ekki álita hagnýtandi eina einustu aths. frá hálfu þessara manna við þessa lagasmíði, sem hér liggur fyrir. Menn mega svo kalla það ósæmilegt, ef þeir vilja, en þetta kemur mér svona fyrir sjónir.
Ég benti á það í fyrri ummælum mínum, að það væri dálítil missögn í því eða mishyggja hjá hv. þm. S-Þ., þegar hann teldi tollstjórann svo alvarlegt vitni og gagn í þessu máli, sem hann vissulega er, að það þyrfti ekki að svara neinum andmælum nema með bréfi frá honum, en þegar um það er að ræða, að nefnd, skipuð af ýmsum aðilum, ætti að ræða um þetta mál, þá væri tollstjórinn alls ekki nægilegur sem fulltrúi fyrir fjmrn. Mér heyrist, að hann sé enn þá þeirrar skoðunar, og þykir undarlegt, að hann geti ekki skilið það, hverra hagsmuni tollstjóri hefur fyrir augum í sínu starfi. Mér þykir eðlilegt, að það séu hagsmunir ráðuneytisins, enda er það víst, að bæði núverandi tollstjóri og allir fyrri tollstjórar lita fyrst og fremst á hag ráðuneytisins eða ríkissjóðs í sínu starfi.