28.03.1956
Efri deild: 105. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í B-deild Alþingistíðinda. (939)

128. mál, ríkisborgararéttur

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Herra forseti. Í Nd. hafa bætzt inn á frv. sjö nöfn. Þau lágu ekki fyrir, þegar frv. var hér í d., og n. hér, sem hafði málið til meðferðar, hefur þess vegna ekki athugað gögn þessara manna. Hins vegar fór ég með mönnum úr Nd. í gegnum þau og get vottað það, að þeir, er nöfnin bera, uppfylla þau skilyrði, sem Alþingi yfirleitt hefur sett til að taka menn inn með ríkisborgararéttindum, þannig að ég get talað fyrir n. hönd, þótt ekki hafi unnizt tími til fundarhalds, því að það eru þau skilyrði, sem n. hafði komið sér saman um, sem eru uppfyllt, og mælt með því, að frv. sé samþykkt eins og það nú liggur hér fyrir.

Hins vegar er ákaflega óviðfelldið að vera að fá þessar umsóknir, eina í dag og aðra á morgun, allt þingið út, alveg fram á síðustu daga, og það ætti að athuga í framtíðinni, hvort ekki væri hægt að komast fyrir þetta með því annaðhvort að taka bara þá, sem gengu í gegnum stjórnarráðið, áður en þingið kæmi saman, ellegar skera niður einhvern dag á þinginu og segja: þá, sem komnir eru fyrir þennan dag, tökum við, hina ekki, — en vera ekki alltaf að smátína þetta inn og svo alltaf þar af leiðandi að smábreyta frv., af því að nýir og nýir bætast við. Þetta er til athugunar fyrir framtíðina, en eins og málið liggur fyrir hér, þori ég f. h. nefndarinnar að mæla með því, því að þessir menn, sem við var bætt, uppfylla sömu skilyrði og þeir, sem inn í frv. voru áður komnir.