12.10.1955
Neðri deild: 3. fundur, 75. löggjafarþing.
Sjá dálk 45 í B-deild Alþingistíðinda. (97)

11. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Svo sem fjárlagafrv. ber með sér og nánar verður rætt, þegar almennar umr. um fjármál fara fram á hv. Alþingi, sem verður mjög bráðlega, má ríkissjóður ekki neins í missa af tekjum þeim, sem hann hefur haft. Hér er því lagt til í þessu frv. að framlengja söluskattinn eins og hann hefur verið.

Leyfi ég mér að óska þess, að málinu verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari 1. umr.