28.01.1957
Neðri deild: 46. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1015 í B-deild Alþingistíðinda. (1020)
99. mál, sala og útflutningur sjávarafurða o. fl.
Ólafur Thors:
Herra forseti. Mér nægir alveg þessi stutta aths. Það var ekkert veigamikið í ræðu hæstv. sjútvmrh., sem ég var ekki búinn að koma að í mínum fyrri ræðum.
Það, sem á milli ber í þessum umræðum, er, hvort það sé nokkur þörf fyrir nýja lagasetningu. Ég hef haldið því fram, að hæstv. ráðh. hafi allar þær heimildir í gildandi lögum, sem hann nú vill sækjast eftir með nýrri löggjöf, og mér hefur ekki fundizt hann færa nein gagnrök gegn því. Ég skal þar alveg sérstaklega vitna í ræðu hv. 5. þm. Reykv. og raunar til ýmissa fyrri ummæla minna. Ég spurði svo hæstv. ráðh., hvað væri nýtt í þessari lagaheimild, og hæstv. ráðh. sagði: Það á að skipa nefnd. — Það var nú, ef ég man rétt, í gömlu reglugerðinni, settri 1940 í sambandi við framkvæmd á þessum lögum frá 11. febr. 1940, þar var einmitt gert ráð fyrir sérstakri nefnd, og hún var sett á laggirnar til ráðuneytis fyrir ráðherra. Í öðru lagi sagði hæstv. ráðherra: Það á að hafa eftirlit með þeim, sem flytja út vöruna, og ríkisstj. vill með því móti tryggja sér nánari kunnugleika á því, sem fram fer. Í þriðja lagi viljum við með þessu gera ráðstafanir til öflunar markaða.
Ég vil um tvö fyrri atriðin segja, að ef ráðh. telur, að þetta sé svona áríðandi, bæði með nefndarskipunina og eftirlitið, þá endurtek ég það, sem ég áður hef sagt: Hann hefur allar slíkar heimildir og þarf ekki ný lög fyrir því. Og varðandi markaðsöflunina skal ég hreinskilnislega játa: Ég hef nú ekki neina trú á því, að stjórnskipuð nefnd bæti nokkuð um eða við það, sem þeir aðilar hafast að, sem nú fara með þessi mál, síldina, hraðfrysta fiskinn og saltfiskinn, enda er honum vel kunnugt um, að þeir aðilar, sem um þessi mál fjalla, hafa mjög vel gegnt þeirri skyldu að rannsaka möguleika fyrir nýjum mörkuðum.
Og fátt er nú orðið um varnir, þegar hæstv. ráðh. segir: Hvað sem rökunum líður, þá stendur það alveg eftir, að sjálfstæðismenn finna á sér, að eitthvað er í vændum í þessum efnum, og þess vegna eru þeir nú svona viðkvæmir fyrir þessu öllu.
Ég hef ekkert farið dult með það, að ég tel, að ráðh. hafi það vald, sem hann þarf, til að koma á sérhverri þeirri meðferð þessara mála, sem hann hefur trú á. Það, sem okkur ber á milli, er hins vegar það, að hann hyggur, að það sé óhætt og líklega til bóta að beita öðrum aðferðum en ég hef talið nauðsynlegt að beita. Þetta er hreinn málefnalegur ágreiningur á milli okkar, sem kannske ekkert sker úr nema reynslan. Það er þá bara mín von, að reynslan verði ekki of dýr. Ég hyggst hafa fært að því alveg málefnaleg rök, á hverju þessi ótti minn byggist. Þeim rökum hefur ekki verið mótmælt með gagnrökum, sem hafa sannfært mig, og ef ráðherrann, sem nú hefur valdið að óbreyttum lögum og líka að breyttum lögum, hefur aðra skoðun og framkvæmir hana, þá segi ég: Ég vil aðeins hafa aðvarað.
Ég endurtek svo að lokum, að það er ekkert nýtt í þessu frv. Ég tel enga þörf fyrir það, og mér hefur ekki fundizt ráðherrann hafa sterka sannfæringu fyrir sínu máli. Ég vona svo, að ráðh. verði við þeim tilmælum mínum að styðja að því, að framleiðendur í landinu komi saman til fundar og segi sína skoðun. Ráðh. hefur byggt sína stefnu, að mér skilst, í þessum málum meira á nýjum viðhorfum, sem hann telur sig hafa orðið varan við, heldur en á sinni eldri sannfæringu. Ég kannast ekki við, að hann hafi haft sig í frammi um miklar breytingar sem útgerðarmaður. En mér finnst ósköp eðlilegt, að ráðh. vilji taka tillit til þess, sem útvegsmenn óska, og það er það sama, sem ég vil gera. Og mér finnst það ekki nema hans skylda að standa með mér að því, að sannar upplýsingar komi í ljós, með því að slíkur fundur framleiðenda yrði haldinn. Og ég segi fyrir mig, ég er alveg reiðubúinn að mæta á slíkum fundi og rökstyðja mínar skoðanir, og ég álít, að við getum gert það báðir án þess að þurfa neinn kinnroða að bera fyrir, að við erum ekki sammála um meðferð þessa máls.
Ráðh. sagði hér á föstudaginn var, að það væri mikill misskilningur, ef ég héldi, að hann væri að beina að mér einhverjum dylgjum í þessu máli um, að ég væri með einhverja eiginhagsmuni. Ég veit ekki, hvort hann hefur lesið sunnudagsprédikun blaðsins síns um þjófnaðinn og múturnar og annað því um líkt. En ekki hefur hann látið leiðrétta róginn. En hvað um það. Rétt er að ræða þetta mál málefnalega og reyna ekkert að fela skort á sannfæringu með stóryrðum og brigzlyrðum. Ég vona sem sagt, að við getum átt kost á því að tala um þetta í áheyrn útgerðarmanna og ganga úr skugga um, hver er þeirra vilji.