05.03.1957
Neðri deild: 62. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1017 í B-deild Alþingistíðinda. (1022)

99. mál, sala og útflutningur sjávarafurða o. fl.

Frsm. meiri hl. (Gísli Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir á þskj. 193 til 2. umr., er flutt af ríkisstj. Sjútvn. hefur ekki orðið sammála um afgreiðslu þess. Minni hl., hv. þm. Borgf. og hv. þm. Snæf., mælir gegn frv., en meiri hl., hv. þm Siglf., hv. 2. landsk. og ég, leggur til, að það verði samþykkt. Ég leyfi mér í sambandi við þetta að vitna til nál. meiri hl. á þskj. 298.

Í lögum nr. 11 frá 12. febr. 1940, um sölu og útflutning á vörum, segir svo í 1. gr., með leyfi hæstv. forseta: „Ríkisstjórninni er heimilt að ákveða, að engar vörur megi bjóða til sölu, selja til útlanda eða flytja úr landi nema að fengnu leyfi hennar og með þeim skilyrðum, er hún setur.“ Í 3. gr. sömu laga, segir: „Ríkisstjórninni er heimilt að ákveða, að engir megi bjóða til sölu, selja til útlanda eða flytja vörur úr landi aðrir en þeir, sem til þess hafa fengið sérstaka löggildingu ríkisstj“ Og í 4. gr. laganna segir: „Ríkisstjórnin getur falið nefnd, er hún skipar, að fara með það vald, er henni er veitt samkv. lögum þessum.“ Enn fremur er í lögunum frá 1940 heimild til að setja reglugerð og að þar megi m.a. ákveða greiðslu kostnaðar við framkvæmd laganna.

Þetta er aðalefni þeirra laga, sem nú eru í gildi um sölu og útflutning vara. Samkvæmt þeim hefur ríkisstj. meira en hálfan annan áratug haft mikið vald í þessum efnum. Samkvæmt þessum lögum hefur ríkisstj. t.d. haft vald til þess að löggilda aðeins einn útflytjanda í saltfiskverzluninni, og með því að gera það hefur hún veitt þessum aðila einkasölu á saltfiskframleiðslu landsmanna.

Eins og nú standa sakir, er skipulag útflutningsverzlunarinnar með sjávarafurðir í meginatriðum á þá leið, sem ég nú mun nefna, samkv. því, sem skýrt er frá í athugasemdum við stjórnarfrv. á þskj. 193.

Sölusamband ísl. fiskframleiðenda hefur haft einkaútflutning á saltfiski. Síldarútvegsnefnd hefur haft með höndum allan útflutning á saltsíld. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Samband ísl. samvinnufélaga og fiskiðjuver ríkisins hafa annazt allan útflutning á frosnum fiski. Hins vegar hefur útflutningur á skreið, fiskimjöli, lýsi og nokkrum öðrum vörum verið í höndum ýmissa aðila.

Þá er enn þess að geta, að útflutningur á frosnum fiski, skreið, fiskimjöli og lýsi og nokkrum minni vörutegundum hefur verið háður útflutningsleyfum og eftirliti af hálfu ríkisins.

Eins og kunnugt er, hefur það ekki verið óalgengt í seinni tíð og raunar bæði fyrr og síðar, að komið hafi fram í blöðum og á mannfundum, m.a. hér á hinu háa Alþingi, gagnrýni á því fyrirkomulagi að veita Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda einkaleyfi til útflutnings á saltfiski. Tel ég ekki þörf á að rekja það mál.

Hins vegar hefur verið minna um gagnrýni á öðrum greinum útflutningsverzlunarinnar, enda þar ekki um einkaútflutning að ræða, nema á saltsíldinni, en síldarútvegsnefndin, sem hefur haft þann útflutning með höndum, hefur þá sérstöðu að vera opinber stofnun, starfandi samkv. sérstökum lögum og kosin að meiri hluta af Alþingi. Virðist yfirleitt hafa verið gott samkomulag um að fela henni einkasölu á saltsíldinni frá ári til árs, samkvæmt heimildarákvæði laga um það efni. Mér sýnist flest benda til þess, að heppilegast muni að halda því fyrirkomulagi áfram.

Ég er líka þeirrar skoðunar, að það þurfi út af fyrir sig ekki að vera óheppilegt fyrirkomulag að hafa einkasölu á útflutningsvörum, en um réttmæti þess fer þó að sjálfsögðu mjög eftir því, hversu til tekst og hvernig farið er með einkasöluréttinn. Skiptir þá líka miklu málí, að þannig sé um búíð, að sem minnst hætta sér á tortryggni meðal almennings í garð skipulagsins eða þeirra, sem þar hafa forustu, og er það almenn staðreynd, sem naumast verður um deilt.

Í frv. því, sem hér liggur fyrir, er á ýmsan hátt nánar ákveðið en verið hefur um meðferð þess valds, sem ríkisstj. var fengið með lögunum frá 1940, um sölu og útflutning sjávarafurða. Samkvæmt því, þ.e.a.s. þessu frv., ber ráðh. að skipa þriggja manna útflutningsnefnd sjávarafurða, er hafi með höndum veitingu útflutningsleyfa, en um löggildingu útflytjenda svo og um greiðslu kostnaðar við framkvæmd laganna o.fl. má ákveða í reglugerð. Nefndin skal og samkv. frv. hafa forgöngu um markaðsleit og tilraunir til að selja sjávarafurðir á nýja markaði eða auka sölu þeirra á eldri mörkuðum. Um starfsemi n. og skyldur útflytjenda gagnvart henni eru svo nánari ákvæði í 1., 2. og 3. gr. frv. Í 4. gr. er heimilað að láta starfsemi n. taka til fleiri vara en sjávarafurða. Í 6. gr. eru sektarákvæði. Og með 7. gr. eru, ef frv. verður að lögum, lög nr. 11 12. febr. 1940 felld úr gildi, þ.e.a.s. lögin, sem ég gat um áðan, um sölu og útflutning á vörum.

Sjútvn. hefur haldið nokkra fundi um málið og sent það ýmsum aðilum til umsagnar, og skal ég um það vísa til nál. meiri hl. á þskj. 298. Niðurstöður þessara umsagna eru ekki samhljóða um afstöðu til frv., og er skýrt frá því nánar í nál., hverja afstöðu hver einstakur aðili, sem leitað var umsagnar hjá, hefur tekið til frv. Hins vegar hefur hv. minni hl. látíð prenta kafla úr flestum þessara umsagna á þskj. 309.

Eins og tekið er fram í nál., hafa ýmis þar til greind samtök útflytjenda svo og Landssamband ísl. útvegsmanna mælt gegn frv. Það virðist yfirleitt gert með þeim rökum, að ekki sé heppilegt að breyta því útflutningsskipulagi, sem nú er. Hins vegar er því haldið fram af sumum aðilum í þessu sambandi, að í frv. sé ekkert nýtt, aðeins endurtekning þess, sem nú sé í lögum. Þetta hvort tveggja fær hins vegar varla staðizt samtímis. Sannleikurinn er sá, að það er á valdi ríkisstj. samkv. gildandi lögum t.d. að löggilda fleiri en einn útflytjanda í saltfiskverzluninni. En ríkisstj. hefur talið rétt að leggja nú fyrir Alþingi frv. til nýrra laga, þar sem nánar sé ákveðið um meðferð þess valds, sem henni er fengið með lögunum frá 1940, og um að fela það að verulegu leyti stjórnskipaðri nefnd, sem hafi það hlutverk að sinna sérstaklega þessum málum.

Þessu er meiri hl. sjútvn. samþykkur, enda er það út af fyrir sig fullkomlega eðlilegt, að ríkisstj. láti endurskoða lög, sem sett voru fyrir 16 árum og þá á óvenjulegum tímum.

Ég get ekki heldur séð, að í grg. þeirra aðila, sem látið hafa nefndinni í té slíkar grg. um kosti og galla einkasölu og frjálsrar sölu afurða úr landi, felist rök gegn því frv., sem hér liggur fyrir.

Niðurstaðan er því sú, að meiri hl. leggur til, að frv. verði samþykkt, og skal ég svo ekki hafa um það fleiri orð að sinni.