07.03.1957
Neðri deild: 63. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1044 í B-deild Alþingistíðinda. (1032)
99. mál, sala og útflutningur sjávarafurða o. fl.
Karl Guðjónsson:
Herra forseti. Við þessar umr. rifjast það nokkuð upp fyrir mér, einkanlega undir ræðu hv. þm. G-K. (ÓTh), að á síðasta kjörtímabili mælti hann úr þessari sömu ræðukompu fyrir frv. einu, sem þáverandi ríkisstj. lagði fyrir Alþ. um breytingar á innflutningi til landsins, þ.e.a.s. um innflutningsskrifstofuna o. fi. Þetta frv. hófst á orðunum: „Frjáls skal vera innflutningur“ o.s.frv. Og hann var hreint ekkert lágkúrulegur yfir þessu stóra stefnumiði Sjálfstfl., sem þarna væri komið í verk með því að setja nú þessi tiltölulega fallegu orð fremst á frv. um innflutning til landsins. Síðan fór hv. þm. G-K., sem þá var forsrh., mörgum og fögrum orðum um það, að með því að hafa innflutninginn til landsins jafnfrjálsan og hann vildi vera láta að frv. markaði, mundi það bæta hag þjóðarinnar ekki á einn, heldur á alla kanta, það mundi lækka vöruverð í landinu, það mundi auka samkeppni, það mundi skila betri vörum o.s.frv., o.s.frv., og allt þetta taldi hann vera því að þakka, að sjálfstæðismenn hefðu náð undir sig það miklum völdum í landinu, að þeir gætu nú komið fram þeim hugsjónum sínum að hafa verzlunina sem allra frjálsasta. Það er svo annað mál, þó að hans menn, stuðningsmenn þeirrar ríkisstj. sæju það, þegar þeir fóru að glöggva sig betur á frv., að þessi upphafsorð þess voru geip eitt, og þeir strikuðu þau út og töldu þau vera í fullkomnu ósamræmi við aðrar ákvarðanir frv. Og það varð endirinn á, að þetta frv. var að vísu samþykkt, en þessar skrautfjaðrir þáverandi forsrh. voru strikaðar út úr því. En ég minnist þess líka, að við þessar umr. lagði ég fram brtt. um, að þetta frelsi skyldi einnig ná til útflutningsins. Þá reis upp þáverandi hæstv. forsrh. og varð að vísu alveg eins hnarreistur yfir því og sagði, að það væri engin þörf á því að hafa þau mál með neinu frelsi, þau væru nú einmitt þannig, að útflytjendurnir sjálfir, þ.e.a.s. framleiðendurnir sjálfir, eins og hann kallaði þá, réðu þessu öllu saman, þar væri í rauninni ekki hægt neinu við að bæta og þar væri orðið frelsi með öllu óþarft.
Ég hef nú aldrei skilið það, ef frelsi í innflutningi er ákaflega nauðsynlegt og til mikilla heilla, hvers vegna Sjálfstfl., sem berst fyrir því, að því er hann sjálfur segir, þó að hann sýni það ekki svo mjög í reynd, þegar hann getur þeim hlutum ráðið, — ég hef aldrei skilið það, hvers vegna frelsi í útflutningi getur ekki verkað á svipaðan hátt. Ég skal taka fram, að í þeirri till., sem ég gerði um, að þetta frelsi, sem það frv. talaði um, næði til útflutningsins, var það þeim skilyrðum bundið, að ríkisstj. gæti ákveðið lágmarksverð, til þess að ekki kæmi til þess, að íslenzkir aðilar byðu niður íslenzkar framleiðsluvörur á erlendum markaði hver fyrir öðrum. En á slíkt var ekki hlustað. Samtök allra fiskframleiðenda fóru með útflutning á fiski. Það var kenning þeirra sjálfstæðismanna, og því er verið að reyna að halda fram enn þá.
Ég vil í fyrsta lagi taka það fram, að þetta er alger firra. Það eru alls ekki samtök allra fiskframleiðenda, sem eiga hlutdeild í Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda. Ég hef áður bent á, að þar er aðeins um þá menn að ræða, sem eru eigendur fisks, ekki endilega framleiðendur. Þeir hafa ekki allir eignazt hann og fæstir af þeim að nokkrum hluta sem framleiðendur. Þeir hafa keypt hann. Þetta eru þess vegna verzlunarmenn að verulegu leyti, kaupmenn. Eigendur að meira en helmingi af þeim afla, sem að landi er dreginn á Íslandi, eru sjómenn, og þeir eiga enga hlutdeild sem slíkir í Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda. Þeir eru þar algerlega útilokaðir, fá þar ekki eitt atkvæði. Þar er atkvæðisréttur bundinn við þorskkíló. Sá, sem á þetta mörg kíló af þorski, hefur þetta mörg atkv., og þeir útreikningar, sem hv. þm. G-K. hefur hér verið að gefa á því, að það hafi einungis 4 atkv. komið fram gegn því áliti, sem Sjálfstfl. hér flytur, á fundi í Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda, segir ekkert um það, hvern hug fiskframleiðendur að meiri hluta bera til þessara mála.
Ástæðan er sem sagt sú, að í fyrsta lagi er það bara lítill minni hluti af fiskframleiðendum, sem á fulltrúarétt eða atkvæðisrétt í Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda, og í öðru lagi eru fulltrúar þangað kosnir með þeim hætti, að t.d. þar sem um samlög er að ræða, sem flytja út fisk eða selja fisk frá sér, þá er það bara meiri hl. í samlagi, sem kýs fulltrúana, og það geta verið fjöldamargir fiskframleiðendur í því, sem eru mjög óánægðir með stefnu S.Í.F. í útflutningsmálum eða stefnu Sjálfstfl. í útflutningsmálum, þó að þeir eigi ekki fulltrúa á þeim fundum, sem S.Í.F. kallar saman, þegar þeim finnst það henta.
Sú firra, að það sé meiri hl., að maður nú ekki tali um, að það séu allir fiskframleiðendur, sem hér eiga hlut að máli og hafi samlagið á sinni hendi, er næsta fáránleg.
Við skulum nú hugsa okkur, að Framsfl., sem telur sig eiga flestum flokkum meiri samstöðu með Sambandi ísl. samvinnufélaga, hefði einhverju sinni komið því inn í lagabálka eða reglugerðir, sem byggðar voru á l., að t.d. allar matvörur og öll vefnaðarvara skyldi vera í einkasölu hjá S.Í.S. Þá hefði samt sem áður þurft mikla ósvífni af þeirra hálfu til þess að halda því fram, að þar væri um að ræða samstöðu allra neytenda í landinu, en það hefðu þeir auðvitað getað með sama rétti og Sjálfstfl. reynir hér að túlka það, að Sölusamband ísl. fiskframleiðenda sé samtök allra fiskframleiðenda á Íslandi. Framsóknarmenn hefðu getað sagt undir slíkum kringumstæðum: Jú, það eru að vísu fleiri, sem éta mat og klæðast fötum, heldur en þeir, sem eru í S.Í.S., en þeir eru ekki raunverulegir neytendur, af því að þeir kaupa þetta ekki inn í landið. Þetta væru hliðstæðar röksemdir, og vænti ég þess, að Sjálfstfl. mundi hafa töluvert við þær að athuga, ef þeim væri haldið hér fram á þeim grundvelli, sem ég hef nú lýst, að hægt væri að gera með nákvæmlega sama rétti og Sjálfstfl. hefur túlkað hér Sölusamband ísl. fiskframleiðenda sem samlag allra íslenzkra fiskframleiðenda.
Ég skal svo taka það líka sérstaklega fram, að það er engan veginn þýðingarlaust, að sá hluti framleiðenda, sem ekki eru útflytjendur sjálfir, þ.e.a.s. fyrst og fremst sjómennirnir, eigi fullan aðgang að því og geti fylgzt með því, hvernig sölu íslenzkra sjávarafurða er yfirleitt varið. Það eiga þeir alls ekki um þessar mundir að því er varðar salfiskútflutninginn. Ég get bent á það, að einmitt þetta saltfisksölufyrirtæki, sem hér hefur aðallega verið rætt um, hefur iðulega selt stóran hluta af íslenzkum saltfiski beint í hendurnar á okkar aðalkeppinautum á heimsmarkaðinum um þessa vöru, Færeyingum og Norðmönnum, og það hefur meira að segja komið fyrir, að það hafa verið valdar úr íslenzkum fiski þær stærðir, sem helzt gátu bætt upp smærri fiskinn, og seldar Norðmönnum, til þess að þeir gætu komið út sínum smáa fiski.
Það er ekki nema eðlilegt, meðan engar skýringar liggja fyrir um slíka hluti, að sá hluti íslenzkra framleiðenda, sem ekki á þess kost að fylgjast með því, hvernig þessi vinnubrögð ganga fyrir sig, vilji fá þannig breytt fyrirkomulag á afurðasölunni, að það sé a.m.k. hægt að fá einhverjar skýringar á svona fyrirtæki og svona verslunarháttum. Það hefur heldur aldrei verið gefin nein skýring á því til fiskframleiðenda íslenzkra almennt, hvernig á því stendur, að þetta saltfisksölufyrirtæki, S.Í.F., leggur 1.2 millj. kr. í íbúðabyggingar í Morgunblaðshöllinni hér í Reykjavík og lætur þær standa auðar og ónotaðar. Mér er alls ekki grunlaust um, að þetta komi niður á fiskverðinu til landsmanna, og ég hygg, að það væri engu tapað, þó að þeir, sem framleiða fisk á Íslandi, fengju aðgang að einhverri stofnun, sem gæti gefið skýringar á svona hlutum. Það er sem sagt ekki alveg einhlítt, hvað Sjálfstfl. stendur óskaplega fastan vörð um það, að það skuli ekki vera opnuð nein smuga fyrir almenna fiskframleiðendur á Íslandi til þess að fylgjast með því og til þess að eiga rétt til að sjá, hvernig afurðasölunni er varið. Ég lít svo á, að það frv., sem hér liggur fyrir, jafnvel þó að það breyti ekki skipulaginu á afurðasölunni stórlega, opni möguleika til þess, að þeir, sem raunverulega framleiða, geti líka fengið að vita, hvað hægt er að fá fyrir fiskinn og hvernig sala hans fer fram. Ég bendi enn fremur á, að þetta er ekkert lítilvægt atriði. Á hverju einasta ári fara fram samningar um það milli útgerðarmanna og sjómanna, hvaða verð sjómenn skuli fá fyrir sinn aflahlut, og það er kunnara en svo, að hér þurfi sérstaklega að rekja þá sögu, að oftlega hefur komið til meiri háttar framleiðslutruflana vegna þess, að sjómenn hafa haldið því fram, að eðlilegt fiskverð til þeirra gæti verið hærra en þeir gátu a.m.k. með auðveldu móti náð samningum um.
Það er alveg ástæðulaust að láta íslenzka fiskiflotann liggja kannske mánuðum saman aðgerðalausan, vegna þess að ekki næst samkomulag um fiskverð, ef það er í rauninni svo, að ágreiningurinn byggist ekki á neinum efnahagslegum ágreiningi í raun og veru, heldur eingöngu á hinu, að annar aðilinn, sem þarna á hlut að máli, fær bókstaflega ekki tækifæri til þess að vita um það, hvaða verð hægt er að fá fyrir íslenzkar sjávarafurðir. Allt, sem miðar í þá áttina, að hinir raunverulegu fiskframleiðendur, hvort sem þar er um að ræða útgerðarmenn eða sjómenn, geti átt aðgang að því að vita hið rétta um, hvernig afurðasalan gengur fyrir sig, hlýtur að vera bætandi fyrir atvinnulífið og er líklegt til þess að geta komið í veg fyrir þær framleiðslutruflanir, sem á mörgum undanförnum árum hafa háð íslenzku framleiðslunni.
Ég gæti nú máske spurt þá, sem hér telja sig helzt vera í fyrirsvari fyrir einkasamtök saltfiskútflytjenda og halda því fram, að alveg sé óhugsandi, að málum geti á nokkurn annan hátt verið betur skipað í afurðasölunni en gert er hjá þeim samtökum: Hvers vegna kölluðu þeir ekki saman ráðstefnu um það, hvort þeir ættu nú að leggja verulegt fjármagn af fé samtakanna í áróðursmiðstöð Sjálfstfl.? Einhvern veginn töldu þeir ekki ástæðu til þess að kalla neina ráðstefnu saman um það. Ég gæti líka spurt: Hvers vegna hafa þeir ekki gefið neina skýringu á því, að verulegur hluti af íslenzkri saltfiskframleiðslu hefur oft verið seldur beinum keppinautum Íslendinga á mörkuðum? Það mætti máske ætlast til þess af slíkum forsvarsmönnum, að þeir létu eitthvað uppi um það, af hverju slíkir hlutir, sem vissulega eru tortryggilegir í augum þeirra, sem ekki hafa á þeim aðrar skýringar en hinn almenni borgari, — af hverju þeir gefa ekki upplýsingar um það, hvernig á slíkum hlutum getur staðið, þegar þeir eru að útskýra það hér fyrir okkur fávísum alþm., að enginn hlutur geti verið jafngagnlegur og S.Í.F. að því er varðar sölu á íslenzkum sjávarafurðum.
Ég vænti þess að fá svar við slíkum spurningum, og raunar er ýmislegt fleira, sem vert væri að spyrjast fyrir um, ef við ætlum að halda hér áfram að ræða um, hversu ágætur og ómissandi félagsskapur þau samtök eru, sem hér hafa aðallega verið til umr.
Mér virðist á hv. Sjálfstfl., að hann heri eingöngu kviðboga fyrir afdrifum Sölusambands ísl. fiskframleiðenda og ekki öðrum samtökum í sambandi við það lagafrv., sem hér er til umr. Nú gerir þetta lagafrv. alls ekki ráð fyrir því að taka neinn rétt af S.Í.F. nema einkaréttinn. Einkarétt eiga þeir að vísu ekki að fá, en ef þeir geta selt saltfisk miklu betur en allir aðrir, þá ættu þeir ekki að vera í neinni hættu með að hafa áfram á hendi saltfisksöluna, þegar það frv., sem hér liggur fyrir, er orðið að lögum, ef það á fyrir því að liggja, sem ég vænti að hljóti að verða.
Áður en ég lýk máli mínu, vil ég alveg sérstaklega taka það fram, að slíkar blekkingar, að hér sé um að ræða samtök allra þeirra, sem framleiða fisk á Íslandi, eru með stærstu ósannindum, sem ég hef yfirleitt heyrt menn flytja hér í málum á Alþingi. Ég hef sýnt fram á það, að hér er eingöngu um að ræða samtök manna, sem ekki hafa sem framleiðendur yfir að ráða nema minni partinum af íslenzkri fiskframleiðslu. Sjómennirnir eru eigendur að meiri hluta hennar. Þetta veit ég að hv. Sjálfstæðisflokksmenn vita, ef þeir á annað borð vilja vita það, og ég held, að þeir ættu líka að haga málflutningi sínum hér á Alþingi í samræmi víð þessa staðreynd.