11.03.1957
Neðri deild: 65. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (1042)
99. mál, sala og útflutningur sjávarafurða o. fl.
Frsm. minnt hl. (Pétur Ottesen):
Ég gat þess við 2. umr. þessa máls, að ef svo færi, að hin rökstudda dagskrá, sem minni hl. sjútvn. lagði til að mál þetta yrði afgreitt með, yrði felld, þá mundum við ef til vill flytja brtt. við frv. núna við 3. umr. Höfum við því lagt hér fram brtt., sem að aðalefni til er breyting á 1. gr. frv. Það er aðeins lítils háttar breyting einnig við 2. gr., en bara til samræmingar við það, sem yrði, ef brtt. okkar við 1. gr. yrði samþykkt.
Í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að sjútvmrh. eða sá ráðh., sem fer með sjávarútvegsmál, skipi 3 manna n., sem nefnist útflutningsnefnd sjávarafurða. Með þessu frv. er sú breyting gerð á gildandi l. um þetta efni, að nú á sjútvmrh. einn að fara með öll þau mál, sem snerta útflutning sjávarafurða, í stað þess að í gildandi lögum er gert ráð fyrir, að ríkisstj. hafi þetta öll með höndum. En um aðrar útflutningsvörur, sem þá eru sérstaklega landbúnaðarvörur, íhlutun um þær á hins vegar að heyra undir ríkisstj. alla.
Ég benti á það í umr. um þetta mál við 2. umr., að ég teldi dálítið einkennilegt, miðað við efni þessa máls, að þessi mál skyldu ekki framvegis, svo sem verið hefur allar götur frá því 1940, heyra undir ríkisstj. alla. En það var litið þá svo á, að þetta væri svo mikilvert atriði og gripi svo mjög inn á þýðingarmikið starfssvið, sem er útflutningur sjávarafurða, að eðlilegt væri, að þetta væri í höndum ríkisstj. allrar, þó að í framkvæmdinni um ýmis atriði væri það að sjálfsögðu sá ráðh., sem fer með sjávarútvegsmál, sem væri þar í fararbroddi um framkvæmdina. Þannig er þetta einnig nú að því er snertir innflutninginn eða íhlutun um innflutningsverzlunina, að það mál, þ.e.a.s. innflutningsnefndin, sem hefur það með höndum, heyrir undir ríkisstj. alla, en ekki einstakan ráðh. Það virðist því vera ákaflega eðlilegt, að sama skipulagið sé á um þetta hvort tveggja, því að hér er algerlega um hliðstæður að ræða, sem er útflutningurinn annars vegar og innflutningurinn hins vegar. Þess vegna felur þessi breyting það í sér m.a., að þetta heyri undir ríkisstj. alla.
Í öðru lagi er gert ráð fyrir því með þessari brtt., að Alþ. kjósi þessa 3 manna n., í stað þess að í frv. er gert ráð fyrir, að ráðh. geri það.
Við í minni hl. litum svo á, að úr því að það þykir rétt að fara að lögfesta að nýju ákvæði um þetta og að Alþ. geri það í stað þeirra heimildarlaga, sem ríkisstj. hefur nú í þessu efni frá 1940, þá verði sú skipun á höfð, að Alþ. kjósi þessa n., og virðist það þá vera í meira samræmi við venjulegan gang slíkra mála, að sú aðferð verði við þetta höfð. Það, sem í þessari brtt. feist, er það, að í stað þess, að ráðh. skipi nú n., kjósi Alþ. hana, og í stað þess, að í frv. er gert ráð fyrir því, að útflutningur sjávarafurða heyri undir sjútvmrh. einan, sé það ríkisstj. öll, sem hafi þetta með höndum, svo sem nú er í gildandi l. um þetta efni.