15.03.1957
Efri deild: 70. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1080 í B-deild Alþingistíðinda. (1051)
99. mál, sala og útflutningur sjávarafurða o. fl.
Jón Kjartansson:
Herra forseti. Þegar hæstv. sjútvmrh. lagði þetta mál hér fyrir í hv. d., gat hann þess í upphafi máls sins, að samkvæmt gildandi lögum hefði ráðh. ótakmarkað vald til þess að setja sérhverjar þær reglur, sem honum sýndist, um sölu og útflutning sjávarafurða. Það væri því ekki vöntun lagaákvæða, sem ylli því, að þetta mál væri fram borið, heldur væri ástæðan sú, sagði hæstv. ráðh., að rétt þætti, að Alþ. setti þær reglur, sem gilda ættu um þessi atriði.
Nú er það að sjálfsögðu svo, að þau lög, sem í gildi eru og að dómi hæstv. ráðh. veita honum óskorað vald til að setja sérhverjar þær reglur, sem honum sýnist, voru sett af Alþ. á sínum tíma. Hér er því ekki um nýmæli að ræða. Alþ. hefur sett reglur, sett lög um meðferð þessara mála, sem veita ráðh. þetta vald. Væri hins vegar ætlunin sú með flutningi þessa frv. að draga að einhverju leyti úr hinu óskoraða valdi ráðherra, flytja það t.d. á Alþingi að einhverju leyti, þá væri skiljanlegt, að þetta frv. er komið fram, og þá ætti það víssulega einhvern tilverurétt.
En hvernig er svo þessu háttað í sjálfu frv.?
Í 1. gr. þess segir, með leyfi hæstv. forseta: „Ráðh. sá, sem fer með sjávarútvegsmál, skipar þriggja manna nefnd, sem nefnist útflutningsnefnd sjávarafurða. Jafnframt skal skipa varamenn. Ráðh. skipar formann nefndarinnar.“
Hér er því ekki um neina efnisbreytingu að ræða, aðeins vill ráðh. fá lögfest, að það skuli vera þrír menn, í stað þess, að nú er það einn maður, sem fer með þetta mikla vald í umboði ráðh. En ráðh. getur sett eins marga menn og honum sýnist yfir þessi mál. Hann getur haft þá tvo, þrjá, fjóra, fimm eða hve marga sem honum sýnist. Það er ekkert því til fyrirstöðu að lögum.
Það kom glögglega í ljós, að það var ekki ætlun ráðh. að afsala sér nokkru af því valdi, sem bann hefur nú. Það kom fram í Nd. brtt. við 1. gr. frv. um að láta Sþ. kjósa í nefndina í stað skipunar ráðh. Hæstv. ráðh. lagðist gegn þessari till., og hún var felld. Allt virðist hér því vera eintómur sjónleikur.
Hæstv. ráðh. vildi sem minnst gera úr umsögnum félagasamtaka framleiðenda, sem fyrir liggja í þessu máli. Hann lét sér meira að segja sæma að segja, að málið hefði verið ranglega túlkað fyrir þessum aðilum. Ég spyr: Í hverju var þessi ranglega túlkun fólgin? Hví nefnir ekki ráðh. þetta, og hví segir hann ekki hv. deild frá því, hvernig þetta var?
En þar sem ráðh. hefur aðeins komið með þessa staðhæfingu, hlýtur hún að falla niður dauð og ómerk. Sjálft málið lá greinilega fyrir öllum þessum aðilum, sem umsögn hafa gefið, og þeir vissu því glögglega, hvað það var, sem þeir voru að gera.
Hæstv. ráðh. sagði, að umsögn félagasamtakanna væri komin frá fáeinum „hinna stóru“, hinir smærri víðs vegar úti um land hefðu hins vegar ekkert látið til sín heyra, og skilja mátti, að þeir væru á móti þessum umsögnum. Ég leyfi mér þá að spyrja: Hví í ósköpunum láta þessir menn ekkert til sín heyra, ef þeir telja þessar umsagnir rangar eða þeir eru á móti þeim? Hví þegja þeir? Ég sé ekki betur en að þögn þeirra hnekki algerlega þeirri fullyrðingu ráðh., að þeir séu á móti umsögnunum.
Ég vil að síðustu að gefnu tilefni frá hæstv. ráðh. ræða nokkuð afstöðu Sambands ísl. samvinnufélaga til þessa máls.
Þegar hæstv. ráðh. var að svara hv. þm. N-Ísf., sagði hann, að í samþykktum Sambands ísl. fiskframleiðenda væri svo fyrir mælt, að ef aðili innan samtakanna hefði ekki sagt sig úr fyrir 1, marz, þá væri litið svo á, að hann yrði í samtökunum áfram. En hæstv. ráðh. bætti því við, að þetta væri dauður bókstafur, sem allir hefðu fyrir löngu gleymt, og þetta væri ein af ástæðunum fyrir því, að S.Í.S. hefði ekki sagt sig úr samtökunum. Það væri m.ö.o. gleymska, en ekki viljaleysi. Hvað er hæft í þessari fullyrðingu hæstv. ráðh? Og hví í ósköpunum er hann að flytja þetta hér inn í deildina? Hann veit, að hér fer hann með rangt mál.
Samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum, sem ég hef fengið, hefur S.Í.S. síðustu þrjú árin öll sagt sig úr samtökunum, en jafnan með þeim fyrirvara, að ef það hefði ekki tilkynnt fyrir 1. marz, að það óskaði að vera með, stæði úrsögn þess í fullu gildi.
Af þessu er ljóst, að það er ekki gleymska af hálfu S.Í.S., að það hafði ekki sagt upp. Það er eitthvað annað. Og nú er sérstök ástæða til þess að spyrja enn fremur: Hver var afstaða S.Í.S. einmitt nú, eftir að þetta frv. er fram komið frá hæstv. ráðh.? Hver er afstaðan?
Nú er aðstaðan öll sú, að S.Í.S. hlaut að geta gengið út frá, að það yrði fyrsti aðili, sem yrði löggiltur til þess að vera útflytjandi, hliðstæður öðrum þeim stærstu, sem það væru. Það er augljóst mál. En hvað gerði S.Í.S.? Það fór nákvæmlega eins að og áður, sagði upp, en tilkynnti fyrir 1. marz, að það óskaði að vera með í samtökum S.Í.F. áfram. Þetta er sannleikur málsins. Þetta ættu a.m.k. þingmenn Framsfl. að íhuga, áður en þeir láta teyma síg lengra út í ófæruna.
Benda má og á það, að S.Í.S. hefur umboð hinna smærri framleiðenda víðs vegar útí um land, sem ráðh. vildi gefa í skyn að væru andvígir umsögnum þeim, sem fyrir liggja.
Mér sýnist því allt á sömu bókina lært. Það eru engin frambærileg rök fram borin, sem styðja það, að þetta mál er flutt á Alþingi.