01.04.1957
Efri deild: 80. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1123 í B-deild Alþingistíðinda. (1065)

99. mál, sala og útflutningur sjávarafurða o. fl.

Frsm. minni hl. (Sigurður Bjarnason):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja tvær brtt. ásamt hv. þm. Vestm. við þetta frv. Fyrri brtt. er um það, að nefnd sú, sem gert er ráð fyrir í 1. gr. frv., skuli kosin af Alþ. hlutbundinni kosningu til tveggja ára í senn, í stað þess að gert er ráð fyrir í frv., að nefndin verði skipuð af sjútvmrh. Leggjum við til, að 1. gr. frv. verði orðuð þannig:

„Sameinað Alþingi kýs hlutbundinni kosningu til tveggja ára í senn þrjá menn í nefnd, sem nefnist útflutningsnefnd sjávarafurða. Jafnmargir varamenn skulu kosnir samtímis og á sama hátt. Nefndin kýs sér formann. Með samþykki ríkisstjórnarinnar getur útflutningsnefnd sjávarafurða ráðið sér starfsmenn, eftir því sem nauðsyn krefur.“

Breytingin, sem í okkar till. felst, er sem sagt fyrst og fremst sú, að við leggjum til, að í stað þess, að ráðh. skipi nefndina, verði hún kosin hlutbundinni kosningu af sameinuðu Alþingi til tveggja ára í senn.

Að því þarf naumast að færa rök, að þessi háttur er miklu eðlilegri og lýðræðislegri, að Alþ. kjósi slíka n., heldur en að skipun hennar verði á valdi ráðherra eins.

Þá leggjum við til í brtt. okkar, sem er önnur brtt. á þskj. 383, að þar sem talað er um „ráðherra“ í 2. gr. frv., skuli koma „ríkisstjórninni“. Einnig þetta er eðlilegri háttur, að ríkisstj. í heild hafi það vald, sem þarna um ræðir, en ekki einstakur ráðherra. Hefur svo einnig verið í þeim lögum, sem í gildi hafa verið um þessi efni frá 1940.

Ég vænti, að úr því að hv. þd. hefur ekki viljað fallast á þá till. okkar fulltrúa Sjálfstfl. í sjútvn. að vísa þessu óþurftarmáli frá, þá verði þó a.m.k. á það fallizt að samþykkja þær brtt., sem hér liggja fyrir og ég hef nú lýst.