25.10.1956
Neðri deild: 5. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1130 í B-deild Alþingistíðinda. (1071)
10. mál, dýravernd
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Upphaf þessa lagabálks er það, að Dýraverndunarfélag Íslands sneri sér til fyrrv. menntmrh. (BBen) og mæltist til þess, að frv. um þetta efni yrði samið. Ráðherrann fól í okt. 1955 Ármanni Snævarr prófessor að semja frv. til nýrra dýraverndunarlaga, og samdi hann frv. það, sem hér liggur nú fyrir til 1. umr. Fyrir vangá hefur láðst að geta þess í grg., að höfundur frv. sé Ármann Snævarr prófessor, og bið ég velvirðingar á því.
Í grg. frv. er m.a. rakin rækilega saga dýraverndarlöggjafar hér á landi. Það er athyglisvert og hefur menningarsögulega þýðingu, að upptök fyrstu heildarlaga um dýravernd hér á landi, opins bréfs frá 29. ág. 1862, má að nokkru rekja til erindis, sem Alþingi barst 1859 frá fundi í Þingmúla. Sýnir sú samþykkt, og það er sú staðreynd, sem er mjög athyglisverð, að alþýða manna hér á landi hefur haft ríkan og vakandi áhuga á dýravernd á þeim tíma. Til hins sama bendir hin mikla og almenna gagnrýni, sem 299. gr. hegningarlaganna frá 1869 sætti, en samkv. því ákvæði, sem kom í stað hins opna bréfs, mátti refsa manni fyrir þrælslega misþyrmingu eða aðra grimmdarfulla meðferð á skepnum, einkum húsdýrum. Þetta ákvæði var hins vegar svo þröngt að efni til, að það reyndist haldlítið í framkvæmd. Beitti Dýraverndunarfélag Íslands sér mjög fyrir því, að ný löggjöf yrði sett um þetta efni, og fyrir atbeina þess var flutt frv. til dýraverndunarlaga á Alþingi 1915. Naut frv. mikils fylgis í þinginu og var staðfest sem lög nr. 34 frá því ári.
Þessi lög voru síðan lítið breytt í gildi fram til þess, er almenn hegningarlög voru sett 1940. Þá var horfið að því ráði að taka 1. gr. laganna frá 1915 upp í hin almennu hegningarlög, sbr. 179. gr. þeirra laga, en efni laganna frá 1915 hélzt að öðru leyti óbreytt.
Þannig hefur lagasetningin frá 1915 um dýravernd verið frumlög um þessi efni í rösk 40 ár. Þessi lög voru mikil réttarbót á sínum tíma, en hafa reynzt orðin úrelt að ýmsu leyti.
Við samningu þessa frv. hafa dýraverndunarlögin frá 1915 og 179. gr. hinna almennu hegningarlaga verið tekin til endurskoðunar. Meginsjónarmiðið hefur verið það, að kröfur almennings til aukinnar dýraverndar hafa aukizt. Enn fremur hafa verið höfð til hliðsjónar dýraverndarlög á Norðurlöndum, en þau eru tiltölulega nýleg, og sömuleiðis þýzk dýraverndarlög.
Þar sem í lagabálki þessum er um að ræða ýmis nýmæli, bæði að formi til og efni, og mörg þeirra merkileg, vildi ég leyfa mér að fara nokkrum orðum um þau og vekja sérstaka athygli á þeim, sem ég tel helzt.
Þess er þá fyrst að geta, að í þessu frv. er horfið að því ráði að nema ákvæði um dýravernd úr almennum hegningarlögum. Í þess stað er lagt til, að heildarrefsiákvæði um illa meðferð á skepnum verði í einum lögum, í lögum um dýravernd. Hér er því lagt til, að aftur verði tekinn upp sami háttur og hafður var á í dýraverndunarlögunum frá 1915. Með þessari skipan vinnst það, að dýraverndarlög verða heildarlög um þessi efni, enda er illgerlegt að kveða náið á um illa meðferð á skepnum í einu hegningarlagaákvæði.
Frumatriði dýraverndarlaga er að sjálfsögðu að kveða á um, hvaða meðferð á skepnum skuli teljast vítaverð og refsiverð. Um þetta er fjallað í I. kafla frv. Þar er mörkuð sú stefnuyfirlýsing, að skylt sé að fara vel með dýr, svo að þau þjáist ekki að nauðsynjalausu. Ég vil vekja athygli á því, að hér er mönnum beinlínis boðið að fara vel með skepnur, en ekki látið við það eitt sitja að banna illa meðferð á dýrum. Auk þessa almenna boðorðs í 1. gr. eru síðan gerðar ýmsar nánari kröfur til eigenda dýra eða forráðamanna í öðrum ákvæðum frv. Hlýtur það að teljast ávinningur að sérgreina þær kröfur, sem ber að gera til forráðamanna dýra, m.a. sakir þess, að almenningi verða þá ljósari þau víti, sem ber að varast í þessum efnum. Bannákvæði I. kafla laganna um almenna meðferð dýra eru mun sérhæfðari en áður var. Í 4. gr. er ákvæði um tamningu dýra eða ögun, og mun það vera nýmæli, og hið sama á við um 4. gr. frv., þar sem lagt er til, að leyfis lögreglustjóra verði að leita til þess að efna til dýrasýninga hér á landi. Slíkar sýningar hafa farið mjög í vöxt hin síðari ár, og er full þörf á, að ríkisvaldið hafi nokkur afskipti af þeim. Þá er einnig í 4. gr. nýmæli, sem varðar stofnun dýragarða. Í 5. gr. er og nýmæli, en hún fjallar um eyrnamörkun dýra.
Þá er í I. kafla enn fremur lögð ríkari skylda en áður var á forráðamenn dýra til þess að sjá þeim fyrir viðunandi vistarverum og fóðri. Í 6. gr., sem er að mestu nýmæli, er eiganda dýrs gert að skyldu að sjá dýri fyrir hæfilegri umönnun, ef það slasast eða sýkist. Þá er og í 7. gr. nýmæli, þar sem það er gert að skyldu að gæta þess við flutning á dýrum, að þau njóti hæfilegs aðbúnaðar. Flutningar á dýrum í ýmsum samgöngutækjum fara nú mjög í vöxt, og mun ekki vanþörf á því að brýna fyrir mönnum að hlynna vel að dýrum við slíka flutninga.
Í II. kafla laganna eru ákvæði um deyðingu dýra og aðgerðir á dýrum. Í núgildandi lögum eru ekki ákvæði, sem skylda forráðamenn dýra til að leita löggiltra dýralækna til þess að framkvæma slíkar aðgerðir á dýrum. Er þetta andstætt því, sem mælt er fyrir um í Norðurlandalöggjöf og löggjöf margra annarra menningarríkja. Virðist tímabært að setja um þetta ákvæði hér á landi.
Í III. kafla eru nokkur ákvæði um notkun dýra í vísindalegum tilgangi. Þessi ákvæði eru ný að stofni til í íslenzkum lögum. Notkun dýra í þessu skyni fer mjög í vöxt hér á landi, og virðist æskilegt, að opinberu eftirliti verði þar komið við. Í samræmi við það er lagt til, að sá, sem notar dýr í þessu skyni, þurfi að fá til þess opinbert leyfi. Þá eru einnig fyrirmæli um að skylda menn til að deyfa dýr, ef því verður við komið, þegar þau eru notuð í þessu skyni.
Í IV. kafla eru síðan ákvæði, er lúta að réttarvörzlu í sambandi við framkvæmd laganna. Löggæzlumönnum er þar boðið að hafa vakandi auga með því, að menn hlíti ákvæðum frv., ef að lögum verður, og getur lögreglustjóri skyldað forráðamenn dýra, að viðlögðum dagsektum, til að bæta úr því, sem talið er ábótavant um aðbúnað að dýrum. Skeyti hlutaðeigandi aðill því ekki, er gert ráð fyrir því, að lögreglustjóri geti hlutazt til um framkvæmd á fyrirmælum á kostnað eiganda dýrsins.
Í gildandi lögum eru ekki sérstök ákvæði um stjórn dýraverndarmála, en þörf virðist að skipuleggja þau mál betur en nú er gert. Í samræmi við það er í V. kafla lagt til, að menntmrn. hafi yfirstjórn þessara málefna, en sérstök nefnd, dýraverndarnefnd, aðstoði ráðuneytið um stjórn þeirra.
Í grg. er það rakið rækilega, að dýraverndarmálefni lúta víða um lönd landbúnaðarráðuneyti. Hér á landi hefur þróunin hins vegar óðfluga stefnt í þá átt að fela menntmrn. yfirstjórn friðunarlöggjafarinnar í beild. Þetta á t.d. við um fuglafriðunarmálefni og náttúruvernd. Þess vegna hefur verið talið heppilegt að láta þessa löggjöf einnig lúta menntmrn. Hitt er svo ljóst, að mikil og náin samvinna þarf að vera á milli menntmrn. og landbrn. um framkvæmd dýraverndarlöggjafar. Ástæða þess er m.a. sú, að yfirdýralæknir, sem mjög fjallar um dýraverndarmálefni, lýtur landbrn., og auk þess eru sumir þættir þessara mála nátengdir málum, sem landbrn. fer með. Engu að síður hefur niðurstaðan orðið sú að leggja til, að þessi mál heyri undir menntmrn., í því skyni, að friðunarlöggjöfin öll lúti einu og sama ráðuneyti.
Í Vl. og síðasta kaflanum eru ákvæði um refsingu og önnur viðurlög við brotum. Meginákvæðið þar er það, að heimilt skuli vera að svipta mann, sem hefur gerzt sekur um stórfellt og ítrekað brot á dýraverndarlöggjöf, heimild til þess að eiga dýr eða hafa þau í vörzlu sinni.
Þetta eru helztu atriði frv., og hef ég einkum vakið athygli á þeim, sem telja má til nýmæla. Ég er þeirrar skoðunar, að nái frv. þetta fram að ganga, verði aukið mjög mikilvægum þætti í íslenzka friðunarlöggjöf.
Að svo mæltu leyfi ég mér að leggja til, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til hv. menntmn.