22.02.1957
Efri deild: 61. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í B-deild Alþingistíðinda. (1083)

10. mál, dýravernd

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Frv. þetta er komið frá hv. Nd., sem afgreiddi málið með mjög óverulegum breytingum. Meginbreytingarnar voru þær, að felld var niður ein grein í frv., eins og það var upphaflega, 9. gr., sem fjallaði um geldingu dýra, og breyting var gerð á 15. gr., sem fjallar einkum og sér í lagi um meðferð sjúkra og lemstraðra dýra og deyðingu þeirra. Hvorug þessara breytinga getur talizt mikilvæg, svo að málið kemur fyrir þessa hv. deild í aðalatriðum í sama búningi og það var lagt fyrir hv. Nd. Ég sé því ekki ástæðu til að fara mörgum orðum um málið hér, en vildi þó aðeins vekja athygli hv. þingdeildar á helztu meginatriðum þess.

Við samningu þessa frv., sem var undirbúið af fyrrverandi hæstv. menntmrh., Bjarna Benediktssyni, en hann hafði falið Ármanni Snævarr prófessor að semja frv., voru dýraverndunarlögin frá 1915 og 179. gr. almennra hegningarlaga tekin til athugunar og höfð til hliðsjónar. Meginsjónarmiðið hefur verið, að kröfur almennings til aukinnar dýraverndar hafa á undanförnum árum stóraukizt. Við undirbúning málsins var enn fremur höfð hliðsjón af dýraverndarlögum á Norðurlöndum og í Þýzkalandi. Gildandi dýraverndarlög hafa verið í gildi svo til óbreytt frá 1915, en áður höfðu um dýravernd ekki verið önnur ákvæði í l. en ákvæði 299. gr. hegningarlaganna frá 1869.

Í þessu frv. er horfið að því ráði að nema almenn ákvæði um dýravernd úr hegningarlögum. Í stað þess er lagt til, að heildarrefsiákvæði um illa meðferð á skepnum verði í einum lögum, þ.e. lögum um dýravernd. Þessi háttur var tekinn upp í dýraverndunarl. frá 1915. Þegar hegningarl. voru endurskoðuð 1940, var aftur horfið að þeirri reglu, sem gilt hafði fyrir setningu fyrstu dýraverndunarl. frá 1915, að ákvæði voru tekin upp í hin almennu hegningarlög um refsiverða meðferð á skepnum.

Frumatriði allra dýraverndarlaga er að sjálfsögðu að kveða á um, hvaða meðferð á skepnum skuli teljast refsiverð eða vítaverð. Í þessu frv. er mörkuð sú almenna stefnuyfirlýsing, að skylt sé að fara vel með dýr, svo að þau þjáist ekki að nauðsynjalausu. Það er rétt að vekja sérstaka athygli á því, að í þessu frv. er mönnum beinlínis boðið að fara vel með dýr, en ekki látið við það sitja að banna illa meðferð á dýrum.

Þá eru og sérgreindar nokkrar þær kröfur, sem gerðar eru til forráðamanna dýra, til þess að almenningi verði ljósari þau viti, sem varast ber í þessum efnum. Allmiklu ríkari skylda er nú lögð á forráðamenn dýra en áður um að sjá þeim fyrir viðunandi vistarverum og fóðri. Þá er eiganda dýrs einnig gert að skyldu að sjá dýri fyrir hæfilegri umönnun, ef það slasast eða sýkist. Varðandi flutning á dýrum er gert að skyldu, að þess sé gætt, að þau njóti hæfilegs aðbúnaðar. Flutningar á dýrum fara nú mjög í vöxt í ýmsum samgöngutækjum, og hefur ekki verið talin vanþörf á því að brýna fyrir mönnum að hlynna vel að dýrum í sambandi við slíka flutninga.

Í upphaflega frv. var gert ráð fyrir því að skylda forráðamenn dýra til þess að leita löggiltra dýralækna til að framkvæma aðgerðir á dýrum, en þetta ákvæði var fellt úr frv. í hv. Nd., eins og ég gat um í upphafi máls míns.

Þá eru og í frv. nokkur ákvæði um notkun dýra í vísindalegum tilgangi, og eru þessi ákvæði nýmæli í íslenzkum lögum. Notkun dýra í þessu skyni fer mjög í vöxt, bæði hér og annars staðar, og hefur þótt hæfilegt, að opinberu eftirliti verði beitt í þessu sambandi. Hér er gert ráð fyrir því, að sá, sem notar dýr í þessu skyni, þurfi að fá til þess opinbert leyfi. Fyrirmæli eru enn fremur um það, að skylt skuli að deyfa dýr, þegar því verður viðkomið, þegar þau eru notuð til vísindalegra rannsókna.

Í gildandi l. eru ekki sérstök ákvæði um stjórn dýraverndarmála, en það hefur þótt eðlilegt að skipuleggja þau mál nokkru betur en nú er gert.

Í þessu frv. er gert ráð fyrir því, að yfirstjórn dýraverndarmála verði í menntmrn. Sá háttur er þó viða annars staðar, að þessi mál lúta landbúnaðarráðuneytum. Var þetta mál rætt mjög ýtarlega í menntmn. Nd., og sýndist mönnum þar nokkuð sitt hvað um þetta efni. Niðurstaðan varð þó sú eftir rækilega athugun, að n. varð sammála um, að þeim hætti skyldi haldið, sem gert var ráð fyrir upphaflega í frv., þ.e., að menntmrn. skyldi hafa yfirstjórn allra mála, er varða dýravernd, en hins vegar bætt inn í ákvæði um það, að leita skyldi tillagna Dýraverndunarfélags Íslands, Búnaðarfélags Íslands, Dýralæknafélags Íslands og Hins ísl. náttúrufræðifélags, eftir því sem við verði komið, við setningu reglugerða og annarra stjórnvaldsreglna um dýravernd. Vona ég, að samkomulag geti einnig orðið um það í þessari hv. deild, að þessi háttur verði á hafður, enda hefur það á síðari árum orðið meginstefna í íslenzkri löggjöf að sameina yfirstjórn allra friðunarmála, þ. á m. dýraverndarmála, í einu og sama ráðuneyti, menntmrn. Hitt er svo sjálfsagt og nauðsynlegt, að á milli þess og landbrn. sé jafnan náin samvinna, þar eð dýraverndarmálin snerta mjög ýmis atriði, sem þar koma til meðferðar.

Í þessum fáu orðum hef ég vakið athygli á þeim ákvæðum frv., sem ég tel að helzt megi telja til nýmæla. Það er skoðun mín, að nái þetta frv. fram að ganga, sé þar með aukið mikilvægum þætti í íslenzka friðunarlöggjöf, og vildi ég því leyfa mér að mælast til þess við hv. deild, að hún taki málið þann veg til meðferðar, að það auðnist að afgreiða það á þessu þingi.

Að svo mæltu leyfi ég mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. menntmn.