06.12.1956
Sameinað þing: 15. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2310 í B-deild Alþingistíðinda. (109)

Endurskoðun varnarsamningsins

Bjarni Benediktsson:

Herra forseti. Ég tel að vísu, að ég eigi rétt á því að halda hér fullkomna ræðu, vegna þess að fyrr í kvöld talaði ég eingöngu um þingsköp, um það, hvort ástæða væri til þess og rétt að hefja þessar umræður algerlega undirbúningslaust og án þess að stjórnarandstaðan fengi í hendurnar og til athugunar þau gögn, sem allar umræður hljóta að hvíla á. En auðvitað hlíti ég úrskurði forseta og mun ekki troða illsakir við hann af þeim sökum. Ef hann vill varna mér máls, hefur hann vald til þess, og raunar gæti hann eins sagt, að við töluðum hér allir af hans miskunn, því að þetta eru ekki reglulegar umræður, heldur utan dagskrár og efasamt, hvort þær eru heimilar í fyrsta lagi, og þá í öðru lagi, hvort nokkur má tala annar en ráðherrann, sá sem gefur skýrsluna. En látum það eiga sig.

Ég vildi bara taka það skýrt fram strax, að því fer mjög fjarri, að svör hæstv. ráðh. við þeim fyrirspurnum, sem ég bar upp, væru fullnægjandi. Hann yfirleitt leiddi hjá sér, þó að hann talaði fagurlega og skynsamlega um málið, eins og hans var von og vísa, að svara þeim einföldu spurningum, sem fyrir hann voru bornar.

Ég skal ekki fara að rekja þær allar nú, en aðeins minna á það, að hann skýrði ekki, svaraði ekki því, hvort stj. öll er sammála hæstv. félmrh. og hæstv. viðskmrh. um það, að koma eigi í veg fyrir, að varnarframkvæmdir verði hafnar hér að nýju. Þetta er mjög mikilvægt mál, bæði vegna þess, að það sýnir, hvort hér sé eingöngu um að ræða bráðabirgðasamkomulag eða samkomulag til lengri tíma, og eins hitt, að mjög erfitt er að gera sér grein fyrir atvinnuástandinu í landinu á næstu mánuðum eða árum, nema við vitum, hvað er fyrirhugað í þessum efnum. Og ég trúi því ekki, að stj. hafi ekki gert sér grein fyrir þessu.

Hann svaraði því líka mjög óljóst, hvort þessi samningur ætti að standa aðeins nokkra mánuði, eins og hæstv. félmrh. sagði, eða lengur. Hann sagði, að það yrði ekki talið í dögum, ekki vikum og ekki mánuðum. Það minnir mig á orðin: „einn dagur sem þúsund ár og þúsund ár dagur, ei meir.“ Það sýnist vera, að hér sé síður en svo tjaldað til einnar nætur, það er helzt að líkja við eilífðina eftir þeirri upptalningu, sem hæstv. ráðh. gaf, og er þá þess líka að minnast, sem var sagt í Þjóðviljanum á fyrstu síðu í dag: Er dauði til eftir þetta líf? — Er ekki ætlunin, að jafnvel þó að samningnum verði sagt upp æ ofan í æ, verði hann alltaf endurnýjaður. þegar þar að kemur?

Það var einhver þm., sem skaut því hér fram, þegar hæstv. utanrrh. sagði, að Bandaríkjamenn hefðu byrjað samningana með því að segja, að auðvitað færu þeir burt með liðið á tilteknum tíma, ef Íslendingar krefðust þess, að þá hefði nú fyrst farið að fara um stj., þegar þeir heyrðu, að Bandaríkjamenn ætluðu að fylgja gerðum samningum og taka liðið á brott.

Sannleikurinn er sá, að það er mjög gott að vera hreinskilinn í viðskiptum sínum við aðrar þjóðir, en það er líka nauðsynlegt, að það sé hreinskilnislega hér sagt, um hvað er verið að semja.

Hæstv. ráðh. gat þess, — það var ekki út af minni fyrirspurn, heldur fsp. hv. 3. þm. Reykv. (EOl), — að hann hefði ekki tekið þátt í neinum samningum um lán. En ég spyr þá alveg hiklaust: Voru aðrir, sem tóku þátt í samningum um lán? Og ég skal spyrja aftur, til þess að það sé alveg ljóst, hvað ég á við: Hvað var Vilhjálmur Þór bankastjóri að gera mánuðum saman eða a.m.k. vikum í Bandaríkjunum í haust, og hver voru erindislok hans þá, og er nú ráðgert, að eftir að þessum samningum er lokið, fari Vilhjálmur Þór aftur vestur? Það er kannske ekki að búast við svari, en við skulum bara bíða og láta verkin tala.

Þá talaði hæstv. ráðh. um 7. gr. En hann fékkst ekki til þess að svara þeirri mjög einföldu spurningu: Er 7. gr. samningsins breytt, eða er henni ekki breytt? Hann segir, að það eigi að gera breytingu á framkvæmdinni, og hann segir, að breytingin sé til bóta, en þó segir hann í öðru orðinu, að það sé engin breyting. Er eða ekki er — það þriðja er ekki til. Annaðhvort er 7. gr. óbreytt, og þá erum við skyldugir til að leita til NATO. Ef búið er að breyta henni á þann veg, sem ég gerði hér grein fyrir áðan, þá er að segja það hreinskilnislega, og þá höfum við fjarlægzt NATO, og þá er það gert til þess að gera ekki aðeins kommúnistunum, heldur líka hæstv. forsrh. ögn minna bumbult við það, sem hann á að kyngja.