31.01.1957
Neðri deild: 48. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (1136)

102. mál, heilsuverndarlög

Félmrh. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Mþn. sú, sem annaðist endurskoðun almannatryggingalaganna, lét fylgja frv. um almannatryggingar tvö önnur frumvörp. Annað þeirra frv. var þetta frv., sem hér liggur fyrir. Þessi n. áleit, að það væri nauðsynlegt, ef almannatryggingalögin yrðu samþ. í aðalatriðum eins og n. skilaði áliti um þau, að samþykkja bæði þessi frv. helzt samtímis.

Nú fór það svo, að þetta frv. fór til nefndar ásamt almannatryggingalögunum og var afgreitt einróma úr nefnd á síðasta þingi, allir sammála um það, en í lokaannríki þingsins í fyrra gleymdist þetta mál og hlaut sem sé ekki afgreiðslu. Nú knýr nauðsyn á, að þetta frv. verði afgreitt, og get ég ekki meint, að það geti valdið nokkrum ágreiningi, þar sem það leiðir af afgreiðslu almannatryggingalaganna í fyrra, að þessi lagaákvæði þurfa að koma til framkvæmda á vissu atriði þeirra, en það er um greiðslu launa þeirra lækna, sem starfa við heilsuverndarstöðvar. En kaflinn um heilsugæzlu var, eins og kunnugt er, felldur út úr lögunum frá 1946 við setningu nýju almannatryggingalaganna á síðasta þingi.

Ég mæli með því, að frv. fari þó til hv. heilbr.- og félmn. að þessari umr. lokinni, en óska eftir því, að afgreiðslu málsins verði hraðað svo sem föng eru á. Get ég ekki séð, að nein vandkvæði geti verið á því.