31.01.1957
Neðri deild: 48. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1160 í B-deild Alþingistíðinda. (1153)
206. mál, skattfrádráttur
Björn Ólafsson:
Herra forseti. Ég tel eins og þeir, sem hafa á undan mér talað, að það sé vel farið, að þetta frv. hefur komið fram um sérfríðindi sjómanna í skattgreiðslu. Það fékkst að vísu, þegar endurskoðun skattalaganna fór síðast fram, nokkur ívilnun til sjómanna í þessu efni, en margir töldu þá breytingu alls ekki nægilega, sem í það sinni fékkst. Ég tel, að fyllilega sé hægt að forsvara, að sjómenn hafi skattfríðindi fram yfir aðra borgara þjóðfélagsins. Og ég tel, að þau fríðindi, sem þeim eru hér gefin við ákvörðun tekjuskatts, 500 kr. fyrir hvern lögskráningarmánuð, séu ekki nægilega mikil. Þessi fjárhæð, þó að hún út af fyrir sig geri nokkurt gagn, nær ekki þeim tilgangi sinum að binda unga menn við sjómannsstörfin. En eins og sakir standa, virðast ungir menn, sem leggja fyrir sig sjómennsku, vera að flosna upp frá störfunum. Sést það bezt á því, að nú eru sex eða sjö hundruð Færeyingar hér á togara- og bátaflotanum. Ef þessi breyting ætti að koma að verulegum notum, þarf að veita sjómönnunum 1000 kr. á hvern lögskráningarmánuð í staðinn fyrir 500 kr. Ef maður starfar allt árið að sjómennsku, fær hann með því móti 12 þús. kr. frádrátt. Ég tel þann frádrátt alls ekki ósanngjarnan, þegar tekið er tillit til þeirra starfa, sem sjómenn inna af hendi. Ég vil því beina þessari till. til þeirrar nefndar, sem frv. fær. Jafnframt finnst mér, að vel mætti breyta því ákvæði, sem þessi fríðindi eru bundin við, að menn hafi unnið þrjá mánuði. Mér finnst, að vel mætti breyta því í fjóra mánuði.