21.03.1957
Efri deild: 74. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1168 í B-deild Alþingistíðinda. (1166)

206. mál, skattfrádráttur

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, um aukinn skattfrádrátt til handa skipverjum á fiskiskipum, stefnir tvímælalaust í rétta átt. Hins vegar er það skoðun mín og ýmissa annarra hv. þm. í þessari þd., að það gangi allt of skammt, til þess að það nái þeim tilgangi, sem að er stefnt með því, og til þess að verulegt gagn geti að því orðið. Það er staðreynd, að sjómannastéttin stendur svo að segja ein undir allri gjaldeyrisöflun þjóðarinnar.

Það er á þátttöku þjóðarinnar í útflutningsframleiðslunni, sem afkoma hennar veltur fyrst og fremst á hverjum tíma. Af því sést, hversu geysiþýðingarmikið það er, að nægilega margt fólk vilji vinna þau áhættusömu störf, sem sjómennskan felur í sér, hvort heldur hún er stunduð á vélskipum eða togurum.

Reynsla okkar síðustu árin hefur sannað, að of fáir ungir menn vilja leggja fram starfskrafta sina til að stunda sjó og framleiða sjávarafurðir til útflutnings. Þess vegna hefur orðið, eins og hv. frsm. n. gat um, að fá hundruð erlendra sjómanna, flest Færeyinga, til þess að starfa á íslenzka fiskiskipaflotanum. Úr þessu verður að bæta, og raunhæfasta leiðin til þess er að skapa því fólki, sem að þessari grein framleiðslunnar starfar, bætta aðstöðu og kjör. Það er af þessum ástæðum, sem ég tel, að það frv., sem hér liggur fyrir, stefni í rétta átt, en gangi hins vegar of skammt.

Ég hef þess vegna ásamt hv. 11. landsk. þm. leyft mér að flytja við það tvær brtt., — brtt., sem einnig komu fram í hv. Nd. og aðeins herzlumun vantaði á að næðu þar samþykki.

Hin fyrri þessara brtt. er við 1. gr. frv., um, að inn í upptalninguna þar skuli bætt vélstjórum. — Hv. fjhn. Nd. barst bréf frá Vélstjórafélagi Íslands, þar sem þess var farið á leit, að svipuð brtt. yrði flutt við frv. og hér liggur fyrir. Með leyfi hæstv. forseta vildi ég lesa upp kafla úr þessu bréfi Vélstjórafélags Íslands. Þar segir á þessa leið:

„Með lögum nr. 46 1954 eru fiskiskipahásetum veitt nokkur tekjuskattsfríðindi í sambandi við hlífðarfatakaup sín. Stjórnarfrv. liggur nú frammi til afgreiðslu, er gerir ráð fyrir að hækka þessi fríðindi um 200–300 kr. á mánuði. Í frv. er einnig gert ráð fyrir, að matsveinar og aðstoðarmenn í vél fái þessi hlunnindi. Með því að færa hlunnindi þessi yfir á tvo síðastnefnda starfshópa, lítur Vélstjórafélag Íslands svo á, að það sé sanngirniskrafa, að vélstjórar fiskiskipanna fái einnig þetta frádrag á tekjuskattsframtali sínu. Vélstjórar vinna við hlið aðstoðarmanna í vélarrúmi skipanna og vinna þar óþrifaleg störf, sem krefjast mikilla hlífðarfatakaupa engu síður en hjá aðstoðarmönnum í vél. Einnig má benda á það, að flestir vélstjórar eiga fullkominn sjófatnað, stígvél og stakk, sem þeir nota, er þeir þurfa að huga að togvindu og akkerisvindu og fleira á þilfari uppi.

Vélstjórafélag Íslands mælist því til þess, að hið háa Alþingi taki vélstjórana einnig með í þetta frv. En eðlilegast væri þó, að allir fiskiskipasjómenn nytu sömu skattfríðinda. Teljum vér það ekki farsæla lausn, þegar gert er ráð fyrir, að einn starfshópur fái 500 kr. skattafrádrag pr. mánuð, þegar annar starfshópur á sama vinnustað fær allmiklu hærra frádrag undir yfirskini hlífðarfatakaupa, sem báðir starfshópar verða þó að greiða sama verði.

Í trausti þess, að hið háa Alþingi taki vel þessum tilmælum vorum og afgreiði mál þetta með sanngirni, látum vér greinargerð þessa frá oss fara.

Virðingarfyllst,

f.h. Vélstjórafélags Íslands,

Örn Steinsson,

formaður.“

Það þarf ekki miklu að bæta við þessi rök vélstjóranna sjálfra. Við höfum þess vegna talið rétt að verða við beiðni þeirra og flytjum því þessa brtt., sem er fyrri till. af þeim tveimur, sem við flytjum.

Síðari brtt. er um það, að öllum skipverjum, sem hafa veríð lögskráðir á íslenzk fiskiskip fjóra mánuði eða lengur á viðkomandi skattári, skuli við ákvörðun tekjuskatts veittur sérstakur frádráttur, er nemi 30% af álögðum tekjuskatti af tekjum fyrir störf á fiskiskipum. Hér er um að ræða allverulega hækkun á skattfrádrætti frá því, sem gert er ráð fyrir í frv., og má ætla, að ef þessi brtt. yrði samþykkt, yrði um að ræða allraunhæfa ráðstöfun til að laða unga menn til frekari þátttöku í sjósókn og sjómennsku.

Ég tel svo ekki þörf á því að fara fleiri orðum um þessar brtt., en vænti, að hv. þd. samþykki þær og sýni þar með skilning sinn á því þýðingarmikla atriði, sem þær fjalla um.