26.03.1957
Efri deild: 77. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1172 í B-deild Alþingistíðinda. (1173)

206. mál, skattfrádráttur

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. Við fyrri hluta þessarar umr. varð samkomulag um það, að umr. skyldi frestað til þess að yfirfara tvær brtt., sem þá höfðu borizt frá hv. þm. N-Ísf. og hv. 11. landsk.

Nefndin hefur nú yfirfarið þessar till., og er niðurstaða n. sú, að meiri hl. mælir gegn samþykkt þeirra beggja, en einn nm., hv. 6. þm. Reykv., óskaði að hafa óbundnar hendur um málið.

Það, sem eru rök okkar gegn þessum brtt., er í fyrsta lagi það, að það muni erfiðara að skera úr um aðra yfirmenn skipsins, eftir að bætt hefur verið vélstjórum inn í þau fríðindi, sem sjómönnum, hásetum og aðstoðarmönnum í vélarrúmi, ásamt matsveinum, eru ætluð samkv. brtt., en það mun vera meining þeirra flm., að hér bætist nú vélstjórar inn í.

Varðandi breytinguna við 2. gr., þá er þar tekinn upp nýr háttur um ákveðinn hundraðshlutafrádrátt, sem telja verður nokkru óvissari en þá breytingu, sem frv. gerir upphaflega ráð fyrir.

Í þriðja lagi er rétt að geta þess hér, þar sem mér láðist að geta þess upphaflega í framsöguræðu fyrir málinu, að frv. er í einu og öllu sniðið eftir óskum sjómanna sjálfra og sérstöku samkomulagi, sem gert var við fulltrúa sjómanna, sem sæti áttu í 19 manna efnahagsnefnd Alþýðusambands Íslands. En viðræður voru við þá í sambandi við hinar svonefndu bjargráðatill., sem fram komu hér um áramótin til styrktar sjávarútvegnum.

Frv. er því í sinni upphaflegu mynd sérstakt samkomulag við fulltrúa sjómanna, og leggjum við til, að það verði samþykkt eins og það var upphaflega fram borið, og mælum því gegn þeim brtt., sem fram hafa verið lagðar.