26.03.1957
Efri deild: 77. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (1174)
206. mál, skattfrádráttur
Sigurður Bjarnason:
Herra forseti. Mér þykir mjög miður, að hv. meiri hl. sjútvn., fulltrúar hæstv. ríkisstj. í n., hefur ekki séð sér fært að mæla með samþykkt þeirra brtt., sem ég hef leyft mér að flytja hér við þetta frv. ásamt hv. 11. landsk. þm.
Það kom mjög greinilega fram við fyrri umr. um þetta mál hér í hv. þd., að menn töldu mikið bresta á, að það næði nægilega langt til þess að verða að nokkru gagni og ná þeim tilgangi, sem þó er stefnt að með því. Þessi skattfríðindi, sem frv. hæstv. ríkisstj. gerir ráð fyrir, eru svo lítil, að engar líkur eru til þess, að samþykkt frv. verði til þess að örva unga menn eða menn yfirleitt til þátttöku í sjómennsku, og þá fer því auðvitað víðs fjarri, að takmarkinu hafi verið náð með samþykkt þess.
Hv. 4. landsk. þm., frsm. hv. n. í þessu máli, sagði, að þetta frv. byggðist á samkomulagi við fulltrúa sjómanna, þess vegna mættum við engu hreyfa í því. Ég er þess alveg fullviss, að sjómenn mundu taka því með þökkum, ef þær breytingar yrðu á þessu samkomulagi gerðar, sem felast í brtt. okkar, nefnilega að auka mjög verulega þau skattfríðindi, sem gert er ráð fyrir í frv.
Það er þess vegna fyrirsláttur einn, að ekki megi samþykkja breytingartillögur okkar, vegna þess að samkomulag hafi verið gert um það við sjómenn, að aðeins þau fríðindi, sem gert er ráð fyrir í frv., skyldu ná fram að ganga. Auðvitað er það sjómönnum hinn mesti fengur, ef aukið er við þessi fríðindi, sem um kann að hafa verið samið, sem mér er ókunnugt um, fyrr en bv. frsm. upplýsir það nú.
Ég harma það sem sagt, að hv. stjórnarflokkar hafa ákveðið að snúast gegn þessum brtt. okkar við frv. og gera þetta mál þar með að káki einu, sem enga raunhæfa þýðingu hefur þó í þessu stóra máli, sem brýna nauðsyn ber til að verði leyst, þ.e.a.s., að stuðlað verði að aukinni þátttöku sjómanna eða aukinni þátttöku þjóðarinnar yfirleitt og ekki sízt ungra manna í framleiðslustarfinu við sjávarsíðuna.
Það er svo raunar óþarfi að svara nokkrum ummælum, sem féllu hjá hv. 4. landsk. þm. hér, er málið var áður til umræðu. Hann snerist þá sérstaklega hart gegn ummælum hv. þm. V-Sk. og hreytti skætingi í Sjálfstfl. og lét að því liggja, að hann hefð haft lítinn áhuga fyrir framgangi hagsmunamála sjómannastéttarinnar á undanförnum árum Það væri undarlegt allt í einu nú að heyra raddir úr okkar hópi, sem mæltu með breytingum, er væru sjómönnum hagkvæmar.
Ég vil nú fyrst benda hv. þm. á það, að einmitt meðan fyrrv. ríkisstj. sat undir forustu sjálfstæðismanna voru gerðar breytingar á skattalögum í þá átt að koma nokkuð til móts við óskir sjómanna. Og það er einmitt verið að gera breytingu á þeim ákvæðum nú.
Í öðru lagi vil ég benda á það, að það, sem ríkastan þátt hefur átt í því að bæta aðstöðu íslenzkrar sjómannastéttar á undanförnum árum, er sú staðreynd, að Sjálfstfl. beitti sér fyrir því á sínum tíma, að vísu í samvinnu við Alþfl. og kommúnista, að nota sjóði stríðsáranna til endurnýjunar togaraflotanum.
Það er vegna þess, að Sjálfstfl. tók á þessum málum, endurnýjun togaraflotans, af raunsæi og framsýni, sem íslenzkir togarasjómenn sækja nú sjó á miklu betri skipum en Íslendingar hafa nokkru sinni átt.
Það er einnig vegna forustu þeirrar sömu ríkisstj., sem Sjálfstfl. hafði forsæti í, sem vélbátaflotinn var endurnýjaður og fjöldi nýrra og fullkominna skipa byggður, utanlands og innan.
Það situr þess vegna mjög illa á þessum hv. 4. þm. Reykv. að nota þetta mál sérstaklega til þess að hreyta skætingi í þann stjórnmálaflokk og þá stjórnmálamenn, sem gifturíkasta forustu hafa haft um uppbyggingu sjávarútvegsins á undanförnum árum.
Hann minntist að lokum á það, að forsendurnar væru ekki björgulegar, þegar út í verkalýðsmálin væri farið. Ég veit nú ekki, hvort það situr sérstaklega vel á mínum hv. og ágæta sessunaut að flytja slíkar dylgjur um Sjálfstfl. Einmitt hann fer með völd í verkalýðsfélagi og er kosinn þar til forustu, vegna þess að hann er studdur af sjálfstæðismönnum. Ég er ekki að segja þetta honum til lasts, en ég álít, að hann hefði ekki átt að nota þetta tækifæri hér til þess að hreyta skætingi í Sjálfstfl. í senn fyrir afstöðu hans í verkalýðsmálum og fyrir þátt hans í uppbyggingu sjávarútvegsins á undanförnum árum. Til þess voru hans rök og hans aðstaða allt of veik.
Ég vil svo að lokum aðeins láta þá von í ljós, að þó að hv. nefnd hafi ekki treyst sér til þess að mæla með brtt. okkar, sem ganga í þá átt að gera þetta frv. að raunhæfri ráðstöfun til þess að fá aukna þátttöku í útgerð á Íslandi, þá muni hv. þd. skilja nauðsyn þeirra og samþykkja brtt.