03.04.1957
Sameinað þing: 49. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (118)
Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir
Magnús Jónsson:
Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þessar upplýsingar og sé ekki ástæðu til að orðlengja um málið að öðru leyti en því, að mér þykir, að þetta uppgjör á hag ríkissjóðs nú í ár gangi nokkuð seint, miðað við það, sem verið hefur undanfarin ár, af hvaða ástæðum sem það er.
En miðað við þær miklu umframtekjur, sem orðnar voru í nóvemberlok, en það er í síðustu grg., sem fyrir fjvn. lá um afkomu ríkissjóðs, var sýnilegt, að tekjur ríkissjóðs á s.l. ári mundu fara mjög fram úr áætlun. Það er því ljóst, að ef enginn greiðsluafgangur er hjá ríkissjóði, hljóta gjöld ríkissjóðs einnig að hafa farið mjög fram úr áætlun. Um þetta þýðir ekki að ræða á þessu stigi málsins, enda ekki til þess tími hér, en ég sem sagt vildi mega vænta þess, að Alþingi fengi mjög innan tíðar að fá að kynnast þessum niðurstöðutölum.