26.03.1957
Efri deild: 77. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1181 í B-deild Alþingistíðinda. (1180)
206. mál, skattfrádráttur
Sjútvmrh. (Lúðvík Jósefsson):
Herra forseti. Það er nú kvartað undan því, heyri ég, af talsmönnum sjálfstæðismanna, að ég skuli hafa blandað mér hér í þessar umr., og skal ég þá heldur ekki fara ýkja langt út í þetta mál héðan af. En ég taldi, að full ástæða væri til þess, þar sem þannig var mælt fyrir till. eins og hér var gert í upphafi þessa fundar, að það væri ekki saknæmt a.m.k. að segja frá þeim sannindum, sem ég sagði hér frá áður, jafnvel þó að þau kynnu að koma nokkuð illa við einstaka menn óg þó að það hleypti ekki ýkja sterkum rökum undir þá till., sem þeir voru að reyna að flytja hér í þessu máli, enda fór svo, þegar hv. þm. N-Ísf. reyndi að berja svolítið í brestina, að afskaplega var það smátt, sem hann hafði að segja til athugasemda við það, sem ég hafði látið koma hér fram. Einna helzt átti það að vera það, að það sýndi nú bezt afstöðu sjálfstæðismanna til skattfríðinda sjómanna á undanförnum árum, að við hefðum nú ekki komizt hjá því núna að flytja brtt. okkar um aukin skatthlunnindi sjómönnum til handa við till., sem sjálfstæðismenn höfðu staðið að í tíð fyrrverandi ríkisstj. að setja inn í lögin. Það er nú einu sinni svo, að ef á að auka skattfríðindi, þá er ákaflega eðlilegt, að það sé flutt till. til breytinga á gildandi skattalögum þar um, og ég veit nú ekki eiginlega, hvar okkar brtt. hefði annars staðar átt að geta komið en á þann stað, sem lagt er til. En einmitt skattfríðindatill. sú, sem við stöndum að, vekur athygli á því, að skattfríðindi þau, sem sjálfstæðismenn eru að monta af að þeir hafi veitt, náðu aðeins í það að vera 200 kr. frádráttur á mánuði, og er þó þessi hækkun, eins og ég gat um áðan, aðeins einn liðurinn í þeim kjarabótum, sem samið var um við sjómenn að þessu sinni. Skattfríðindatill. nú vekja aðeins athygli á því, hve ákaflega smávægileg undanlátssemi hafi komið fram hjá sjálfstæðismönnum hér áður, þegar þeir féllust á að veita sjómönnum þessa 200 kr. skattfríðindahækkun.
Þá minntist hv. þm. N-Ísf. á það, að þeir sjálfstæðismenn hefðu beitt sér fyrir endurskoðun skattalaganna fyrir nakkrum árum og m.a. staðið að því, að persónuskattar væru lækkaðir. Ég vona, að það hendi mig ekki að halda því fram, að þeir sjálfstæðismenn séu ekki venjulega reiðubúnir til að lækka skatta á ýmsum góðum mönnum. Það hef ég fyrir löngu vitað og veit enn, að þeir hafa ríka löngun til að lækka skatta á ýmsum aðilum. Ég minnist þess líka sérstaklega, að höfuðkappsmál í þessu tilfelli var það og þeir hafa hvað eftir annað gert fyrirspurnir um hér á Alþ., hvað líði því að auka sérstaklega skattlækkun hjá hlutafélögum í landinu. Málið stendur sem sé ekki um það, hvort sjálfstæðismenn eru fúsir til þess að lækka eitthvað hina beinu skatta, sem miðast við tekjuhæð manna, heldur um hitt, hvort þeir hafa viljað fallast á það, hvort ætti að veita einni starfsstétt, sem eru sjómenn á okkar fiskiskipum, sérstök skatthlunnindi, og á móti því hafa þeir staðið á undanförnum árum á þann hátt, sem ég lýsti áður, því að þeir hafa fellt um það till. svo að segja á hverju einasta þingi nokkur undanfarin ár.
Ég hef ekki verið að núa sjálfstæðismönnum því um nasir, að þeir vildu ekki lækka skatta á hátekjum. Ég veit vel, að þeir vilja lækka skatta á hlutafélögum. Fyrir því hafa þeir barizt mjög dyggilega hér á Alþingi. En hitt liggur jafnljóst fyrir, að þeir hafa ekki haft mikinn áhuga á því hingað til að lækka skatta sjómanna almennt.
Síðast vék svo hv. þm. N-Ísf. að því, og átti það líklega að vera einhver afbötun fyrir þá sjálfstæðismenn, hvernig þeir hafa staðið sig í þessum skatthlunnindamálum sjómanna á undanförnum árum, að núverandi stjórn hefði hækkað tolla meira en nokkur önnur stjórn. Ég hef nú rætt hér við þennan hv. þm. áður um þessar margumtöluðu álögur og skal nú ekki endurtaka það. Það er að vísu mesti misskilningur, að hér sé um einhverja meiri hækkun að ræða en gerð hefur verið áður í tíð þeirra stjórna, sem sjálfstæðismenn hafa veitt forustu. En sá er bara munurinn, að þær tollahækkanir og skattahækkanir, sem nú voru samþykktar, gengu til þess að hækka kaup sjómanna. Þær gengu beinlínis til þess að stórkostlega hækka verð á fiski í landinu, og þær gengu til þess að borga upp stórar skuldahrúgur, sem safnazt höfðu upp í sambandi við stuðninginn til sjávarútvegsins á undanförnum árum, en þar var svo komið, að útvegsmenn og sjómenn áttu inni nokkra tugi milljóna af þeim loforðum, sem búið var að heita þeim. Þetta áttu þeir eftir að fá greitt, og þetta var líka gert á þann hátt að þessu sinni, að nú var gert ráð fyrir því, að ýmsir fengju að bera þessa tollahækkun, sem hingað til hafa þar algerlega undan sloppið, og hefur þá ekki staðið á hv. þm. N-Ísf. að kvarta og kveina fyrir hönd heildsala og annarra slíkra, sem nú verða að bera þessa tollahækkun.
Hv. þm. V-Sk. minntist hér á það mikla vandamál, að hér væru nú á annað þús. útlendingar starfandi á okkar fiskiflota eða starfandi við okkar sjávarútveg. Þeir eru nú ekki allir á fiskibátunum, allmargir af þessum mönnum eru starfandi einnig í landi, en þó við fiskframleiðslu. Hv. þm. hefur kannske ekki áttað sig á því, að þetta er nú ekkert einsdæmi, þetta var ekki að gerast í fyrsta skipti á þessu ári. Við höfum komizt yfir töluna þúsund í þessum efnum fyrr en á þessari vertíð, þó að nú færu fleiri skip og fleiri bátar á vertíðina en áður. Þetta er nefnilega búið að ganga svona í nokkuð mörg ár, að við höfum þurft meira og minna á útlendingum að halda, og vissulega er það mikið og erfitt vandamál, hvernig á að koma því til leiðar, að fleiri Íslendingar starfi á okkar fiskiskipum og við okkar sjávarútveg en verið hefur á undanförnum árum. En allir þeir, sem hugleiða þetta vandamál, finna fljótlega, að það verður ekki leyst með því að auka eitthvað nokkuð skattfríðindi sjómanna frá því, sem verið hefur. Þar þarf miklu meira til að koma.
Á meðan svo háttar í okkar landi, að það er til hér í landinu vinnustöð, sem tekur í sína þjónustu tvö og upp í þrjú þúsund Íslendinga og heldur þeim þar við vinnu, sem er raunverulega fyrir utan okkar eðlilega atvinnulíf, og á meðan þessi vinnustöð borgar kaup á ýmsan hátt eins og hún hefur gert, langt fram yfir það, sem tíðkast við okkar venjulegu atvinnuvegi í þessu landi, hlýtur vitanlega fólk að dragast frá t.d. ýmsum greinum sjávarútvegsins, eins og raunin hefur orðið á á undanförnum árum.
Enn fremur er það eðlilegt, meðan slíkt ástand getur átt sér stað, eins og hefur verið nú í nokkur ár, að hér í Reykjavík einkum hefur beinlínis verið almennt uppboð á vinnuafli í mjög stórum stíl við alls konar framkvæmdir í landi, húsbyggingar o.fl., þar sem mönnum hefur verið goldið kaup langt fram yfir það, sem venjulegir kauptaxtar segja til um. Og þetta hafa menn getað vegna þess margumtalaða frjálsræðis, sem hér hefur gilt til handa þessum mönnum, sem hafa getað boðið svona í vinnuaflið, því að þeir hafa getað fengið að selja þau hús, sem þeir hafa byggt, á því verði, sem þeim hefur komið til hugar, eða leigt það út á þann hátt, að þeir hafa sannarlega getað staðið undir þessu háa kaupi, sem þeir hafa goldið. Á meðan slíkt ástand sem þetta á sér stað, sogast vitanlega eitthvert vinnuafl í þessa átt og frá framleiðslustörfunum.
Það höfum við fundið, sem við sjávarútveg höfum starfað, að jafnvel þó að við hefðum hækkað kaup eitthvað lítils háttar, eins og gert hefur verið með vissu millibili, þá hafa aðilar, sem búið hafa við þessa aðstöðu og boðið hafa upp vinnuaflið, jafnt suður á Keflavíkurflugvelli og hér við ýmis störf í Reykjavík, bara boðið þeim mun hærra og dregið til sín vinnuafl eftir sem áður.
Nokkuð svipaða sögu er að segja um margar greinar iðnaðarins hér í Reykjavík, sem hefur búið við hina frjálsu álagningu. Hann hefur getað skapað sér verðlag sjálfur eftir frelsisstefnu sjálfstæðismanna. Hefur þessi iðnaður farið sífellt vaxandi, dregið alltaf til sín fleiri og fleiri menn, og okkur hefur vantað fleiri og fleiri menn á sjóinn.
Það er ekki nema rétt, að menn geri sér fyllilega ljóst, að það mun ekki heppnast á Íslandi að hafa nægilega mikið vinnuafl á allan okkar fiskiflota og vinna úr öllum okkar fiski, ef við ætlum að geyma suður í Miðnesheiði 2000 manns við vinnu þar. Og ef við ætlum að halda uppi því uppboði við hvers konar braskstörf, sem hér hafa átt sér stað, á svipaðan hátt og verið hefur á undanförnum árum, þá hlýtur að koma að því, að okkur skorti menn við sjálf framleiðslustörfin.
Hér er því ekki um það að ræða, að nú séu einhverjar aðrar forsendur fyrir því að vilja sinna þessum almennu skatthlunnindum sjómanna en verið hefur, það er misskilningur hjá hv. þm. V-Sk. Það eru nákvæmlega sömu forsendurnar fyrir því að mæta óskum sjómanna um nokkuð aukin skattfríðindi nú eins og var, en heldur ekkert meiri nú en voru fyrir hendi fyrir nokkrum árum.
Þó að hv. þm. V-Sk. segi nú, að mér og öðrum standi nú til boða að fá aukinn stuðning við aukin skatthlunnindi sjómönnum til handa, þá afþakka ég slíkt boð, að fenginni reynslu um það, að það hefur ekki gefizt vel að reyna að fá sjálfstæðismenn til þess að leiðrétta þessi mál. Og þegar ég hef getað gert samkomulag við aðila um að mæta óskum sjómanna á þann hátt, sem þeir una, þá vil ég standa við það samkomulag og lögfesta það í því formi, sem það liggur hér fyrir í þessu frv.