02.05.1957
Neðri deild: 90. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1186 í B-deild Alþingistíðinda. (1190)

206. mál, skattfrádráttur

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég tel rétt að benda hv. þdm. á, að síðan málið fór héðan, hefur það tekið þeim breytingum, að nú, eins og málið liggur fyrir, gildir hinn nýi frádráttur, sem frv. gerði ráð fyrir vegna sjófata, fyrir alla skipverja á togurum, en áður var það þannig í frv., að hann gilti ekki fyrir vélstjóra, skipstjóra og ekki stýrimennina nema að nokkru leyti. Þessu hefur verið breytt í hv. Ed. þannig, að nú gildir þessi nýi viðbótarfrádráttur vegna sjófatanna fyrir alla á togurunum.