04.04.1957
Neðri deild: 80. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1194 í B-deild Alþingistíðinda. (1205)

109. mál, kosningar til Alþingis

Forseti (EOl):

Það hefur verið óskað forsetaúrskurðar um þetta mál. Því er haldið fram, að frv. það, sem hér liggur fyrir, feli í sér till. um breyt. á stjórnarskránni, sé það því eigi réttilega nefnt og beri forseta þess vegna að vísa því frá samkv. 27. gr. þingskapalaga.

Alþingi hefur nýlega samþykkt ályktun þess efnis, að það teldi rétt, að gefið væri út kjörbréf til handa Eggert Þorsteinssyni sem varaþm. af lista Alþfl. í Rvík, en svo stóð á, að þm. flokksins þar var forfallaður, en annar maður af listanum orðinn uppbótarmaður og þriðji maður af listanum hafði afsalað sér rétti til varaþingsætis, en Eggert Þorsteinsson skipaði fjórða sæti á framboðslista Alþfl. í Reykjavík víð síðustu alþingiskosningar, svo sem kunnugt er. Yfirkjörstjórn Reykjavíkur gaf samkv. því út kjörbréf til handa Eggert Þorsteinssyni. Var það kjörbréf síðan samþykkt af Alþingi, og hefur Eggert Þorsteinsson tekið sæti hér á Alþingi samkv. því.

Frv. það, sem hér liggur fyrir, felur í sér staðfestingu á þeim skilningi Alþingis, sem birtist í afgreiðslu þess kjörbréfamáls, er áður var nefnt. Alþingi hefur því í reyndinni lýst þeim skilningi sínum, að reglur þær um varaþingmenn, sem ætlað er að lögfesta með frv. þessu, séu samþýðanlegar stjórnarskránni.

Ákvæði 31. gr. stjórnarskrárinnar, að jafnmargir varamenn skuli kosnir samtímis og á sama hátt, er ekki óeðlilegt að skilja þannig, að varamenn skuli kjörnir í sömu kosningu og ekki skuli samtímis vera fleiri varamenn en aðalmenn. Er byggt á þeim skilningi í niðurlagi 117. gr. kosningalaganna. Í 31. gr. stjórnarskrárinnar segir, að deyi þingmaður, kosinn í einmenningskjördæmi, eða fari frá á kjörtímanum, þá skuli kjósa þingmann í hans stað fyrir það, sem eftir er kjörtímans. Í stjórnarskránni eru hins vegar engin bein fyrirmæli um það, hversu að skuli fara, ef aðalmaður og varamaður í kjördæmi, þar sem kosið er hlutbundnum kosningum, eða landskjörinn þm. og varamaður hans falla frá á kjörtímabilinu, missa kjörgengi eða segja af sér. Þessi þögn stjórnarskrárinnar bendir til þess, að gert sé ráð fyrir, að í þessum tilvikum sé jafnan varamönnum til að dreifa, og styrkir það enn fremur áðurgreindan skilning á ákvæði 31. gr. stjórnarskrárinnar.

Þegar til alls þessa er litið, verður ekki talið, að efni frv. þessa sé andstætt stjórnarskránni. Úrskurður minn verður því á þá lund, að fram komin frávísunarkrafa verði ekki tekin til greina.