05.04.1957
Efri deild: 83. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (1227)

58. mál, iðnfræðsla

Frsm. (Eggert Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., og nál. á þskj. 403 er óþarfi að fara mörgum orðum um. Hér er nánast um leiðréttingu að ræða til samræmis því, sem Alþingi hefur þegar gert varðandi orlofslögin. Frumvarpið fjallar um, eins og hv. þdm. er sjálfsagt kunnugt, að sumarleyfi iðnnema verði nú 18 dagar til samræmis við þá breytingu á orlofslögunum, sem Alþ. hefur þegar samþykkt, og er frv., eins og það er á þskj. 75, það greinargott, að um það þarf ekki langa framsögu.

Iðnn. hefur rætt málið og orðið sammála um að mæla með samþykkt þess, en eins og nál. ber með sér, voru tveir nm. fjarverandi, þegar málið var endanlega afgreitt.

Nefndin mælir einróma með því, að frv. verði samþykkt í þeirri mynd, sem það var lagt fram.