03.05.1957
Neðri deild: 91. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1207 í B-deild Alþingistíðinda. (1255)
150. mál, samþykkt á ríkisreikningum
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Frv. þetta um samþykkt á ríkisreikningnum 1954 er með sama sniði og tíðkazt hefur um slík frv. áður. Það á að vera í fullu samræmi við ríkisreikninginn, eins og hann nú liggur fyrir. Frv. hefur farið gegnum hv. Ed. Ég leyfi mér að leggja til, að því verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umræðu.