09.05.1957
Neðri deild: 94. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1208 í B-deild Alþingistíðinda. (1258)
150. mál, samþykkt á ríkisreikningum
Jón Pálmason:
Herra forseti. Það er nú eins og venjulega, að þó að við yfirskoðunarmenn Alþingis gerum nokkrar aths. við ríkisreikninginn, eins og nú er, þá virðist koma lítið út af því, þegar það kemur fyrir Alþingi, og er það að sumu leyti eðlilegt og að sumu leyti ekki eðlilegt.
Ég get ekki neitað því, að ég hef stundum orðið var við það, bæði innan þings og utan, að einstaka manni þykir, eins og ástæðurnar eru, að athugasemdir og till. frá okkur yfirskoðunarmönnum gangi furðulega skammt, eins og ástæðurnar eru í okkar fjármálum. En menn verða að gera sér grein fyrir, hvernig varið er okkar starfl. Skal ég þó ekki fara langt út í það nú.
Í fyrsta lagi er þess að geta, að annar aðalþátturinn í okkar starfi er sá að sannfæra okkur um, að upphæðirnar séu rétt bókfærðar og reikningurinn að því leyti til rétt gerður. Í því efni hafa aldrei komið athugasemdir á löngum tíma frá okkur yfirskoðunarmönnum, og ég get endurtekið það hér, sem ég hef oft áður gert, að að mínu áliti er ríkisbókhaldinu það vel stjórnað, að við höfum ekki þar athugasemdir við að gera. Í öðru lagi er svo það, sem ákveðið hefur verið á sjálfu Alþingi. Enda þótt einhverjir okkar yfirskoðunarmanna séum því andvígir, þá ber okkur sem starfsmönnum Alþ. eðlilega ekki að gera aths. út af því, sem hér hefur verið ákveðið með fjárlögum, hversu öfgafullt sem það kynni að vera og er.
Þá eru það tvö meginatriði, sem er í okkar verkahring að gera athugasemdir við og rannsaka og við gerum árlega, og það eru annars vegar umframgreiðslur hjá hæstv. ríkisstj. á hverjum tíma, og það eru að öðru leyti aðrir þættir fjármálastjórnarinnar, svo sem innheimta og annað slíkt.
Nú er það í þessum ríkisreikningi, að það eru ekki nema aðeins tvær aths., sem við vísum til aðgerða Alþingis. Um það urðu nokkrar umræður í hv. Ed., en virðist ekki hafa verið tekið neitt sérstaklega til athugunar hér í fjhn. og kannske eðlilegt, að svo sé. Þetta eru gamalkunnar aths., sem við höfum gert eiginlega ár eftir ár, að þær stofnanir, sem þarna er um að ræða, sem er ríkisútvarpið annars vegar og Skipaútgerð ríkisins hins vegar, eru meðal þeirra stofnana, sem ganga lengst í því, að því er virðist, að fara ekkert eftir fjárlögum, eyða bara eins og þeim sýnist umfram fjárlög, og Alþ. og ríkisstj. virðast láta sér þetta lynda ár eftir ár.
Samkv. þessum reikningi verður umframgreiðsla hjá ríkisútvarpinu hálf önnur milljón, og þar að auki er ástandið þar þannig, að það er óinnheimt af gömlum lánum í vanskilum 831 þús. og hjá öðrum viðskiptamönnum óinnheimt yfir 300 þús. Þetta eru atriði, sem við yfirskoðunarmenn teljum sjálfsagt að Alþ. fjalli um, og í rann og veru hefur það nú gert það, fjallað um það nú þegar, vegna þess að þessi ríkisreikningur er orðinn það gamall. Og það virðist vera reglan hjá hv. fjvn. og hæstv. ríkisstj. að láta undan þessu ár eftir ár, hækka áætlun hjá þessum stofnunum, sem eyða umfram fjárlög í nýja starfsmenn og margvíslega hækkun, og láta undan sí og æ. En það virðist ekki duga til, t.d. hjá þessari stofnun. Sama er að segja um Skipaútgerð ríkisins, sem stundum hefur eytt umfram fjárlög, svo að skiptir mörgum milljónum, en á þessu ári hafði umframgreiðslan þar verið 21/2 millj. kr.
Nú er það vitaður hlutur, að hjá fyrirtæki eins og Skipaútgerð ríkisins er um tvennt að ræða: annaðhvort að halda áfram starfseminni, eins og hún hefur verið, og láta það ráðast, hvað hún kostar, eins og virðist hafa verið reglan hjá þessu fyrirtæki, eða þá að breyta skipulaginu. Og ég verð nú að segja það sem mitt álit, þegar komið er svo, að bílasamgöngur eru jafnalmennar og nú er og flugferðir í jafnríkum mæli, þá ætti að vera auðvelt að draga töluvert saman starfsemina hjá þessu fyrirtæki. En frá hálfu okkar yfirskoðunarmanna er hér ekkert um að ræða annað en benda á, hvernig eyðslan hefur verið í þessu efni.
Nú eru ekki aðrar aths., sem við vísum beint til aðgerða Alþingis, og eins og ég sagði, er Alþ. búið að nokkru leyti að ákveða það með sinni hækkun á fjárlagaákvæðum. En þó mun vera hér starfandi mþn., sem ekki hefur neitt heyrzt frá, en hefur það verkefni að fjalla um skipulagsbreytingu hjá Ríkisskip. Og það er nú komið svo langt hjá þessu fyrirtæki, að rekstrarhalli skv. fjárl. þessa árs hjá Skipaútgerð ríkisins er áætlaður töluvert hærri en gert er ráð fyrir að fari í alla þjóðvegi, þjóðvegalagningu á landinu á þessu ári, og þá er orðið nokkuð langt gengið í þessu efni.
Fyrir utan þetta eru nokkrar athugasemdir, sem við höfum lagt til að úrskurða þannig, að það væri til viðvörunar framvegis og til athugunar framvegis, og það þýðir það, að ætlun okkar er, að það sé breytt á annan hátt gagnvart þeim atriðum en gert hefur verið. Og mörg þau atriði eru þannig vaxin, að við höfum árum saman gert athugasemdir út af því. Þar á meðal er innheimta ekki einasta hjá innheimtumönnum ríkisins, heldur og hjá ýmsum stofnunum. Óinnheimtar tekjur hjá innheimtumönnum ríkisins eru skv. þessum reikningi rúml. 27 millj. og höfðu vagið um fullar 7 millj. á því ári, sem var þó mjög gott fjármálaár, árið 1954. Auk þess hafði á því ári verið fellt niður úr eftirstöðvum sem ófáanlegt hátt á aðra milljón eða rúmar 1800 þús. kr.
Til dæmis vil ég enn fremur nefna, að hjá Tóbakseinkasölunni eru útistandandi skuldir í árslok þessa árs 5.6 millj. Þetta þykir okkur yfirskoðunarmönnum furðulega mikið og teljum, að það eigi að hafa á því annan hátt en þarna er gert. Á svipaðan hátt er þetta hjá mörgum stofnunum, að það er útistandandi miklu meira en góðu hófi gegnir, og fer vaxandi. Það er t.d. útistandandi hjá Landssmiðjunni í lok þessa árs 2 millj. kr., og hún skuldaði í árslok þá hátt á níundu millj. kr.
Umframgreiðslur á ýmsum liðum eru nokkuð miklar á þessu ári, eins og raunar oft undanfarið, og það er athyglisvert fyrir hv. alþm., sem árlega sitja yfir því, svo að vikum skiptir, jafnvel mánuðum skiptir, að úthluta smáupphæðum, sem svo má segja, til ýmissa þarflegra hluta í landinn, t.d. vegagerða, brúargerða og margvíslegra annarra hluta, að svo þegar ríkisreikningurinn kemur, þá kemur í ljós, að það hefur ekki verið farið eftir þessum ákvörðunum Alþ., enda þótt það hækki árlega stórum útgjöldin til sumra slíkra hluta, þó að það hafi nú því miður ekki verið gert til vegamálanna neitt sem heitir. En þá er það nokkuð mikil röskun á þeirri úthlutun, þegar það kemur í ljós, eins og á þessu ári, 1954, að það er farið t.d. til vegamála umfram fjárveitingu, eða til nýrra þjóðvega, um fulla milljón króna, og verður það eðlilega til þess, að það hlutfall, sem Alþ. hefur ákveðið, raskast mjög stórkostlega.
Á þetta vil ég benda, að það eru þessir tveir aðalflokkar, sem við ár eftir ár, þessir sömu yfirskoðunarmenn, höfum gert aths. við: Í fyrsta ]agi það, að ekki er farið eftir fjárlögunum nema mjög takmarkað og umframgreiðslur stórkostlegar, og það hefur lengi verið svo. Í öðru lagi er það, að útistandandi eignir hjá ríkinu sjálfu og ýmsum stofnunum þess eru miklu meiri en góðu hófi gegnir. Og eins og fjármálaástandið hefur verið á undanförnum árum og ekki sízt á árinu 1954, virðist okkur það vera næsta mikill óþarfi, að svo skuli þurfa að vera.
Þetta vil ég taka fram. En það hefur ekki áhrif á það, að ég tel það að vísu sjálfsagt, eins og hv. fjhn. leggur til, að þessi reikningur; eins og hann er, svo gamall sem hann er orðinn, sé samþykktur eins og hann liggur fyrir.