09.05.1957
Neðri deild: 94. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1217 í B-deild Alþingistíðinda. (1262)

150. mál, samþykkt á ríkisreikningum

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það eru aðeins örfá orð. — Hv. þm. A-Húnv. sagði, að ég hefði fært hér fram afsakanir fyrir þeim ágöllum, sem fram hefðu komið. Þetta er náttúrlega alls ekki rétt hjá hv. þm., að höfuðefni ræðu minnar hafi verið það, heldur reyndi ég á hinn bóginn að gera mönnum ljóst, við hvaða erfiðleika hér væri að fást, og það er langur vegur þar á milli. Ég vil þvert á móti, að það komi greinilega fram, að ég álít, að því fari fjarri, að allir þeir, sem hér eiga hlut að máli í starfskerfi ríkisins, geri skyldu sína eða það, sem með réttu móti ætti að vera hægt af þeim að krefjast.

Ég álít, að forstöðumenn ýmissa starfsgreina og ráðuneytin vanræki oft það, sem þeim er skylt að gera, til þess að koma í veg fyrir að umframgreiðslur eigi sér stað. Þetta liggur bæði í því, að það eru ekki nógu vandaðar áætlanir fyrir fram um það, hvað kostnaðurinn muni verða, og einnig oft hirðuleysi um að leggja sig í lima um það, að umframgreiðslur komi ekki til greina. Svo er allri súpunni dengt í fjmrn. og sagt: Þetta er svona, og það verður að borga. Það er dæmi til þess í einni starfsgrein, að við fengum svona reikning rétt fyrir jólin upp á 6 millj. kr. eða svo og búið var að ráðstafa þessu fé. Okkur var sagt, að það hefði verið algerlega óhjákvæmilegt, og var ekki að neinu leyti gert í samráði við fjmrn. Svona er að fást við þessi mál, og getur hver séð, hvernig það er fyrir fjmrn., sem á að bera ábyrgð á afkomu ríkissjóðs og að fjárlögin komi rétt út, þegar svona hlutir geta komið fyrir. Og það eru alls konar skýringar á takteinum um, að það hafi skeð þetta og þetta áfall hér og þetta og þetta áfall þar og hvort það hefði átt að láta þetta vera svona hér og svona þar. Þannig gengur þetta.

Þess vegna segi ég, að ef það á að vera eitthvað annað en skraf fram og aftur um breytta stefnu í þessu, sem raunverulega fyrirbyggi umframgreiðslur, þá verður að gera áætlun um það fyrir fram, hvernig bregðast skuli við, og það verður að gera í samráði við þingið, þannig að þingmenn séu alveg undir það búnir að taka þeim afleiðingum, sem slíkt hefur í för með sér. Það er einmitt frá þessu sjónarmiði, ef aths. er svarað með því að vísa málunum til Alþingis, að þá tel ég alveg eðlilegt og því aðeins verulegt gagn að slíkum aths., að það sé stungið upp á því, hvað Alþingi skuli . gera. Vitaskuld breytir engu í því efni, hvort þeir menn eiga sæti á þingi, sem eru endurskoðendur landsreikninganna. Það er fullkominn misskilningur hjá hv. þm. A-Húnv., að það breyti nokkrum sköpuðum hlut, því að það, sem þeir ættu þá að gera, væri í svörum sínum við landsreikninginn að gera þessar uppástungur, og á þann hátt liggja þær fyrir hv. Alþingi.