04.03.1957
Neðri deild: 61. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1222 í B-deild Alþingistíðinda. (1270)

126. mál, landnám, ræktun og byggingar í sveitum

Jón Pálmason:

Herra forseti. Eins og fram kom hjá hæstv. forsrh., má gera ráð fyrir því, að þessu frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 279, verði vísað til n., sem ég á sæti í, þ.e. hv. landbn. En þrátt fyrir það þykir mér rík ástæða til að segja hér nokkur orð um þetta stóra mál nú þegar og það einkum vegna þess aðdraganda, sem málið hefur haft, og vegna þeirrar meðferðar, sem það hefur hlotið hjá hæstv. ríkisstjórn.

Eins og fram er tekið á 15. bls. í þessu frv. og hæstv. forsrh. vék að, var af hæstv. fyrrv. landbrh. skipuð fimm manna milliþn. í júlímánuði s.l. til þess að endurskoða lög um nýbýli og samvinnubyggðir og gera till. um bætta aðstöðu fyrir frumbýlinga í landinu.

Þessi n., sem hæstv. ráðh. nefndi hverjir voru í, tók til starfa í byrjun septembermánaðar og skilaði sínu áliti til ríkisstj. um miðjan nóvember. N. var af formanni hennar, skólastjóranum Kristjáni Karlssyni á Hólum, haldið með áhuga og dugnaði að starfi, og innan nefndarinnar var hið allra æskilegasta samkomulag, sem ég get hugsað mér, þannig að n. var öll nákvæmlega sammála um þær till., sem hún skilaði. Hún skilaði sínum till. í tveim frv., þessu frv., sem við sjáum nú hér að vissu leyti rytjurnar af, og svo öðru frv. um veðdeild Búnaðarbanka Íslands, sem höfðu að geyma það aðalatriði, sem ég tel vera í þessum málum enn stærra en er í þessu frumvarpi.

Síðan um miðjan nóvember höfum við svo ekkert um þetta mál vitað, þar til þann 25. f.m., þá er þessu frv. útbýtt hér í þessari hv. deild. Síðan er nú liðin vika, án þess að það hafi komið á dagskrá, og ég verð að segja, að mig undrar það stórlega og vil hér með mótmæla því, hvaða meðferð hefur verið höfð á þessu máli, því að ég hygg, að hún sé einsdæmi í þingsögunni.

Það er tekið frv., sem er skilað sameiginlega af óskiptri mþn. Það er geymt í meira en þrjá mánuði án þess að leggja það fyrir þingið, og þegar það kemur, þá kemur það stórlega skemmt og meira og minna eyðilagt frá því, sem nefndin hafði lagt til, og sú aðferð held ég að hafi aldrei, a.m.k. ekki síðan ég kom á þing, verið höfð um nokkurt mál, sem skilað er til ríkisstjórnarinnar af óklofinni milliþn.

Nú er það svo, eins og eðlilegt er, að það þarf ekki að búast við ævinlega og kannske aldrei, að frv., sem samin eru af milliþn., séu samþykkt alveg óbreytt eða eins og þeim er skilað. Það er þess vegna ekkert nýtt og ekkert undarlegt við það, þó að breytingar séu gerðar á slíkum frv. í meðförum Alþ. En þegar þeim er gerbreytt eins og hér er gert, áður en málið kemur fyrir Alþ., þá er tekin upp ný regla. Og ég á bágt með að trúa því, að það sé landbrn., sem hefur farið höndum um þetta frv., heldur séu það einhverjir aðrir menn, sem eru óvinveittari okkar landbúnaði en þeir menn, sem í landbrn. eru, bæði hæstv. ráðh. og hans starfsmenn.

Ég skal nú í stuttu máli fara yfir þær aðalbreytingar og þær, sem ég tel fyrst og fremst til skemmda á þessu frv. frá því, sem við skiluðum því frá milliþn., og þar er um að ræða fyrst og fremst, að það er dregið mjög stórkostlega úr þeim fjárframlögum, sem milliþn. lagði til.

Í fyrsta lagi er framlag til íbúðarhúsabygginga frumbýlinga, sem við lögðum til að væri 2 millj. kr. á ári, en í frv. er fært niður um 1/4, sbr. 26. gr. þessa frv.

Í öðru lagi er aukaframlag til þeirra, er hafa minnsta ræktun, lækkað frá till. n. um eina millj. á árinu 1957, sbr. 41. gr. þessa frv.

Í þriðja lagi er framlag til byggingarsjóðs sveitanna, sem við lögðum til að veitt yrði á ári 5 millj. kr. til, lækkað ofan í 21/2 millj., eða er óbreytt frá því, sem það er og hefur verið á undanförnum árum, sbr. 43. gr. í þessu frv.

Auk þess lögðum við til miklu meiri eftirgjöf á skuldum þessa sjóðs en ákveðið hefur verið með fjárlagafrv.

Þarna eru þá komnar 4 millj., sem lækkað er frá okkar tillögum.

En stærsta atriðið er eftir, og það er það, að þessu frv. fylgdi frá okkar hálfu annað frv., eins og ég gat um, um breyt. á l. um veðdeild Búnaðarbankans, þar sem lagt var til, að til þeirrar stofnunar yrðu lagðar 5 millj. á ári næstu árin. Það frv. hefur ekki sézt hér enn á Alþ. og útlit fyrir, að það eigi ekki að sýna það af hálfu hæstv. stjórnar, þar sem það hefur komið í ljós, m.a., að það var við afgreiðslu fjárl. felld till. um það, að ríkisstj. hefði heimild til þess að borga þessar 5 millj. á ári til veðdeildar Búnaðarbankans eða taka lán til þess að borga þær.

Samkv. þeim till., sem milliþn. skilaði til ríkisstj., var til þess ætlazt, að til þessara mála allra yrðu lagðar 17 millj. á ári næstu árin. En samkv. þessu frv. er ekki ætlazt til, að það séu nema 3 millj. Sem sagt, það er lækkað um 9 millj. á þessu ári, en um 8 millj. á komandi næstu árum. Það er dregið úr framlögunum meira en helmingur frá þeim till., sem milliþn. lagði til.

Nú er það í sjálfu sér sá mikli ágreiningur, hvert sé aðalatriði þessara mála, hvar það sé, sem skórinn kreppir mest að bændastétt landsins, og hvar er mest þörf umbóta í þeim efnum. Það kemur fram í hinni nýju grg. fyrir þessu frv., og það var á það lögð mikil áherzla í ræðu hæstv. ráðh., að hann teldi aðalatriði þessa máls að auka ræktunina hjá þeim bændum, sem orðið hafa aftur úr á jarðræktarsviðinu. Þetta tel ég vera mjög mikinn misskilning, og ég vil segja það hér, að á jarðræktarsviðinu hafa á undanförnum árum verið lögð svo myndarleg framlög af hálfu ríkisvaldsins til aðstoðar við bændastétt landsins, að á því sviði hefur hún minnsta ástæðu til að kvarta, og á því sviði er það ekki, sem skórinn kreppir að sveitamönnum fyrst og fremst.

Þessi aðstoð er veitt samkv. þremur mikilsverðum lögum, eins og kunnugt er, jarðræktarlögunum, ræktunarsjóðslögunum og lögunum um jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum. Það hefur líka sýnt sig mjög greinilega, að jarðræktinni í okkar landi hefur fleygt fram á síðari árum mjög stórkostlega.

En menn spyrja þá: Hvaða orsakir eru til þess, að þessu athuguðu, að svo margir af bændum landsins hafa dregizt aftur úr með ræktunarframkvæmdir og hafa minna ræktað land en æskilegt er? Ég tel, að til þess liggi annarlegar orsakir og í rauninni ekki það, að það hafi verið ónógur styrkur og ónóg lán til ræktunarinnar.

Það má nú segja, að það er svo alltaf, í hvaða stétt sem er og eins í bændastéttinni, að það eru ekki allir menn, sem hafa jafnríkan áhuga fyrir ræktunarmálum, og hann er kannske ekki alltaf hægt að kaupa með auknu fjárframlagi. Það er þó engan veginn aðalatriðið í þessu máli, heldur er það hitt, að aðstaðan í mörgum afskekktustu byggðum okkar lands er þannig, bæði meðfram sjó og undir háum fjöllum o.s.frv., eins og hæstv. ráðh. vék nú raunar að, að það er ekki til á fjöldamörgum jörðum ræktanlegt land, sem nemur 10 hekturum. Auk þess er það svo víðs

vegar í þessum afskekktustu byggðum, að það gengur mjög erfiðlega og hefur jafnvel viða ekki tekizt að koma hinum stórvirkari ræktunarvélum þangað til þess að aðstoða mennina, sem þar eiga hlut að máli, og það er á því sviði, sem náttúrlega er þörf miklu meiri aðstoðar hjá ræktunarsamböndunum. Á nokkrum stöðum í landinu er það svo í fjórða lagi, að einstakir bændur hafa ekki lagt eins mikið kapp á að stækka sín tún og ella mundi, vegna þess að þeir hafa aðgang að vélafærum áveitulöndum.

Þrátt fyrir þetta er það þó mjög æskilegt, og það var okkur ljóst í milliþn., að gera þarna meira átak en gert hefur verið til þess að færa bilið á milli þeirra, sem lengst eru komnir, og hinna, sem stytzt eru komnir, saman. Þess vegna er það í sjálfu sér gott og blessað, ef hægt er að leggja meira fjárframlag til þessara mála.

En þetta er engan veginn aðalatriðið, sem kreppir að íslenzkri bændastétt í dag, síður en svo. Aðalatriðið er það, að í öllum þeim fjármálaöfgum, sem gengið hafa að undanförnu yfir þetta land og ganga, þá er það orðið svo dýrt að stofna til búskapar, að það er hér um bil engum manni fært. Það er ekki hægt að stofna meðalbú, ef þarf að kaupa jörð og byggja hús, með minna fjármagni en hálfri milljón kr. og er ekki hátt til tekið.

En það er í þessu efni, sem vandræðin eru mest og stóð ljósast fyrir okkur, sem vorum í þeirri milliþn., sem hér starfaði. En það lítur út fyrir, að þeir menn, hvort sem þeir eru í ráðun., — ég vil ekki trúa því, að þeir séu þar, heldur að það séu einhverjir skúmaskotsmenn í stjórnmálaflokkunum, sem hafa spillt þessu frv., — það lítur út fyrir, að þeir séu blindir á öðru auga og sjái illa með hinn, þegar um er að ræða hagsmunamál bændastéttarinnar, þau, sem mest kalla að. Það er einmitt á þessu sviði, að það vantar stórkostlega stuðning við þá menn, sem vilja leggja í það, og það eru alltaf, sem betur fer, einhverjir, sem vilja leggja í það að stofna til búskapar. Það hefur gengið svo á undanförnum árum, einkum síðustu árin, að þeir menn, sem leggja í það, hvort sem það eru nýbýlingar eða aðrir, lenda flestir í miklum vanda. Þeir hafa ekki átt aðgang að því lánsfé eins og nauðsyn ber til, og það hefur algerlega vantað samræmi um stuðning á þessu sviði, borið saman við aðstoðina til ræktunarmála. Sumir þeirra manna, sem þarna eiga hlut að máli, gefast upp eftir nokkur ár, aðrir basla áfram, hlaðnir skuldum og vanda. En þeir allra duglegustu komast fram úr vandanum með mikilli atorku og meiri vinnu en nokkrir aðrir menn í þessu landi inna af höndum. En það eru ískyggilega mörg dæmi þess, að sumir slíkir menn eru orðnir útslitnir menn á miðjum aldri.

Nú er það svo, að það, sem kippt er út úr þessu frv., er aukin fjárframlög til byggingarsjóðs sveitanna og til veðdeildar Búnaðarbankans.

Hjá hverjum einasta manni, sem stofnar til búskapar eða er við búskap á óuppbyggðri jörð, er það stærsta átakið að koma upp íbúðarhúsi, og það var ætlun okkar í milliþn., að aðstaða þeirra manna, sem þar eiga hlut að máli, væri stórbætt frá því, sem er. Samkv. þeim till., sem hér liggja fyrir og sem betur fer hefur ekki verið kippt út úr frv., er gert ráð fyrir því að aðstoða nýbýlamenn með 25 þús. kr. fjárframlagi til íbúðarhúsa, og það er út af fyrir sig gott og mjög áríðandi. En hvað mikið það verður framkvæmanlegt, þegar kippt er út fjórða parti af fjárframlaginu, eins og gert er hér í þessu frv., það skal ég ekki segja um. Ég er hræddur um, að það verði nokkuð þröngt fyrir dyrum í því efni. En þessi upphæð er frá okkar hálfu ekki ætluð til neinna annarra en nýbýlamanna, og þá eru eftir allir aðrir frumbýlingar og yfirleitt aðrir þeir, sem þurfa að byggja íbúðarhús. Með okkar till. um aukið fjárframlag til byggingarsjóðs, sem hér hefur verið fellt niður, var til þess ætlazt, að þeirri stofnun væri gert fært að aðstoða þá, sem byggja íbúðarhús í sveitum, töluvert betur en gert hefur verið og meira í samræmi við ákvæði laganna, eins og þau voru í upphafi, eins og þau hafa verið og eins og þau eru enn, á þá leið, að það sé heimilt að lána allt að 75% kostnaðarverðs til íbúðarhúsabygginga. Það var upphaflega ákvæði laganna og hefur alltaf staðið og stendur enn í þessu frv. Þetta hefur bara ekki verið framkvæmt. Það hefur ekki verið framkvæmt, af því að þessi sjóður hefur ekki getað lánað eins stórar upphæðir og þurfti. Lánsféð var lengi 45 þús. á hús, síðan var það hækkað upp í 60 þús. kr., og nú er það 75 þús. sem hámark. Á tímabili var þetta um það bil 30% af kostnaðarverði, og eins og núna standa sakir, mun láta nærri, að það sé eitthvað kannske heldur ríflega 40%. En það var ætlun okkar í milliþn., að lágmark þessara lána skyldi vera 100 þús., þó að það sé ekki tekið fram í greinargerð eða greinum frv. Með því móti að hækka lánið að sama skapi til frumbýlinga, sem ekki eru nýbýlamenn, um 25 þús. kr., þá er þó heldur gert auðveldara fyrir en ella. En eins og allir mega sjá, þá er það ekki þægilegt fyrir efnalausa unga menn að byrja á því að byggja íbúðarhús, eins og það er nú dýrt, auk alls annars.

Þá er það í öðru lagi og það, sem er jafnvel allra alvarlegast, að það hefur á undanförnum árum hvergi fengizt lán til jarðakaupa, bústofnskaupa og vélakaupa, en þetta allt til samans eru það háar upphæðir fyrir hvern frumbýling, að það horfir fullkomlega til vandræða, ef ekkert á að greiða hér úr, eins og sjáanlegt er að þeir menn ætlast til, sem hafa gengið frá þessu frv. og breytt því frá till. milliþn. í það horf, sem það er nú, því að þar er fyrst og fremst nauðsynin að fá inn lánsfé til þess að geta aðstoðað frumbýlingana til þess að kaupa jörð, kaupa bústofn og kaupa þær nauðsynlegustu vélar, sem þarf til búrekstrarins.

Það er t.d. nokkuð hastarlegt til þess að vita um jafnnauðsynleg verkfæri, sem flestir, jafnvel allir bændur vilja nú eiga, eins og dráttarvélar, að það skuli hvergi hafa verið á undanförnum árum fáanlegt lán til þeirra kaupa. Og það er sýnilegt, að þeir, sem hafa fjallað um þetta frv., ætlast ekki til, að það sé neitt bætt úr því, — alls ekki, — og það hefur ekki heldur verið fáanlegt neitt lán fyrir frumbýlinga til að kaupa nauðsynlegan bústofn.

Ég tel, að þessi atriði séu fyrir bændastéttina miklu meira virði en hitt með ræktunina vegna þess, hve ríflega er til hennar veitt og hefur verið, sem þakklætisvert er. En um það er ekki að villast, að það hefur gengið svo á undanförnum árum, að sveitunum hefur verið smátt og smátt að blæða út, og eftir þeim horfum, sem nú blasa við, eru þær verri en nokkru sinni hefur verið á undanförnum árum hvað þetta snertir.

Ég vil nú ekki segja neitt fleira um það, hvernig stendur á þessum breytingum, sem hér hafa verið gerðar á þessu frv., áður en það er lagt fyrir þingið. Ég vil ekki trúa því, af því að ég þekki hæstv. landbrh. frá gamalli tíð að velvilja í garð sveitanna, að þetta sé komið fram frá honum. Hitt þykir mér miklu líklegra, að hann geri það nauðugur og á móti sínum vilja að láta sína samstarfsmenn eða aðra, sem hann er í félagsskap við, hafa þau áhrif á þetta frv., sem hér hafa orðið.

Við, sem vorum í þessari milliþn., erum, eins og menn vita, nokkuð gamlir og ráðsettir menn, fjórir bændur, kunnugir öllum högum bændastéttarinnar, og fimmti maðurinn sérfræðingur, jafnvei kunnugasti maðurinn af öllum Íslendingum um það, hvernig hagur sveitanna er, sem er framkvæmdastjóri nýbýlastjórnar, Pálmi Einarsson.

Ég nefni þetta vegna þess, að það mega allir sjá, að þegar þessir fimm menn verða nákvæmlega sammála, þá er það ekki byggt á neinni hástemmdri kröfupólitík, — ekki kröfupólitík, sem er sambærileg við það, sem gerzt hefur frá hálfu launastéttanna og sjávarútvegsins, og ekki hástemmd kröfupólitík, borið saman við þá þörf, sem hér er fyrir hendi, enda býst ég við, að við, þessir fimm menn, þó að við höfum hér gert nokkrar kröfur til úrbóta á þeim mikla vanda, sem fyrir hendi er, séum nokkuð aftarlega á kröfugerðarveginum, þegar við erum bornir saman við þá fulltrúa, sem á undanförnum árum hafa haldið uppi kröfunum fyrir launastéttirnar og sjávarútveginn.

Að síðustu skal ég svo víkja að því, að þeir, sem fjallað hafa um þetta frv., hafa gert eina breytingu, sem segja má að hvorki sé til gagns né ógagns, og hún er sú, eins og ráðherrann vék að, að feila ræktunarsjóðslögin frá 1947 inn í þetta frv. Þau eru, eftir því sem mér skilst, felld inn í frv. alveg orðrétt og stafrétt eins og þau voru, með öllu óbreytt, og það má því segja, að þetta geri hvorki gagn né ógagn, því að vitanlega þekkja bændur landsins yfirleitt, hvernig ræktunarsjóðslögin eru. Hins vegar má segja, að það að feila þessi lög inn í frv. gefi Alþingi tækifæri til að taka þau einnig til meðferðar og breytinga, því að þau lög, sem eru orðin 10 ára gömul, þó að þau væru ágæt lög á sinni tíð, geta þurft nokkurra endurbóta við frá því, sem þau voru upphaflega.

En ef það á að vera svo, að það sé algerlega brennt fyrir það, að veðdeildin fái nokkra leiðréttingu í þessu efni, þá er náttúrlega hægt að hugsa sér þá leið að fela ræktunarsjóðnum það verkefni, sem við höfum ætlazt til að veðdeildin hefði, að lána til jarðakaupa og bústofnskaupa og vélakaupa, og satt að segja er að sumu leyti til heimild í ræktunarsjóðslögunum til þess, að þetta megi, að öðru leyti en að það er ekki heimild til að lána til jarðakaupa. Þetta verður nú að taka til athugunar í meðferð málsins í þinginu.

Ég vil ljúka mínu máli með því að segja það, að þó að svona hafi verið með þetta mál farið, þó að það hafi verið svona að því unnið á þeim rúmu þremur mánuðum, síðan milliþn. skilaði því til hæstv. ríkisstj., þá vil ég mega vonast eftir því, að hér innan Alþingis séu það margir menn, sem hafa góðan vilja á því að greiða úr mestu vandamálum landbúnaðarins, að það fáist einhverjar verulegar breytingar á þessu frv. í áttina til þess, sem frv. okkar í milliþn. lagði til.

Ég skal svo ekki á þessu stigi fara um málið fleiri orðum.