24.01.1957
Efri deild: 44. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2334 í B-deild Alþingistíðinda. (128)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir undirtektir hans undir það að stuðla að því, að mál fái afgreiðslu í nefndum. Ég hélt því aldrei fram hér, að hans nefnd væri sérstaklega sek í þessum efnum. Mér er þvert á móti kunnugt um það, að hún hefur skilað frá sér flestum þeim málum, sem til hennar hefur verið vísað, enda þótt það mál, sem ég nefndi hér, frv. til l. um breyt. á tollskrá, sé eitt þeirra fyrstu mála, sem til n. var vísað. Ég endurtek það, sem ég hef áður sagt hér í hv. þd., að ég álít það vera versta ósið, og ég veit, að hæstv. forseti er mér sammála um það, þó að nefndir ætli sér ekki að mæla með einhverju máli eða meiri hluti þeirra, að þá beri n. að leggjast á það, hindra afgreiðslu á því, þannig að það komi ekki í ljós, hver afstaða þingmanna og þingflokka er til málanna,

Ég veit, að hæstv. forseti er mér alveg sammála um þetta, og þess vegna finnst mér sízt sitja á hans heiðvirðu og ágætu nefnd að leggjast á það mál, sem ég hef hér gert að umtalsefni.

Enn fremur vænti ég þess, að fundur verði haldinn í samgmn. og það eina mál, sem til hennar hefur verið vísað, fái þinglega meðferð. Og ég treysti því, að hæstv. forseti stuðli að því, eins og hans er von og vísa sem skörulegs og þingvans forseta, að nefndir þessarar hv. d. skili þeim málum frá sér, sem til þeirra er vísað.