03.05.1957
Neðri deild: 91. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1247 í B-deild Alþingistíðinda. (1283)

126. mál, landnám, ræktun og byggingar í sveitum

Jón Pálmason:

Herra forseti. Þessi ágreiningur, sem hér er innan landbn. varðandi þetta mál, liggur nú það ljóst fyrir, að það er ekki brýn þörf að þræta þar mikið um. En nokkur orð verð ég þó að segja út af því, sem fram hefur komið hjá hv. frsm., og aðeins víkja fáeinum orðum að hv. 5. landsk. þm.

Varðandi það, sem hv. þm. Dal. sagði um það, að fyrrv. stjórn hefði vanrækt að taka þetta mál fyrir, þá var það nú svo, að það var gert af fyrrv. stjórn að skipa mþn. til þess að undirbúa það frv., sem verið er hér að fjalla um. Og ef frv. lægi hér fyrir óbreytt eins og mþn. skilaði því, væri þó mikill munur á heldur en frv. var, eins og það var lagt fyrir Alþ.

Hv. þm. Dal. sagði, að það mætti hækka framlagið til byggingarstyrkjanna, af því að það væri, eins og rétt er, tekið fram í frv., að það væri minnst 11/2 millj. Nú er það svo, að ef maður mætti treysta því, að þessi 1/2 millj. yrði tekin sem umframgreiðsla á fjárlögum þessa árs og fengið loforð um það frá hæstv. ríkisstj., þá er náttúrlega orðið lítið bilið á milli þess eða setja þetta inn í frv. sjálft. En ég verð að' segja það, að ég, sem er formaður nýbýlastjórnar, álit, að það sé mjög erfitt að hugsa sér að aðgreina menn þannig, að ef það eru 80 menn — sem mundi nú verða að minnsta kosti — 80 menn, sem hefðu rétt til þessa styrks, þá séu ekki peningar til handa nema 60.

Varðandi byggingarsjóðslánin er það náttúrlega rétt hjá hv. þm. Dal., að það mætti hækka lánin, ef byggingarsjóðurinn gæti fengið lán annars staðar frá. Og satt að segja gæti ég skilið afstöðu þeirra manna, sem eru á móti hækkun á framlaginu til byggingarsjóðs skv. 43. gr., ef þeir vildu fallast á að breyta því í lánskröfu. Ef okkar seinni till. verður felld við þessa umr., þá geri ég ráð fyrir, að við munum freista þess að fara fram á það um þessa 21/2 millj., sem um er að ræða, að það verði skylda hæstv. ríkisstj. að sjá um, að það verði lán á komandi ári. Að öðru leyti skal ég ekki fjölyrða um það.

Hv. 5. landsk. fór að bera það af sér að hafa verið í nokkurri nefnd til þess að endurskoða og breyta þessu frv. Satt að segja veit ég ekkert um það, hvort hann hefur verið í neinni nefnd eða hvernig það hefur atvikazt. En einhverjir hafa breytt frv. Og það er ekkert ný saga, að þegar óþrifaverk eru unnin, þá vill helzt enginn kannast við að hafa unnið þau.

Nú veit ég það um breytinguna á þessu frv., sem er einsdæmi í þingsögunni, — það er einsdæmi í þingsögunni, að það sé farið þannig með frv., sem mþn. hefur samið, að það sé tætt í sundur, áður en það kemur fyrir Alþingi, — að aðalmennirnir í landbrn., ráðuneytisstjórinn, Gunnlaugur Briem, og landbúnaðarfulltrúinn þar, Árni Eylands, hafa ekki komið nálægt þessu máli. Og ég vil halda það og trúi því, að hæstv. landbrh. hafi ekki breytt málinu sjálfur. Meira að segja er það enn trú mín, eins og ég tók fram við 1. umr. þessa máls, að það hafi ekki verið geðfellt og jafnvei alls ekki að vilja hæstv. landbrh. að breyta frv. þannig, eins og gert hefur verið, heldur hafi það verið fyrir kröfur frá hans samstarfsmönnum, annaðhvort í ríkisstjórninni eða þá í þingflokkunum. Einhverjir af þessum mönnum hafa unnið þetta, og það sýnir, að mönnunum þykir það ekkert þrifalegt verk, að enginn þeirra vill kannast við að hafa breytt þessu frv. eins og gert hefur verið. Hvort það hefur verið hv. 5. landsk., sem þarna hefur átt mestan hlutinn að, eða ekki, því hef ég engar sannanir fyrir, og ekki heldur því, hvaða menn það hafa verið. En einhverjir hafa gert það.