24.01.1957
Neðri deild: 44. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 2335 í B-deild Alþingistíðinda. (131)
Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.
Forseti (EOl):
Út af ræðu hv. 1. þm. Reykv. skal ég geta þess, að frv. um atvinnuleysistryggingar, sem á að vera til 2. umr., mun verða tekið út af dagskrá og verður til umr. á morgun. Þá mun væntanlega Kjartan J. Jóhannsson einnig vera kominn.
Viðvíkjandi fyrra málinu var fyrirhugað, að á þessum fundi flytti hæstv. sjútvmrh. sína framsöguræðu um þetta mál og síðan yrði umr. frestað. Ég ætla, að það sé háttur, sem einnig hv. stjórnarandstaða geti fellt sig við, því að það gerði ekki annað en skýra málið betur til umr., og ég vil leyfa mér að óska eftir því, að samkomulag geti orðið um það, því að yfirleitt er það tilgangurinn að reyna að halda góðum friði í þinginu, en flýta þó málum svo sem hægt er án þess að beita nokkurn órétti.