29.03.1957
Neðri deild: 77. fundur, 76. löggjafarþing.
Sjá dálk 1270 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)

128. mál, tollskrá o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Það fer ævinlega svo, að nauðsynlegt er að breyta lögum um tollskrá stöku sinnum. Mörg erindi berast um þessi efni stöðugt, og breyttar ástæður valda því oft, að það verður að breyta gildandi ákvæðum í einstökum atriðum. Það er venja að safna saman í frv. þeim breytingum, sem fjmrn. og ráðunautum þess sýnist nauðsynlegt að lögfesta,leggja síðan fyrir af og til frv. um breytingu á tollskrárlögunum. Hefur nú orðið að ráði að gera tillögu um nokkrar breytingar á tollskránni, sem lagðar voru fyrir hv. Ed. í þessu frv. Enn fremur hefur hv. Ed. bætt nokkrum ákvæðum inn í þetta frv., þó ekki mörgum, eftir að nefnd fjárhagsmála þar í d. hafði skoðað málið og ýmis erindi, sem fyrir lágu, og ráðgazt um þau við fjmrn.

Ég sé ekki ástæðu til þess að fara að gera grein fyrir þessu máli í einstökum atriðum. Ég vildi aðeins benda á, hvernig það er til komið, en leyfa mér að leggja til, að því verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari 1. umr.